Nýsjálendingur prentaði minnstu borvél í heimi - og hún virkar!

Nýsjá­lend­ingurinn Lance Abernethy, sem starfar sem viðgerðar­maður hjá verksmiðju í Auckland, fékk flugu í höfuðið á dögunum og réðst í að þrívíddar­prenta minnstu borvél í heimi. Ekki nóg með það, heldur virkar borvélin líka eins og til var ætlast. Frétta­miðillinn Quartz greinir frá uppá­tækinu, en frétta­síðan 3dprint.com, sem sérhæfir sig í fréttum af þrívíddar­prentunum, sagði fyrst frá málinu.

Abernethy notaði borvél í fullri stærð, sem hann notast mikið við, sem eftirmynd. „Ég reyndi að gera hana eins litla og mögulegt er, og tróð íhlutunum eins þröngt inn í borvélina og ég gat,“ er haft eftir uppátækja­sama Nýsjá­lendingnum í umfjöllun 3dprint.com.

Hér má glögglega sjá hversu lítil borvélin er, og hvernig íhlutum hennar hefur verið komið fyrir.

Hér má glögglega sjá hversu lítil borvélin er, og hvernig íhlutum hennar hefur verið komið fyrir.
Hér má glögg­lega sjá hversu lítil bor­vélin er, og hvernig íhlutum hennar hefur verið komið fyrir.

Það tók um 25 mínútur að þrívíddar­prenta borvélina, í þremur hlutum. Fyrst var borvélin prentuð í tveimur helmingum, og svo var lítill íhlutur prentaður sem settur var framan á agnars­mátt „vélar­húsið.“ Abernathy notaði svo litla rafhlöðu úr heyrnar­tæki sem orkugjafa og agnarsmáan mótor og setti inn í prentaða borvélina. Til að tengja saman vélbúnaðinn notaði hann svo vír úr snúru úr heyrnar­tólum.

„Það tók mig um þrjá klukku­tíma að troða vélbúnaðinum inn í borvélina. Vírinn var alltaf að slitna þegar ég var að reyna að tengja íhlutina saman, og það var algjör martröð að halda þeim öllum á sínum stað án þess að klára rafhlöðuna,“ segir Abernethy.

Borvélin er 17 milli­metrar á hæðina og 7,5 milli­metrar á breidd. Hún er með 0,5 milli­metra bor sem getur borað sig í gegnum mjúka mótstöðu. „Ég hef séð myndir af borvél, sem taldar eru minnstu sinnar tegundar í heiminum, en ég veit að mín er minni án þess að hafa fengið það staðfest.“

Sjáið virkni borvélarinnar í mynd­bandinu hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár