Endurskoðun siðareglna ráðherra taki mið af þyrluflugi eins þeirra

Tíu dæmi eru um að ráðherrar og aðrir ráðamenn fljúgi með loftförum Landhelgis­gæslunnar. Í nýrri skýrslu Ríkis­endur­skoðunar er það harðlega gagnrýnt en sérstaka gagnrýni fær Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir fyrir þyrluflug sitt með Gæslunni 2020, þegar hún skrapp úr hestaferð með fjöl­skyldunni á fund í Reykjavík.

Baðst afsökunar
Baðst afsök­unar Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir ráð­herra baðst á sínum tíma afsök­unar á flug­ferð­inni en ljóst er að Rík­is­end­ur­skoðun vill meira en það: nauð­syn­legt sé að setja nýja reglur. Mynd: xd.is

Einungis ein þyrla var tiltæk hjá Landhelgis­gæslunni þegar ákveðið var að skutla dómsmála­ráðherra fram og til baka á milli Reynis­fjöru og Reykja­víkur árið 2020. Níu önnur dæmi eru um að ráðamenn hafi verið farþegar um borð í flugförum gæslunnar. Ráðstöfunin er harðlega gagnrýnd í nýrri skýrslu Ríkis­endur­skoðunar um starfsemi gæslunnar.

Stundin greindi frá þyrluferð Áslaugar Örnu Sigurbjörns­dóttur, sem þá var dómsmála­ráðherra, í ágúst árið 2020. Hún hafði verið í hestaferð með fjöl­skyldu sinni en skroppið á fund í Reykjavík, þar sem hún var ekki meðal þeirra sem tóku til máls né tók hún þátt í vinnu­hópum á fundinum. 

Um þyrluflug ráðherrans segir í skýrslunni: „Ferðir ráðherra eða annarra einstaklinga með flugvélum, þyrlum eða skipum sem Landhelgis­gæslan hefur til umráða, í einka­erindum, eru alvarlega athugunar­verðar.“ 

„Tæki stofn­un­ar­innar eru örygg­is­bún­aður sem keyptur er eða leigður sem tæki til lög­gæslu og björg­un­ar­starfa til hags­bóta fyrir almenn­ing …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    "Hvítvínskonan" verður aldrei hvítþvegin af þessari þyrluferð.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár