Cameron í opinberri heimsókn á Jamaíka - krafinn bóta vegna þrælahalds

Fyrsta opinbera heimsókn Davids Cameron forsætis­ráðherra Bretlands til Jamaíku þykir hafa byrjað brösug­lega fyrir hann, þar sem stjórn­völd þar í landi hafa krafist þess að Cameron hefji viðræður um bætur vegna þáttar Breta í þræla­haldi. Aðgerðar­sinnar hafa einnig kallað eftir því að hann biðjist persónu­lega afsökunar á þræla­haldi forföður síns á nítjándu öld.

Samtök sem kalla eftir bótum fyrir þrælahald segjast hafa rakið ætterni forsætis­ráðherrans. „Forfeður hans voru þræla­eigendur og græddu á þræla­haldi,“ segir Bert Samuels, talsmaður samtak­anna.

Portia Simpson Miller, forsætis­ráðherra Jamaíka, ræddi bæturnar á formlegum fundi með Cameron í gærkvöldi, stuttu eftir að hann kom til eyjunnar. Hún sagði eftir fund þeirra að Jamaíku­búar vildu ræða við Breta um málið, sem væri af augljósum ástæðum viðkvæmt.

Cameron minntist hins vegar ekkert á þræla­haldið eða bætur í sínum ummælum eftir fundinn, heldur talaði bara um að hann hefði snúist um framtíðar­viðskipti landanna tveggja auk þess sem hann talaði vel um sögulegar tengingar milli þeirra. „Við erum að tala um fram­tíðina,“ sagði hann við breska blaðamenn um málið þegar hann var á leið til eyjunnar.

Blaðamanna­félag Jamaíku hefur lagt fram formlega kvörtun vegna þess að hann neitaði að taka við spurningum frá blaða­mönnum eftir fundinn.

Þetta er fyrsta opinbera heimsókn bresks forsætis­ráðherra til Jamaíku í 14 ár og umræðan um bætur fyrir þræla­haldið hefur skyggt á annað sem heim­sókninni tengist.

Vegna þess að Cameron minntist ekki á málið fyrr var mikill þrýstingur á að hann talaði um það þegar hann ávarpaði þingið í dag. Hann talaði um þræla­haldið og sagði það hræðilegasta tímabil sögunnar, sem ekki hafi átt neinn rétt á sér í siðuðu samfélagi. Hann sagði hins vegar að það væri kominn tími til að komast yfir þessa sársauka­fullu sögu. Hann talaði ekkert um bætur eða neitt slíkt.

Í heimsókn sinni hefur Cameron hins vegar tilkynnt um 300 milljóna punda aðgerðir fyrir ríki í karabíska hafinu, meðal annars styrki til að styrkja innviði eins og vegi og brýr. Þá ætla Bretar að verja 25 milljónum punda í byggingu fangelsis á Jamaíka svo að hægt verði að senda glæpamenn frá ríkinu, sem eru dæmdir í Bretlandi, þangað. Yfir 600 Jamaíku­búar eru í fangelsum í Bretlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár