Gagnrýna Katrínu og VG fyrir NATO-fund: Andstaðan kannski fyrst og fremst táknræn?

Formaður Eflingar og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar beina athygli sinni að nýyf­ir­stöðnum leið­toga­fundi Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og gagn­rýna for­mann VG fyrir orð hennar í fjöl­miðlum eftir fund­inn.

Sólveig Anna Jónsdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Guðmundur Andri Thorsson.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, Katrín Jak­obs­dóttir og Guð­mundur Andri Thorsson. Mynd: Bára Huld Beck/Samsett mynd

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna (VG), sótti leið­toga­fund Atl­ants­hafs­banda­lags­ins (NATO) sem fram fór í höf­uð­stöðvum banda­lags­ins í Brussel í gær. Ekki eru allir sáttir við orð og gjörðir Katrínar á fund­inum í ljósi þess að í stefnu­skrá VG um alþjóða- og frið­ar­mál segir að flokk­ur­inn leggi áherslu á að Ísland segi sig úr NATO.

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar skrifar í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni að Katrín hafi árum saman „fengið frið­ar­sinna og and-heims­valda­sinna til að kjósa flokk­inn út á stefnu um frið­söm sam­skipti á milli þjóða og fólks, út á stefnu sem hafn­aði inn­rásum og ofbeldi Vest­ur­landa gagn­vart „hinum“.“

Vísar hún í frétt mbl.is um leið­toga­fund­inn þar sem for­sæt­is­ráð­herr­ann sagði að Joe Biden for­seti Banda­ríkj­anna væri að koma mjög sterkt inn í Atlants­hafs­banda­lagið eft­ir und­an­far­in ár. „Hann kom því mjög skýrt til skila að þetta skipti miklu máli fyr­ir Banda­rík­in, þetta banda­lag og sam­starf við önn­ur vest­ræn ríki, þannig að það var mjög sterk inn­koma get­um við sagt. Eins var mjög mikið rætt um mik­il­vægi þess að standa vörð um lýð­ræði og mann­rétt­indi,“ sagði Katrín í sam­tali við mbl.is.

Sólveig Anna segir Katrínu tjá sig „eins og íþrótta-blogg­ari um rasíska stríðs-æsinga „inn­komu“ Banda­ríkja­for­seta“.

„Auðvitað ætla ég ekki að láta eins og ég sé ægi­lega sjokkeruð, áfallið sem ég varð fyrir þegar VG og Sam­fylk­ingin studdu inn­rás­ina í Líbíu kenndi mér lex­í­una sem ég þurfti að læra um íslenska real-póli­tík og hversu ógeðs­lega sið­laus hún er, en ég við­ur­kenni að skömmin sem ég upp­lifi þegar ég les þetta aumk­un­ar­verða orða­sal­ats-röfl er inni­leg yfir því að hafa raun­veru­lega trúað því að VG-fólk meinti orð af því sem það sagði,“ skrifar hún.

Fjallaði sérstaklega um afvopnunarmál

Katrín sagði við mbl.is að leið­toga­fund­ur­inn hefði gengið vel og að margir hefðu haft orð á því hversu ánægju­legt væri að geta komið sam­an í eig­in per­sónu.

Hún sagði jafn­framt að ný netör­ygg­is­stefna hefði verið sam­þykkt ásamt nýrri aðgerða­á­ætl­un í lofts­lags­mál­um sem og til­lög­ur Jens Stolten­bergs, fram­kvæmda­stjóra Atlants­hafs­banda­lags­ins, sem mið­uðu að því að styrkja Atlants­haf­stengsl­in og efla póli­tískt sam­starf til að banda­lagið yrði enn bet­ur í stakk búið til að tak­ast á við ör­ygg­is­áskor­an­ir nútíðar og fram­tíðar.

Hún sagði að nokkuð hefði verið rætt um áætlan­ir banda­lags­ins um að breikka sitt verk­svið með því að meðal ann­ars að setja lofts­lags­mál­in á dag­skrá, fjalla um við­náms­þol aðild­ar­ríkj­anna og til­von­andi fund Joes Bidens for­seta Banda­ríkj­anna og Vla­dimírs Pútíns for­seta Rúss­lands.

„Ég lagði auð­vitað áherslu á af­vopn­un­ar­mál í því sam­hengi,“ sagði Katrín um sitt inn­legg á fund­in­um. Hún sagð­ist fagna vilja nýs for­seta Banda­ríkj­anna til að setja þau mál á dag­skrá og hvatti hann til dáða í þeim efn­um á kom­andi fundi. Fjallaði hún sér­stak­lega um kyn­bundið of­beldi, lofts­lags­mál ásamt af­vopn­un­ar­mál­um og lýð­ræðis­gildi í inn­leggi sínu á leið­toga­fund­in­um, að því er fram kemur í frétt­inni.

Leggja áherslu á að Ísland segi sig úr NATO

Vinstri græn hafa frá upp­hafi verið skýr í afstöðu sinni í frið­ar­málum en eins og áður segir kemur fram í stefnu­skrá flokks­ins um alþjóða- og frið­ar­mál að VG leggi áherslu á að Ísland segi sig úr NATO. Jafn­framt segir að flokk­ur­inn leggi áherslu á að Ísland verði frið­lýst fyrir kjarn­orku­vopnum og und­ir­riti sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna um bann við þeim.

„Ekkert er jafn skað­legt fyrir umhverfið, vel­ferð og heilsu fólks og hern­aður. Ísland á ekki að hafa her, hvorki inn­lendan né erlendan. Það á að standa utan hern­að­ar­banda­laga og hafna víg­væð­ingu á alþjóða­vett­vangi. Stríð og hern­aður leysa engin vanda­mál, þótt hern­að­ar­sinnar haldi því fram að barist sé fyrir friði og mann­rétt­indum. Auk þess er víg­væð­ing og hern­aður gegnd­ar­laus sóun auð­linda og lífa,“ segir í stefnu­skrá VG.

NATO helsta hindrunin í vegi þess að Ísland skrifi undir sáttmála um bann við kjarnorkuvopnum

Lands­fundur Samtaka hern­að­ar­and­stæð­inga, sem hald­inn var í lok maí síð­ast­lið­ins, krafð­ist þess að íslensk stjórn­völd und­ir­rit­uðu sátt­mála Sam­ein­uðu Þjóðanna um bann við kjarn­orku­vopnum sem öðl­að­ist gildi 22. jan­úar síð­ast­lið­inn.

„Yfir­gnæf­andi meiri­hluti Íslend­inga í öllum flokkum styður und­ir­ritun sátt­mál­ans og fjöl­mörg félaga­sam­tök úr öllum geirum hafa hvatt til þess. Við hvetjum stjórn­mála­flokka og fram­bjóð­endur til Alþingis til að taka und­ir­ritun sátt­mál­ans upp fyrir næstu kosn­ingar svo Ísland geti gengið í lið með þeim 54 löndum sem hafa bannað kjarn­orku­vopn og hverskyns flutn­ing á þeim, eða stuðn­ing við fram­leiðslu þeirra og dreif­ingu. Í því sam­hengi er minnt á að Nató er kjarn­orku­banda­lag og helsta hindr­unin í vegi þess að Ísland skrifi undir sátt­mál­ann,“ segir í álykt­un­inni.

Margt í íslenskri pólitík einungis táknrænt

Guð­mundur Andri Thorsson þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gerði fund­inn einnig að umtals­efni á Facebook-síðu sinni í morgun.

„Les um það að Katrín Jak­obs­dóttir sé á NATO-fundi og meðal erinda hennar þar sé að funda með Ursulu von der Leyen til að biðja hana að gleyma ekki Íslandi,“ segir hann og vísar í frétt RÚV um málið þar sem fram kemur að Katrín hafi notað tæki­færið til að minna á mik­il­vægi þess að sem EFTA-ríki væri Ísland aðili að EES-samn­ingnum og mjög mik­il­vægt væri að gæta hags­muna Íslend­inga gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu.

Segist hann ekki efast um að Katrín sé landi og þjóð til mik­ils sóma þar ytra eins og endranær en „óneit­an­lega verður manni hugsað til þess hvort Nató-and­staða flokks­ins hennar sé meira tákn­ræn en raun­veru­leg“.

Þing­mað­ur­inn bendir á að margt í íslenskri póli­tík sé ein­ungis tákn­rænt og til þess að tryggja atkvæði – og snú­ist síður um raun­veru­leg úrlausn­ar­efni fyrir raun­veru­legt fólk í raun­veru­leik­anum. „Báknið er tákn, bæði hjá Sjöllum og Mið­flokki svo dæmi sé nefnt. Manni finnst stundum að stjórn­málin mættu snú­ast meira um lífs­kjör almenn­ings.“

Spyr hann hvort NATO-and­staðan hjá VG sé kannski fyrst og fremst tákn­ræn og til þess að und­ir­strika sér­stöðu sína gagn­vart Sam­fylk­ing­unni í augum kjós­enda. „Eða finnst fólki það lík­legt að VG ætli sér í raun og veru að standa fyrir útgöngu úr Nató?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár