Logi kallar umræðu um Kristrúnu „atlögu að lýðræði“

Logi Einarsson, formaður Samfylk­ing­ar­innar, sagði „dagblöð sérhagsmuna­aflanna“ gera aðför að lýðræðinu með sérkröfum á hendur Kristrúnu Frosta­dóttur um að gefa upp upplýsingar um fjárhag sinn, eftir fréttir af hátt í 100 milljóna króna hagnaði hennar af kaupréttar­samningum. Kristrún sagðist hins vegar áður skilja gagn­rýnina.

Logi Einarsson
Logi Ein­ars­son Sagði umfjöllun um fjár­mál Kristrúnar Frosta­dóttur ótrú­lega í leið­togaum­ræðum á RÚV í kvöld. Mynd: RÚV

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segir umfjöllun hagsmuna­tengdra fjölmiðla um fjármál Kristrúnar Frosta­dóttur, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík suður, vera „aðför að lýðræðinu“. 

Kristrún svaraði ekki blaða­manni Viðskipta­blaðsins sem vann frétt um hagnað hennar af kaupréttar­samningi þegar hún starfaði í Kviku banka, en hann er sagður hafa nálgast 100 milljónir króna. Kristrún brást síðan harkalega við umfjölluninni.

„Saman­tekin ráð virðast nú vera hjá MBL og Viðskipta­blaðinu að gefast upp á að ræða um mína pólitík á efnis­legum grunni og reyna nú bara að keyra konuna niður með smjör­klípum, óhróðri, gera lítið úr jafnaðar­manna­skoðunum mínum,“ sagði hún á Twitter.

Hæfileikarík kona þurfi að svara meiru

„Hefði ekki verið eðlilegast að koma strax fram og svara þessum spurningum,“ var Logi spurður í leiðtoga­umræðum á RÚV í kvöld, „í stað þess að grípa til klækjustjórnmála og saka blaðamenn um undarlegar hvatir“?

„Mér finnst eiginlega alveg ótrúlegt að ung kona, hæfileikarík kona, sem hefur ótrúlega margt fram að færa í umræðunni núna fyrir kosningar, sé krafin af dagblöðum sérhagsmuna­aflanna um að gefa meiri upplýsingar um sinn persónu­legan fjárhag heldur en nokkur annar stjórn­málamaður hefur þurft að gera. Kristrún Frosta­dóttir hefur svarað og svarið hennar stendur. Samfylkingin er hins vegar vön þessu úr þessum áttum sem þetta kemur. Og við tökum þessu bara af æðruleysi.“

„Hræðsluáróður og atlaga að lýðræðinu“

Þegar Baldvin Þór Bergsson, frétta­maður RÚV, sagði að Samfylkingin hefði áður gagnrýnt ef eitthvað teldist  „undarlegt í fjármála­fortíð hjá öðrum stjórn­málaflokkum“, sagði Logi óboðlegt að hún þyrfti að gefa meiri upplýsingar en aðrir og ekki hafi verið um neitt misferli að ræða.

„Það er óboð­legt að hún sé krafin um meiri upp­lýs­ingar um sinn fjár­hag, heldur en aðrir hérna við borðið.“
Logi Ein­ars­son

„Þessu var öllu svarað. Við höfum stigið fram þegar fólk hefur verið uppvíst að misferli. Hér var ekki um neitt slíkt að ræða. Ég endurtek, að það er óboðlegt að hún sé krafin um meiri upplýsingar um sinn fjárhag, heldur en aðrir hérna við borðið. Og ég vil kalla þetta næstum því einhvers konar hræðslu­áróður og atlögu að lýðræði til þess að hræða ungt og hæfileika­ríkt fólk frá því að taka þátt í stjórn­málum. Og ég tek ekki þátt í því og styð hana.“

Kristrún segir kaupréttarkerfið ekki sanngjarnt

Kristrún sagði í samtali við Stundina að hún teldi að fólk sem væri í þeirri stöðu að njóta kauprétta ætti að greiða meira til samfélagsins, enda fengju ekki allir sömu tækifæri. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að einstaklingar sem eru í þessari stöðu séu meðvitaðir um það og séu þá tilbúnir að leggja meira til samfélagsins vegna þess að mjög eðlilega hugsar fólk þarna úti: Ég fékk ekki þessi tækifæri og ég get ekki ávaxtað mitt fé á sömu forsendum ...“

Þá sagði Kristrún kerfið ekki vera byggt upp með sann­gjörnum hætti. „Þannig að ég get kannski ekki farið út í díteila um það en ég á ekkert erfitt með að fullyrða það að mér finnst ekki sann­gjarnt hvernig kerfið er uppbyggt, það liggur alveg fyrir.“ 

Hún neitar að svara um hagnað sinn af kaupréttar­samningum og vill ekki ganga svo langt, í svörum sínum til Stundarinnar, að segja að hún muni beita sér gegn slíkum samningum, verði hún fjármála­ráðherra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár