Ný lög um lögheimili taka gildi

Nú er m.a. hægt að stunda nám erlendis og hafa lög­heim­ili á Íslandi á sama tíma, hjón geta verið með lög­heim­ili á sitt­hvorum staðnum og hægt er að halda lög­heim­ili sínu hér á landi þrátt fyrir dvöl erlendis vegna veik­inda.

Ný lög um lög­heim­ili og aðsetur og reglu­gerð um sama efni tóku gildi þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn. Markmið laga þess­ara og reglu­gerðar er að stuðla að réttri skrán­ingu lög­heim­ilis og aðset­urs á hverjum tíma og tryggja réttar­ör­yggi í með­ferð ágrein­ings­mála er varðar skrán­ingu lög­heim­ilis.

Þetta kemur fram í frétt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Í fyrsta lagi er gerð sú krafa til þing­lýsts eig­anda fast­eignar að hann hlut­ist til um að skrán­ing lög­heim­ilis ein­stak­linga sem hafa fasta búsetu í hús­næði hans sé rétt. Gert er ráð fyrir að þing­lýstur eig­andi fái senda til­kynn­ingu í póst­hólf sitt á Ísland.is um þá sem skrá lög­heim­ili sitt í fast­eign í hans eigu. Vanræki eig­andi fast­eignar ofan­greindar skyldur getur það varðað sektum.

Hægt að stunda nám erlendis og hafa lögheimili á Íslandi

Í öðru lagi verður ein­stak­lingi sem stundar nám erlendis áfram heim­ilt að hafa lög­heim­ili á Íslandi meðan á námi stendur enda sé hann ekki skráður með lög­heim­ili erlendis á meðan. Náms­manni ber að til­kynna til Þjóð­skrár Íslands um náms­dvöl erlendis og fram­vísa stað­fest­ingu um skóla­vist. Sú breyt­ing hefur verið gerð frá eldri rétti að náms­maður þarf að hafa haft lög­heim­ili sam­fellt á Íslandi í að minnsta kosti tvö ár áður en nám erlendis hefst. Sama gildir um maka náms­manns og börn sem dvelj­ast erlendis með náms­manni.

Þá hefur einnig verið gerð sú breyt­ing að heim­ild til að hafa lög­heim­ili hér á landi fellur niður að fjórum árum liðnum nema nýrri stað­fest­ingu um skóla­vist sé fram­vísað hjá Þjóðskrá Íslands. Berist stað­fest­ing ekki innan til­skil­ins frests er Þjóðskrá Íslands heim­ilt að fella niður aðset­urs­skrán­ingu og skrá lög­heim­ili náms­manns­ins erlendis.

Halda lögheimili þrátt fyrir dvöl erlendis vegna veikinda

Í þriðja lagi verður ein­stak­lingi áfram heim­ilt að halda lög­heim­ili sínu á Íslandi þrátt fyrir dvöl erlendis vegna veik­inda. Gerð er sú krafa að vott­orð útgefnu af lækni með starfs­leyfi á Íslandi sé fram­vísað hjá Þjóðskrá Íslands um nauð­syn dvalar erlendis vegna veik­ind­anna og til­kynnt sé um aðsetur erlendis.

Þá tekur sú nýbreytni gildi að fram­an­greind heim­ild er háð því að ein­stak­ling­ur­inn hafi haft lög­heim­ili sam­fellt á Íslandi í að minnsta kosti tvö ár áður en veik­indi hófust, auk skil­yrða sem ráð­herra getur sett sam­kvæmt reglu­gerð. Fram­an­greind heim­ild gildir aðeins í eitt ár nema óskað sé eftir áfram­hald­andi aðset­urs­skrán­ingu hjá Þjóð­skrár Íslands. Leggja þarf fram nýtt lækn­is­vott­orð þegar óskað er fram­leng­ingar.

Eftirlitsheimildir Þjóðskrár aukast

Í frétt ráðu­neyt­is­ins er vakin sér­stök athygli á auknum eft­ir­lits­heim­ildum Þjóð­skrár Íslands með lög­heim­il­is­skrán­ingu. Þegar uppi er vafi um rétta skrán­ingu á lög­heim­ili er Þjóðskrá Íslands heim­ilt að óska eftir upp­lýs­ingum frá stjórn­völdum og fyr­ir­tækjum í einka­rekstri, sem búa yfir eða varð­veita upp­lýs­ingar um búsetu ein­stak­linga, í þeim til­gangi að ákvarða rétta skrán­ingu. Stjórn­völdum og fyr­ir­tækjum í einka­rekstri er rétt og skylt að verða við beiðni Þjóð­skrár Íslands.

Þá er stjórn­völdum og fyr­ir­tækjum í einka­rekstri heim­ilt að eigin frum­kvæði að upp­lýsa Þjóðskrá Íslands þegar þau verða þess vör að ósam­ræmi er á milli lög­heim­il­is­skrán­ingar og raun­veru­legrar búsetu.

Hjónum heimilt að skrá lögheimili á sitthvorum staðnum

Að auki er að finna önnur nýmæli í lög­unum. Hjónum verður til dæmis heim­ilt að skrá lög­heim­ili hvort á sínum staðnum, þrátt fyrir meg­in­regl­una um að hjón skuli eiga sama lög­heim­ili. Heimilt verður að skrá tíma­bundið lög­heim­ili á skráðum áfanga­heim­ilum, í starfs­manna­búðum og sam­bæri­legu hús­næði enda sé fyrir hendi leyfi til rekst­urs starf­sem­innar.

Þá skal skrá lög­heim­ili ein­stak­linga í fjöl­býl­is­húsum niður á íbúðir sem mun auð­velda fram­kvæmd mann­tals og minnka líkur á trygg­inga­svikum svo dæmi séu nefnd. Heimilt verður að fara þess á leit við Þjóðskrá Íslands að lög­heim­ili verði dulið í þjóð­skrá að upp­fylltum ströngum skil­yrðum o.fl. Tvö síð­ast­nefndu atriðin munu taka gildi þann 1. jan­úar 2020 að öllu óbreyttu, segir í frétt ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár