Píratar samþykkja róttæka sjávarútvegsstefnu og valda titringi

Píratar mælast enn stærstir í skoðana­könnunum. Þeir vilja að afla­heimildir verði boðnar upp til leigu á opnum markaði og að leigu­tekjurnar, sem gætu numið allt að 40 milljörðum á ári, renni í ríkissjóð til nýtingar í almanna­þágu. Popúlismi, segir þingmaður úr stjórnar­liðinu.

Píratar hafa samþykkt róttæka sjávar­útvegs­stefnu um að afla­heimildir verði boðnar upp til leigu á opnum markaði og leigu­gjaldið renni í ríkissjóð. „Allur afli skal fara á markað til að gera viðskipti með sjávar­útvegs­afurðir eðlilegri og bæta hag sjómanna, minni sjávar­útvegs­fyrirtækja og annara fyrir­tækja sem vinna með afleiddar afurðir,“ segir í tillögu sem lögð var fram á félaga­fundi þann 8. ágúst síðastliðinn og samþykkt einróma í internet­kosningu um helgina. 

Hér má lesa stefnuna í heild en yrði henni hrint í framkvæmd hefði það í för með sér umtals­verðar breytingar á fyrir­komulagi sjávar­útvegs­mála og myndi hlutdeild almennings í arðinum af fiskveiði­auðlindinni líklega aukast til muna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár