Geðþóttatollar Trumps felldir

Hæstiréttur Banda­ríkjanna úrskurðar tolla forsetans á grund­velli neyðar­laga ólögmæta. Tollar verða ennþá háir og Trump getur enn lagt á tolla.

Tollarnir kynntir
Toll­arnir kynntir Banda­ríkja­for­seti kynnir tolla á mis­mun­andi ríki og svæði 2. apríl 2025 undir for­merkj­unum Make America Wealthy Again, eða auðgum Banda­ríkin á ný. Mynd: AFP

Hæstiréttur Banda­ríkjanna úrskurðaði í dag að Donald Trump hefði farið út fyrir valdsvið sitt með því að leggja á fjölda tolla sem raskað hafa alþjóða­viðskiptum. Þar með var lokað fyrir mikilvægt tæki sem forsetinn hefur beitt til að koma efnahags­stefnu sinni í framkvæmd.

Hæstiréttur, þar sem íhalds­samir dómarar eru í meirihluta, kvað upp úrskurð sinn með sex atkvæðum gegn þremur og sagði að neyðarlög um alþjóðleg efnahagsmál (IEEPA) „heimili ekki forsetanum að leggja á tolla“.

Engu að síður verða tollar í Banda­ríkjunum áfram þeir hæstu frá árinu 1946, eða að meðaltali 9,1%, samkvæmt New York Times. Og Trump mun enn geta lagt á tolla, en með breyttu sniði og meira ferli.

Þótt Trump hafi lengi beitt tollum sem þrýsti­afli og í samninga­viðræðum, nýtti hann sér neyðar­heimildir í efnahags­málum á fordæma­lausan hátt þegar hann tók aftur við forseta­embættinu á síðasta ári til að leggja nýja tolla á nánast alla viðskipta­aðila Banda­ríkjanna.

Þar á meðal voru „gagnkvæmir“ tollar vegna viðskipta­hátta sem stjórn­völd í Washington töldu ósann­gjarna, auk sérstakra tolla sem beindust að helstu viðskipta­löndunum Mexíkó, Kanada og Kína vegna flæðis ólöglegra fíkniefna og innflytjenda­mála.

Dómstóllinn benti á að „hefði þingið ætlað að veita hið sérstaka og óvenju­lega vald til að leggja á tolla“ með IEEPA-lögunum, „hefði það gert það með skýrum hætti, eins og það hefur stöðugt gert í öðrum tolla­lögum“.

Úrskurðurinn hefur ekki áhrif á sértæka tolla sem Trump hefur lagt á innflutning á stáli, áli og ýmsum öðrum vörum. Formlegar athuganir sem gætu á endanum leitt til fleiri slíkra sértækra tolla eru enn í vinnslu.

Ákvörðun Hæstaréttar stað­festir fyrri niður­stöður lægri dómstiga um að tollar sem Trump lagði á samkvæmt IEEPA-lögunum hafi verið ólöglegir.

Lægri dómstig í viðskipta­málum hafði úrskurðað í maí að Trump hefði farið út fyrir valdsvið sitt með allsherjar­álagningu og komið í veg fyrir að flestir tollarnir tækju gildi, en þeirri niður­stöðu hafði verið frestað á meðan ríkis­stjórnin áfrýjaði málinu.

Takmarkar geðþótta

Að fella niður neyðar­tollana „takmarkar metnað forsetans til að leggja á allsherjar­tolla að geðþótta,“ sagði Erica York hjá Tax Foundation, sem eru óhagnaðar­samtök um skatta­stefnu.

En hann hefði samt önnur lög til að beita fyrir tollum, jafnvel þótt þau séu yfirleitt takmarkaðri að umfangi – eða krefjist sérstakra ferla eins og rannsókna – sagði York í samtali við AFP.

„Úrskurðurinn tekur í sundur laga­stoðirnar, en ekki bygginguna sjálfa,“ sögðu sérfræðingarnir Carsten Brzeski og Julian Geib hjá ING um viðskipta­hömlur Trumps.

Tollar gagnvart Kanada haldast

Úrskurður Hæstaréttar Bandaríkjann stað­festir að tollarnir hafi verið „órökstuddir“, sagði kanadíski ráðherrann sem ber ábyrgð á viðskiptum við Banda­ríkin.

Dominic LeBlanc, ráðherra alþjóða­viðskipta, benti þó á að tollar sem valda mestum skaða í Kanada – sértækar aðgerðir sem hafa áhrif á stál-, ál- og bíla­iðnaðinn – væru enn í gildi þrátt fyrir úrskurðinn og lofaði því að stjórn­völd í Ottawa myndu vinna með Trumpstjórninni að því að „skapa vöxt og tækifæri beggja vegna landa­mæranna“.

Vinna með Bandaríkjunum

Bretar ætla að vinna með Banda­ríkjunum að því að sjá hvernig niður­felling á tollum Trumps mun hafa áhrif á viðskipta­samning landanna tveggja, sagði talsmaður ríkis­stjórnarinnar í dag.

„Við munum vinna með stjórn­völdum til að skilja hvernig úrskurðurinn mun hafa áhrif á tolla fyrir Bretland og umheiminn,“ sagði tals­maðurinn og bætti við að Bretar byggjust við að „bestu viðskipta­kjör þeirra gagnvart Banda­ríkjunum haldist“.

Evrópu­sambandið boðaði í dag að það væri að kanna úrskurðinn.

„Við tökum eftir úrskurðinum ... og erum að greina hann vandlega,“ sagði Olof Gill, talsmaður ESB í viðskipta­málum.

„Við erum áfram í nánu sambandi við bandarísk stjórn­völd þar sem við leitumst eftir skýrleika um þau skref sem þau hyggjast taka til að bregðast við þessum úrskurði,“ bætti hann við. „Fyrirtæki beggja vegna Atlantshafsins eru háð stöðug­leika og fyrirsjáanleika í viðskipta­sambandinu“.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár