Árið 2014 var mesta „Startup“ ár fjárfesta frá 2000 - Netbólan 2.0?

Ekki hefur komið meira fé frá fjár­festum til bandarískra frumkvöðla­fyrirtækja (Startups) frá árinu 2000, þegar netbólan var útþanin en hún sprakk með látum skömmu síðar, með þeim afleiðingum að hlutabréfa­markaðir féllu saman og fjár­festar héldu að sér höndum þegar kom að frumkvöðla­fjár­festingum í tölu­verðan tíma.

Á árinu 2014 settu fjár­festar 48,3 milljarða Bandaríkja­dala , tæplega 6.300 milljarða króna, í frumkvöðla­fyrirtæki í Banda­ríkjunum, en það er hækkun um 61 prósent miðað við árið áður þegar fjár­festar settu 30 milljarða.

Frá þessu greindi Bloomberg í gær, og vitnaði til upplýsingar frá NVCA (National Venture Capital Association) og PWC (PricewaterhouseCoopers) sem taka þessar upplýsingar saman árlega.

Mikill vöxtur hefur verið í fjár­festingum í frumkvöðla­fyrirtækjum í Banda­ríkjunum, ekki síst fyrir­tækjum sem byggja á hinum ýmsum mögu­leikum sem internetið býður upp, ekki síst í gegnum snjall­síma og forrit sem hægt er að nota í gegnum þá.

Töluverð umræða hefur verið um það að undan­förnu, hvort þessar miklum fjár­festingar í frumkvöðla­fyrirtækjum, einkum í tækni- og netgeiranum, séu sjálf­bærar og hvort það hafi þegar myndast bóla, netbólan 2.0. Einn þeirra sem hefur varað við því að þessar miklu fjár­festingar geti ekki varað endalaust, er fjár­festirinn Marc Andreessen. Hann sagði í tísti á Twitter aðgangi sínum ekki alls fyrir löngu, sem Bloomberg vitnar til, að það ætti eftir að koma ljós hverjir væru með innistæðu fyrir fjár­festingu og hverjir ekki, þegar markaðurinn myndi „snúast“. Það væri ekki spurning um hvort hann myndi gera það, heldur hvenær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár