Plakötum af Hauki dreift í Aþenu

Enn er ekki vitað um afdrif Hauks Hilmars­sonar, sjö mánuðum eftir meint andlát hans í sprengju­árás tyrkneska hersins.

Plakötum með mynd af Hauki Hilmars­syni, sem talinn er hafa fallið þegar Tyrkir réðust inn í Afrin-hérað í Sýrlandi fyrr á þessu ári, hefur verið dreift í Aþenu, höfuðborg Grikk­lands. Er Haukur kallaður píslar­vottur Afrin og plakötin merkt helstu aðilum sem berjast gegn innrás tyrkneska hersins í héraðið. Myndum af plakötunum hefur verið dreift á Twitter.

Enn er ekkert vitað um afdrif Hauks rúmum sjö mánuðum eftir að fregnir bárust um meint andlát hans í sprengju­árás tyrkneska hersins. Haukur var sagður hafa farið til Sýrlands í gegnum tengsl við grískan anarkistahóp til að berjast með Kúrdum gegn ISIS. Íslensk yfirvöld hafa verið gagnrýnd fyrir linkind og meðvirkni gagnvart Tyrklands­stjórn, en Tyrkland er bandalags­ríki Íslands innan NATO auk þess sem Réttlætis- og framfara­flokkur Recep Tayyip Erdoğan Tyrklands­forseta er systur­flokkur Sjálfstæðis­flokksins í Evrópu­samtökum íhalds- og umbóta­sinna.

Plakat með mynd af HaukiHaukur er sagður písl­ar­vottur í Afrin á plakati í höf­uð­borg Grikk­lands.

Fjöldi þjóð­þekktra Íslendinga sendi Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra opið bréf þann 23. apríl síðastliðinn, kallaði eftir metnaðar­fyllri aðgerðum og gerði athuga­semdir við að svo virtist sem rannsókn utan­ríkis­ráðuneytisins á hvarfi Hauks hefði verið framkvæmd „með sem minnstri fyrirhöfn og með það fyrir augum að styggja ekki tyrknesk yfirvöld – þau sömu og talin eru hafa sært, handsamað eða jafnvel myrt Hauk“. Katrín hefur því svarað að málið sé í algjörum forgangi hjá utan­ríkis­þjónustunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár