Stjórnvöld í Japan setja lög til að skikka fólk í frí

Japönsk stjórn­völd áforma nú að skylda fólk til þess að taka að minnsta kosti fimm frídaga á ári, til þess að reyna að draga úr andlegu og líkamlegu álagi.

Stór hluti starfs­fólks í landinu notar innan við helming þess frís sem það vinnur sér inn á ári, samkvæmt könnun vinnumála­yfirvalda þar í landi. Könnunin gaf til kynna að árið 2013 hafi starfs­fólk að meðaltali aðeins tekið sér níu af þeim 18,5 dögum sem það átti rétt á. Önnur könnun sýndi fram á að einn af hverjum sex tók sér ekkert launað frí allt árið 2013.

Stjórn­völd vilja auka fríið um 70 prósent fram til ársins 2020 og til stendur að leggja fram frumvarp um það á þingi fljótlega að fólk verði skyldugt til þess að taka sér minnst fimm frídaga. Samtök atvinnu­rekenda hafa barist fyrir því að frídagarnir yrðu þrír, en verkalýðs­félög berjast fyrir því að þeir verði átta.

Samkvæmt japönskum lögum eru fyrirtæki skyldug til að veita starfs­mönnum að minnsta kosti tíu daga í launað leyfi á hverju ári, og fjöldi daga eykst um einn með hverju ári sem þeir vinna. Hámarks­fjöldi frídaga eru 20 dagar. Lögin gera hins vegar ráð fyrir því að starfs­fólkið sæki sér þennan rétt sjálft, og ef það gerir það ekki eru fyrir­tækin ekki að brjóta gegn lögunum.

Langir vinnu­dagar og ólaunuð yfirvinna hafa verið taldar helstu ástæður að baki andlegum og líkamlegum veikindum meðal vinnuafls í landinu. Hugtakið karoshi er notað yfir fólk sem deyr vegna of mikillar vinnu. Hugtakið hefur verið til í japönskum orðabókum í nokkur ár eftir mikla aukningu dauðsfalla sem tengdust streitu og sjálfs­vígum.

Ungt fólk á vinnu­markaði þarf oft að vinna allt að hundrað klukku­tíma á mánuði í yfirvinnu. Tveir af hverjum þremur starfs­mönnum segjast ekki vilja taka fríið sitt vegna þess að það myndi bitna á samstarfs­mönnum þeirra. Meira en helmingur fólks segist einnig einfald­lega ekki hafa tíma til að taka sér frí vegna álags í vinnunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár