Ný rannsókn: 65 prósent krabbameins ekki vegna lifnaðarhátta eða erfða

Handahófs­kenndar stökk­breytingar gena orsaka 65 prósent alls krabba­meins. Það þýðir að einungis 35 prósent krabba­meins er hægt að rekja til erfða eða óheilbrigðra lifnaðar­hátta á borð við reykinga. Þetta er niður­staða rann­sóknar sem framkvæmd var við Johns Hopkins lækna­háskólann í Baltimore og birt í nýjustu útgáfu hins virta tímarits Science, sem kom út í dag. Business Insider greinir frá.

Lukkan virðist því, samkvæmt niður­stöðu rann­sóknarinnar, skipta meira máli við að ákvarða hver fær krabba­mein og hver ekki en það hvernig lífstíl viðkomandi lifir eða erfðir.

Eins og að tapa í lottóinu


Rann­sak­end­urnir könn­uðu 31 teg­undir af krabba­meini og komust að þeirri nið­ur­stöðu að 22 þeirra, þar á meðal hvít­blæði, krabba­mein í brisi, beinum, eistum, eggja­stokkum og heila, skýrð­ist að lang­mestu leyti af handa­hófs­kenndum stökk­breyt­ingum gena, sem þeir kalla „líf­ræði­lega ólukku“.

Hinar níu tegundirnar sem skoðaðar voru, þeirra á meðal krabba­mein í þörfum, húðkrabba­mein og reykingar­tengt lungna­krabbamein, eru taldar ráðast meira á erfðum og umhverfis­breytum á borð við áhættu­hegðun eða sambýli við krabbameins­valdandi efni.

Læknirinn Bert Vogelstein og lífefna­stærð­fræðingurinn Christian Tomasetti framkvæmdu rann­sóknina. Á vef Business Insider er haft eftir Vogelstein að þegar fólk greinist með krabba­mein þá vill það samstundis fá að vita af hverju. „Það vill trúa því að það sé ástæða. Og raun­verulega ástæðan er í mörgum tilfellum ekki sú að þú hafir ekki hegðað þér vel eða hafir verið berskjaldaður gagnvart einhverjum slæmum umhverfis­legum áhrifum, heldur vegna þess að viðkomandi var óheppinn. Þetta er eins og að tapa í lottóinu“.

Tomasetti sagði að breytingar á lífstíl, á borð við að hætta að reykja, geti hjálpað til við að forðast að auka líkur á ýmsum tegundum krabba­meins, en að þær séu mun áhrifa­minni við að hindra myndun annarra tegunda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár