Hægir á hlutunum í Kína

Alþjóða­bankinn segir að hagkerfið í Kína sé að kólna og að hagvöxtur verði minni í ár en fyrri spár bankans sögðu til um. Nú gerir spá bankans ráð fyrir 7,4 prósent hagvexti en fyrri spá hafði gert ráð fyrir um 8 prósent hagvexti. Þó þetta sé ekki mikill munur í huga einhverra þá eru stærðirnar í Kína þannig að þessi staða getur haft víðtæk áhrif á stöðu efnahags­mála í heiminum.

Spá bankans gerir nú ráð fyrir 7,2 prósent hagvexti á næsta árið og 7,1 prósent hagvexti árið 2016. Það er ekki síst fasteigna­markaðurinn sem er farinn að sýna einkenni þess að hjól efnahags­lífsins snúist hægar en áður. Fram­leiðsla á sementi í Kína virðists vera áreiðanlegur mæli­kvarði á það hvernig málin eru að þróast, samkvæmt umfjöllun vefritsins Quartz.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár