Tíu bestu pólitísku auglýsingarnar í breskri stjórnmálasögu

Kosið verður til þings í Bretlandi eftir tæpan mánuð, þann 7. maí. Ljóst er að kosningarnar geta orðið sögulegar þar sem minni flokkar, sérstak­lega UKIP og Skoski þjóðar­flokkurinn, mælast með mun meira fylgi en þeir hafa nokkru sinni áður mælst með og allar líkur á að turnarnir tveir, Verkamanna­flokkurinn og Íhalds­flokkurinn, nái hvorugur hreinum meirihluta. Nýjasta skoðannakönnun sem framkvæmd var í Bretlandi sýnir að Íhaldssflokkurinn mælist með 34 prósent fylgi en Verkamanna­flokkurinn með 33 prósent.

Nicola Sturgeon, leiðtogi Skoska þjóðar­flokksins, þótti auk þess standa sig best í kappræðum stjórnmála­leiðtoga í Bretlandi í síðustu viku, samkvæmt könnun YouGov. Hún þótti raunar standa sig svo vel að spurningin um hvort íbúar Englands gætu kosið Skoska þjóðar­flokkinn (þeir geta það ekki, flokkurinn býður bara fram í kjördæmum í Skotlandi) var sjötta vinsælasta spurningin sem leitað var að svari við á Google kvöldið eftir kapp­ræðurnar. Nigel Farage, hinn umdeildi leiðtogi UKIP, þótti næst bestur í kapp­ræðunum.

Í tilefni þess að kosninga­baráttan er komin á fullt þá tók The Guardian saman yfirlit yfir tíu bestu bresku kosninga­auglýsinga­spjöldin sem gerð hafa verið.

1966: You Know Labour Government Works


1966
1966

Auglýsingin er marg­slungin. Hún inni­heldur ekki neinskonar kosninga­loforð né er til þess fallin að ala á ótta um hvað gerist ef pólitískir andstæðingar Verkamanna­flokksins komast til valda. En hugmyndin um að það hitti í mark að kjósa flokkinn vakti athygli.

1978: Labour Isn´t Working


1978
1978

Hugmyndin var augljós­lega sú að benda á að Verkamanna­flokkurinn skapaði ekki störf. Flokkurinn kallaði auglýsinguna frægu, sem auglýsinga­stofan Saatchi & Saatchi gerði, fölsun þar sem fólkið í röðinni var í raun ungir íhalds­menn frá Hendon. Margaret Thatcher, þáverandi leiðtogi Íhalds­flokksins, hafnaði upphald­lega auglýsingunni á grund­velli þess að flokkur ætti aldrei að vera með nafn andstæðingsins á sinni eigin auglýsingu. Auk þess gæti tvíræðnin sem fram kemur í henni ekki verið neitt sérstak­lega góð vegna þess að Thatcher sjálf sagðist ekkert botna í henni. Það varð allt vitlaust þegar auglýsingin birtist og Saatchis-stofan áætlaði að upphlaupið hafi skilað Íhalds­flokknum fríum birtingum sem metnar voru á um fimm milljónir punda. Íhaldið vann kosningarnar, og næstu þrjár sem fylgdu í kjölfarið, í góðu og nánu samstarfi við Saatchis & Saatchis.

1979: The Real Fight Is For Britain


1979
1979

Blaða­manni The Guardian fannst þessi auglýsing Frjáls­lyndra demókrata, sem oftast nær hafa verið í algjöru auka­hlutverki í breskum stjórn­málum, svo dásamlega skrýtin að hún hlyti að eiga að heima á meðal þeirra bestu.

1984: If You Want Me Out, You Should Have the Right to Vote Me Out


1984 (1)
1984 (1)

Ken Livingstone varð síðar frægur út um allan heim fyrir að vera borgar­stjóri í London. Fyrir rúmum 30 árum síðan var hann hins vegar að berjast fyrir því að borgarráð Lundúna yrði lagt niður með þessari áhrifa­ríku auglýsingu. Livingstone náði ekki markmiði sínu en auglýsingin færði stað­bundið deilumál yfir á þjóðar­vettvanginn.

1987: Labour’s Policy On Arms


1987
1987

Neil Kinnock, þáverandi leiðtogi Verkamanna­flokksins, gerði sjálfum sér mikinn afleik með því að leggja til í sjónvarps­viðtali í aðdrag­anda kosninganna að ef Sovét­ríkin myndu ráðast inn í Bretland þá ættu Bretar að berjast gegn innrásinni með skæru­hernaði. Ummælin þóttu bera með sér mikið vantraust til breska hersins og urðu andlag margra vel heppnaðra árásar­auglýsinga.

1992: Labour’s Tax Bombshell


1992
1992

Auglýsingin var gífurlega umdeild þar sem höfundar hennar reiknuðu út að ríkis­útgjöld myndu aukast um 35 milljarða punda ef stefnu­skrá Verkamanna­flokksins yrði að veruleika og deildu þeirri upphæð í fjölda Breta. En Saatchi & Saatchi og Íhalds­flokknum var alveg sama.

1999: Bliar


1999
1999

Íhalds­menn eru ekki vinsælir í Skotlandi og margir kannast við brand­arann um að það séu fleiri pöndur í Skotlandi en Íhalds­menn (pöndurnar eru tvær). Þeir hafa samt sem áður framleitt nokkrar eftir­minnilegar auglýsingar, og þessi, sem hinn lítt þekkta auglýsinga­stofa Yellow M gerði, vakti athygli langt út fyrir landamæri Skotlands. Hún skilaði líka stærsta kosninga­sigri Íhalds­manna fyrr og síðar í Skotlandi og gerði það að verkum að William Hague, þáverandi formaður Íhalds­flokksins, réð Yellow M til starfa fyrir kosningarnar 2001.

2001: Be Afraid. Be Very Afraid


2001
2001

Auglýsingin var hönnuð af Trevor Beattie, manninum sem gerði "Hello Boys" auglýsingarnar fyrir Wonderbra-brjóstarhaldaranna, og markaði ákveðin tímamót fyrir Verkamanna­flokkinn í auglýsinga­gerð. Hann var allt í einu farinn að beita sömu meðölum í auglýsinga­gerð og dugað höfðu Íhalds­flokknum svo vel áratugina á undan. Og hann var að vinna. Auglýsingin sem sýndi William Hague með Thatcher-hár er sú eftir­minnilegasta og þótti skapa réttu neikvæðu hughrifin í huga kjósenda sem vildu allt annað en nýjan Thatcher-tíma.

2005: The Day Tory Sums Add Up


2000s UK The Labour Party Poster
2000s UK The Labour Party Poster

Skila­boðin voru einföld, sá dagur sem reiknings­dæmi Íhalds­manna í ríkis­fjármálum gengur upp þá munu svín fljúga. Auglýsingin olli á endanum meiri skaða en gagni fyrir Verkamanna­flokkinn þar sem birtingu hennar fylgdu ásakanir um gyðinga­hatur, en bæði Michael Howard og Oliver Letwin, sem eru á auglýsingunni, eru gyðingar. Hún er eftir­minnileg engu að síður.

2015: Vote Conservative


2015
2015

Þessi auglýsing skoskra íhalds­manna þykir skara framúr það sem af er yfir­standandi kosninga­baráttu. Henni er ætlað að sýna að atkvæði greitt Skoska þjóðar­flokknum í Skotlandi sé atkvæði greitt mögulegri samsteypu­stjórn hans og Verkamanna­flokksins. Og skila­boðunum er komið á framfærði án orða, með því að sýna Ed Miliband í brjóst­vasa Alex Salmond, fyrrum leiðtoga Skoska þjóðarflokkins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár