Byggðarráð Skagafjarðar geldur varhug við því að héraðsdómstólum verði fækkað í einn

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra er með áform um að sam­eina þá átta hér­aðs­dóm­stóla sem eru í land­inu í eina stofnun. Forsenda sam­ein­ing­ar­innar er að sam­ein­aður dóm­stóll hafi starfs­stöðvar á lands­byggð­inni. Skaga­fjörður leggst að óbreyttu gegn áformunum.

Jón Gunnarsson er dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son er dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Byggð­ar­ráðs Skaga­fjarðar geldur var­hug við fyr­ir­hug­aðri fækkun hér­aðs­dóm­stóla. Í umsögn þess um áform um laga­setn­ingu þess efnis, sem birt hefur verið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, segir að sporin hræði í þeim efnum. „þegar stjórn­sýslu­ein­ingar missa ákveðið sjálf­stæði hefur slíkt oftar en ekki leitt til þess að umfang starfs­stöðva þeirra hefur minnkað í kjöl­farið eða þeim verið lokað með til­heyr­andi skerð­ingu á nær­þjón­ustu. Nægir þar að nefna starf­semi svæð­is­stöðva Rík­is­út­varps­ins á lands­byggð­inni, starf­semi Vega­gerð­ar­innar, Rarik o.fl.“

Í umsögn­inni segir að þótt byggð­ar­ráðið sé sam­mála mörgu af því sem er að finna í drög­unum, meðal ann­ars um að starfs­stöðvar hér­aðs­dóm­stóla sé hægt að efla og styrkja með nýjum verk­efnum, þá sé athygl­is­vert sé að sjá að í skjali um mat á áhrifum frum­varps­ins sé talið að það leiði ekki til neinna áhrifa á byggð­ar­lög. „Byggð­ar­ráð leggur áherslu á að frum­varp þetta verði ekki lög­fest án þess að sam­hliða verði fest í lög þau verk­efni og umsvif sem starfs­stöðvum hér­aðs­dóm­stóls á hverjum og einum stað er ætlað að sinna.“

Undir umsögn­ina skrifar Sigfús Ingi Sig­fús­son, sveit­ar­stjóri Skaga­fjarðar.

Vill fækka héraðsdómstólum úr átta í einn

Kjarninn greindi frá því 12. ágúst síð­ast­lið­inn að dóms­mála­ráðu­neytið hefði kynnt áform um laga­setn­ingu þess efnis að sam­eina alla átta hér­aðs­dóm­stóla lands­ins í eina stofnun í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Til stendur að vinna frum­varp um málið í ráðu­neyt­inu og mark­mið hinnar fyr­ir­hug­uðu laga­setn­ingar er að auka skil­virkni og hag­kvæmni í rekstri hér­aðs­dóms­stigs­ins. Umsagn­ar­frestur um áformin stendur til 9. sept­em­ber.

Í umfjöllun um áformin á vef sam­ráðs­gátt­ar­innar segir að Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hafi hinn 23. mars síð­ast­lið­inn skipað starfs­hóp um sam­ein­ingu hér­aðs­dóm­stóla. Það hafi meðal ann­ars verið gert á grund­velli ábend­inga Rík­is­end­ur­skoð­unar sem settar voru fram í skýrslu sem send var til ráðu­neyt­is­ins 29. apríl 2020. Þar kom fram að sam­ein­ing hér­aðs­dóm­stól­anna sé skil­virkasta og árang­urs­rík­asta leiðin að auk­inni sam­ræm­ingu innan dóms­kerf­is­ins.

Starfs­hóp­ur­inn sem Jón skip­aði í vor hefur enn ekki lokið störfum en ráð­gert er að störfum hans ljúki haustið 2022. Hann er sam­an­settur af for­manni stjórnar dóm­stóla­sýsl­unn­ar, full­trúa lög­manna­fé­lags­ins og öðrum aðstoð­ar­manni dóms­mála­ráð­herra. Lög­fræð­ingar frá dóm­stóla­sýsl­unni og dóms­mála­ráðu­neyt­inu starfa með hópn­um. Starfs­hópnum til stuðn­ings skip­aði Jón enn fremur sam­ráðs­hóp sem skip­aður er sak­sókn­ara hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, þremur hér­aðs­dóm­ur­um, aðstoð­ar­manni hér­aðs­dóm­ara og dóm­rit­ara í hér­aðs­dómi.

Starfs­stöðvar á lands­byggð­inni for­senda

Dóms­mála­ráðu­neytið segir að for­senda sam­ein­ing­ar­innar af þess hálfu sé að sam­ein­aður dóm­stóll hafi starfs­stöðvar á lands­byggð­inni, en ekki kemur fram í kynntum áformum hversu margar þær eiga að vera. „Horft er til þess að efla og styrkja þessar starfs­stöðvar með nýjum verk­efnum og byggja þar á verk­efni um svo­nefnda rétt­ar­vörslu­gátt og því að koma á fót staf­rænni með­ferð dóms­mála. Með breyttu fyr­ir­komu­lagi hér­aðs­dóm­stól­anna má ætla að ná megi fram ein­fald­ari og skil­virk­ari stjórn­sýslu fyrir dóm­stól­ana og mark­vissu eft­ir­liti með henni. Þá má ætla að fjár­fram­lög og mannauður dóm­stól­anna muni nýt­ast betur og aukið hag­ræði nást við með­ferð dóms­mála borg­ur­unum til hags­bóta.“

Þá á breyt­ingin að fela í sér að hægt verði í rík­ari mæli að sinna málum óháð starfs­vett­vangi dóm­ara, styrkja stjórnun hér­aðs­dóms­stigs­ins og fag­legan grund­völl fyrir starf­semi dóm­stigs­ins á lands­byggð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár