Skákmönnum misboðið vegna launa forseta Skáksambandsins

Ólga er innan íslenska skák­samfélagsins vegna launa Gunnars Björns­sonar sem eru ríflega 9 milljónir á ári. Til saman­burðar nema styrkir sambandsins til íslenskra skákmanna samtals 1,4 milljón króna. Meirihluti tekna Skák­sambandsins eru í formi styrkja frá ríki og borg.

Forseti Skáksambandsins
Forseti Skák­sam­bands­ins Kostn­aður við laun og launa­tengd gjöld Gunnars Björns­sonar var tæp­lega 10 millj­ónir króna í fyrra.

Skák­mönnum er misboðið vegna kostnaðar við laun Gunnars Björns­sonar, forseta Skák­sambands Íslands, sem námu samtals 9.472.754 krónum á síðasta ári. Það þýðir að launin, fyrir utan launa­tengdan kostnað sambandsins, séu á sjöunda hundrað þúsund krónur á mánuði. 

Til saman­burðar má nefna að heildar­gjöld félagsins fyrir það ár námu tæplega 47 milljónir og þar af voru styrkir til íslenskra skákmanna aðeins 1,4 milljónir. Stundin ræddi við skákmenn sem báðust undan að ræða málið undir nafni en sögðust þó allir að launin valdi mikilli gremju meðal skákmanna. Þeir segja að eðlilegra væri að sambandið styrkti unga skákmenn í meira mæli. 

Gunnar segir í samtali við Stundina að framlag ríkisins hafi verið hækkað nýverið gagngert til að hægt væri að hafa starfs­mann í fullu starfi. Hann telur laun sín eðlileg.

Hagnaður af Reykjavíkurskákmóti

Sé litið til sundur­liðunar á útgjöldum Skák­sambands Íslands sést að aðeins einn liður er hærri en laun og launa­tengd gjöld Gunnars og það er Reykja­víkur­skákmótið. Í fyrra var kostnaður við Reykja­víkur­skákmótið rétt ríflega 13 milljónir króna, saman­borið við launa­kostnað vegna Gunnars sem nam ríflega 9 milljónum króna. Líkt og fyrr segir koma nær allar tekjur Skák­sambands Íslands frá ýmist ríkis­sjóði eða Reykja­víkurborg. Í fyrra fékk félagið ríflega 23 milljónir í rekstrar­styrk af fjárlögum. Ágætis hagnaður var svo af Reykja­víkur­skákmótinu en samtals námu tekjur af því ríflega 14 milljónum. Hæsti styrkurinn vegna mótsins kom frá Reykja­víkurborg, sex og hálf milljón, en N1 styrkti mótið auk þess um tvær milljónir. Árið 2014 var halli félagsins í heild 745.372 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár