Straumur flóttamanna til Evrópu: IKEA rúm og dýnur eru að klárast í Svíþjóð og Þýskalandi

IKEA verslanir í Svíþjóð og Þýska­landi hafa vart undan vegna mikillar eftir­spurnar eftir rúmum og dýnum.

Verslanir IKEA í Svíþjóð og Þýska­landi hafa vart undan að selja rúm, dýnur og sængur vegna sögulegs fjölda flótta­manna sem komið hafa til landanna á undan­förnum mánuðum. Ef fram fer sem horfir munu birgðir klárast í mörgum verslunum, samkvæmt frétt Bloomberg um málið.

IKEA hefur útvegað sveita­félögum í Svíþjóð rúm og dýnur til handa hælis­leitendum. Um 120 þúsund manns hafa leitað hælis í Svíþjóð í ár. Þýskaland hefur verið vinveittast flótta­fólki sem ferðast hefur til Evrópu, margir hverjir frá stríðs­átökum í Sýrlandi. Miðað við íbúa­fjölda hefur Svíþjóð aftur á móti tekið á móti flestum hælis­leitendum, samkvæmt umfjöllun fjöl­miðilsins Quartz.

Talið er að alls hafi um 700 þúsund flúið hörmungar í heima­landi sínu og lagt leið sína til Evrópu á þessu ári, frá Sýrlandi, Erítreu, Afganistan, Írak og fleiri löndum. Evrópu­ríkin hafa, vægast sagt, átt í pólitískum erfið­leikum með að taka á móti fólkinu og stefna ríkja álfunnar hefur á tíðum verið gerólík. Kólnandi veður hefur ekki hægt á straumi flótta­fólks til Evrópu til þessa, og óttast margir að ástandið verði enn erfiðara þegar vetur skellur á af fullum þunga í álfunni. „Veður versnar hraðar heldur en geta leiðtoga til að taka mikil­vægar ákvarðanir,“ segir í ítarlegri umfjöllun Guardian um stöðu mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár