Sainsbury´s jarðaði John Lewis í keppninni um bestu jólaauglýsinguna

Árum saman hefur breska verslunar­keðjan John Lewis nálgast jóla­markaðs­setningu sína með því að búa til sæta en eftir­minnilega sjónvarps­auglýsinga­sögu um einhvern sem gerir eitthvað til að gera jólin betri fyrir einhvern annan. Þessi leið hefur gefist vel fyrir John Lewis og ár hvert er auglýsingar keðjunnar beðið með eftir­væntingu og mikið gert úr henni í breskum fjöl­miðlum. Jólasögu­þemað hefur líka smitast yfir til annarra landa, meðal annars Íslands, eins og má til dæmis sjá í jóla­auglýsingu Icelandair þetta árið.

https://www.youtube.com/watch?v=iccscUFY860

Í ár fékk John Lewis hins vegar samkeppni. Stórmarkaðs­keðjan Sainsbury´s var orðin leið á því að athyglin fyrir bestu jóla­auglýsinguna félli alltaf á sama stað og ákvað að ráðast í hugmynd sem daðrar við að vera auglýsingalegt stórvirki.

Auglýsingin setur á svið aðfangadags­kvöld árið 1914, þegar fyrri heim­styrjöldin var nýhafin. Hún sýnir breska og þýska hermenn, sem börðust hatramm­lega gegn hvorum öðrum í stríðinu, fagna jólunum stuttlega saman líkt og ekkert stríð hafi geisað. Í aðal­hlutverki er síðan súkkulaði­stykki, og auðvitað var hægt að kaupa slíkt súkkulaði­stykki í verslunum Sainsbury´s fyrir jólin.

https://www.youtube.com/watch?v=NWF2JBb1bvM

Auglýsingin var gerð í samstarfi við góðgerðar­samtökin Royal British Legion, sem veita fyrrum hermönnum í breska hernum og fjöl­skyldum þeirra stuðning, og rennur allur söluágóði af súkkulaðinu góða, sem kostar eitt pund, til samtak­anna. Breskir fjöl­miðlar hafa hampað Sainsbury´s fyrir auglýsinguna frábæru og lýst keðjuna sem sigurvegara í jóla­auglýsinga­keppninni 2014.

Súkkulaðið góða sem fæst í Sainsbury´s.

Súkkulaðið góða sem fæst í Sainsbury´s.
Súkkulaðið góða sem fæst í Sains­bury´s.

Sainsbury´s skákaði því John Lewis, all rosalega þetta árið og það verður áhugavert að sjá hvernig síðarnefnda fyrir­tækið bregst við að ári.

Báðar auglýsingarnar hafa gengið afar vel í netheimum og þar hefur John Lewis, enn sem komið er, vinningin ef stuðst er við áhorfs­tölur. Alls hafa rúmlega 21 milljón manns horft á mörgæsina Monty og vin hans á meðan að hermennirnir hressu og súkkulaði­stykkið þeirra er með 15,6 milljón áhorf á Youtube.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár