NASA segist hafa fundið vatn á Mars - bein útsending

Yfir sumar­tímann flæðir vatn niður gljúfur og kletta á plánetunni Mars. Þetta segja vísinda­menn hjá NASA, geim­vísinda­stofnun Banda­ríkjanna. Uppgötvunin eykur líkurnar á því að einhvers konar líf geti þrifist þar, hefur breska blaðið Guardian eftir Michael Meyer, yfirmanni hjá NASA.

„Það er vatn í fljótandi formi í dag á yfirborði Mars,“ sagði Meyer við Guardian. „Vegna þessa, grunar okkur að það sé að minnsta kosti mögulegt að hafa lífvænlegt umhverfi þar í dag.“

Það er enn óljóst hvaðan vatnið kemur. Það gæti hafa komið úr andrúms­loftinu eða jörðinni, eða bæði.

Nú fer fram blaðamanna­fundur þar sem NASA kynnir uppgötvanir sínar, sem horfa má á í spil­aranum hér að neðan.

https://youtu.be/MDb3UZPoTpc

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár