Drífa: Kemur ekki á óvart að reynt sé að misnota úrræðið

Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir að það komi sér ekki á óvart að fyrirtæki reyni að misnota hluta­bótaleiðina. Hún segir að nú sé verið að skoða til hvaða aðgerða hægt sé að grípa. Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, segist telja að því miður sé um að ræða einbeittan brota­vilja í einhverjum tilvikum

Sólveig Anna Jónsdóttir og Drífa Snædal
Sólveig Anna Jóns­dóttir og Drífa Snædal Þær segja að tals­vert sé um að atvinnu­rek­endur mis­noti hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu.

Það kemur Drífu Snædal, forseta ASÍ, ekki á óvart að fyrirtæki reyni að misnota hluta­bótaleiðina sem kynnt var í síðustu viku. Hún segir fjöldann allan af tilkynningum hafa borist sambandinu um að fólk hafi verið fært niður í 25% starfs­hlutfall að nafninu til þannig að ríkið greiði 75% af laununum, en sinni síðan fullu starfi. Drífa segir að nú sé verið að skoða til hvaða aðgerða hægt sé að grípa.

Efling vakti athygli á þessu á vefsíðu sinni í gær en samkvæmt nýjum lögum um rétt til greiðslu atvinnu­leysis­bóta samhliða minnkuðu starfs­hlutfalli vegna tíma­bundins mögulegs samdráttar í starfsemi vinnu­veitenda vegna kóróna­veirunnar, verða fólki með allt að 400.000 krónur í mánaðar­laun tryggðar fullar tekjur.

Lögin kveða á um að laun þeirra sem eru með hærri mánaðar­laun geta aldrei samanlagt numið hærri fjárhæð en 90% af meðaltali heildar­launa, miðað við þriggja mánaða tímabil áður en launa­maður missti starf sitt að hluta og bæturnar koma úr atvinnu­trygginga­sjóði. Með þessu móti geta fyrirtæki sem draga saman seglin á næstu vikum þannig haldið ráðningar­sambandi við starfs­fólk sem ekki hefur verkefni.  

„Okkur hafa borist ábendingar um þetta frá fólki í allflestum starfs­greinum og það er yfirleitt fólkið sjálft, sem verður fyrir þessu, sem sendir okkur þessar ábendingar,“ segir Drífa. „En það þarf að hafa í huga að hugsanlega gæti gætt einhvers misskilnings varðandi þetta úrræði og við munum á næstunni reyna að leiðrétta hann með öllum hætti.“

Grípa þarf til aðgerða sem fyrst

Spurð hversu margar ábendingarnar séu segir Drífa að það verði ekki gefið upp að svo stöddu,  „En þær eru það margar að við teljum að grípa þurfi til aðgerða sem fyrst og upplýsa um að þetta sé ekki í boði.“

Drífa segir að ASÍ hafi rökstuddan grun um að fyrirtæki, sem ekki eigi í neinum greiðslu- eða rekstrar­erfiðleikum af neinu tagi, nýti sér nú þessa leið. „Við höfum heyrt af því að fyrirtæki telji sig eiga rétt á þessu til að eiga borð fyrir báru, ef ske kynni að þau myndu lenda í erfið­leikum síðar meir. Þetta úrræði er ekki ætlað til þess, eins og fram hefur komið, heldur til að bregðast við þeim erfið­leikum sem atvinnu­lífið stendur frammi fyrir hér og nú.“

Spurð hvort það hafi komið henni á óvart að einhverjir skuli hugsanlega misnota sér þetta úrræði segir Drífa svo ekki vera. „Nei, því miður. Við óttuðumst að þetta myndi gerast. Þetta er það opið úrræði, þarna er verið að galopna fyrir skráningu á atvinnu­leysi að hluta til og það er ákveðin hætta sem fylgir svona aðgerðum.“

„Við höfum heyrt af því að fyrirtæki telji sig eiga rétt á þessu til að eiga borð fyrir báru, ef ske kynni að þau myndu lenda í erfið­leikum síðar meir“

Óprúttnir aðilar, segir Sólveig Anna

„Það er ekkert ólíklegt að þarna sé á ferð misskilningur hjá einhverjum atvinnu­rekendum. En ég tel því miður að um sé að ræða einbeittan brota­vilja í einhverjum tilvikum,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar.

„Þarna eru óprúttnir aðilar, ég ætla að leyfa mér að nota það orð, sem hafa í undan­förnu góðæri verið i rekstri sem því miður hefur gengið út á það að hámarka gróðann á sem skemmstum tíma með sem árangurs­ríkustum hætti. Það er einfald­lega partur af rekstrar­módelinu að leita allra leiða til taka sem mest til sín á kostnað vinnandi fólks og núna hefur sá möguleiki bæst við að taka sem mest til sín á kostnað samfélagsins alls.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

FréttirHlutabótaleiðin

Matvæla­fyrirtæki með eignar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bótaleiðina

Matvæla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eignarhalds­félags­félags á lágskatta­svæðinu Möltu sem sagt er hafa öll einkenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bótaleiðina. Framkvæmda­stjórinn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eignar­haldið á Möltu en segir að engin skilyrði vegna eignar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leiðarinnar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár