Erdogan hótar að opna upp á gátt landamærin inn til Evrópu

Forseti Tyrklands hótaði í dag að opna landa­mærin inn til Evrópu og hleypa þangað straumi flótta­manna. Um 2,5 milljónir flótta­manna eru í Tyrklandi.

Erdogan, forseti Tyrklands, segist tilbúinn að heimila dauða­refsingar ef frumvarp þess efnis verður samþykkt. Evrópu­sambandið leggst harðlega gegn dauð­refsingum og er litið á þetta stefnumál Erdogans sem ögrun við helstu þjóðar­leiðtoga Evrópu­sambands­ríkjanna.

Þá hefur Erdogan einnig hótað því að senda mörg hundruð þúsund flótta­menn til Evrópu. „Hlustið á mig: landa­mærin verða opnuð ef þið gangið lengra,“ sagði Erdogan í dag, beindi orðum sínum að leiðtogum Evrópu­sambands­ríkja.

Erdogan telur Evrópu­sambandið hafa svikið samkomu­lagið frá því í mars, sem miðaði að því að ná saman um leiðir til vinna gegn miklum vanda flótta­manna frá stríðs­hrjáðum svæðum í nágrenni Tyrklands.

Talskona Angelu Merkel, kanslara Þýska­lands, lét hafa eftir sér í dag að samkomu­lagið frá því í mars hefði verið mikilvægt fyrir alla sem aðild áttu að því. Hótanir væru ekki hjálplegar.

Um 2,5 milljónir flótta­manna eru í Tyrklandi, flestir í flóttamanna­búðum. Stærsti hópurinn kemur frá Sýrlandi. Af um 22 milljóna heildar­íbúafjölda í Sýrlandi, miðað við tölur árið 2011, er talið að 12 milljónir séu á flótta, ýmist innan landsins eða utan. Flestir flótta­menn sem reyna að flýja til Evrópu fara í gegnum Tyrkland.

Frá þessu greinir breska ríkis­útvarpið BBC. Erdogan hefur látið fangelsa mörg þúsund opinbera starfs­menn, þar á meðal kennara, prófessora og dómara. Þá hafa meira en 150 blaðamenn verið hand­teknir. Engar fréttir hafa borist af aðbúnaði þeirra sem hafa verið hand­teknir, en Erdogan og ráðamenn undir hans stjórn hafa neitað að veita mann­réttinda­samtökum upplýsingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár