Silicor Materials dómi ekki áfrýjað

Frestur til að áfrýja dómi, sem felldi úr gildi ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar, rann út í gær.

Hvorki íslenska ríkið né Silicor Mater­i­als hafa áfrýjað dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, frá 16. Júní á þessu ári, en með honum var fyrri ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar - um að kís­il­ver Silicor Mater­i­als þyrfti ekki að fara umhverf­is­mat - felld úr gildi.

Frestur til að áfrýja dómnum til Hæsta­réttar rann út í gær, og því stendur nið­ur­staðan um að umhverf­is­mat þurfi að fara fram.

Ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar kom fram 25. apríl 2014, og var hún á þá leið að fyr­ir­huguð fram­kvæmd Silicor Mater­i­als Inc., á Grund­ar­tanga í Hval­fjarð­ar­sveit, skuli ekki háð mati á umhverf­is­á­hrifum. Með dómnum var hún felld úr gildi, eins og áður segir.

Í dómnum var fall­ist á það með stefn­endum að „veru­legir ann­markar“ hafi verið ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar. Sagði meðal ann­ars í dómnum að margt í ákvörð­un­inni stæð­ist ekki skoðun. „Varðandi úrgangs­myndun er í ákvörð­un­inni lögð áhersla á að hlið­ar­af­urðir nýt­ist sem sölu­vara og því sé um „lokað fram­leiðslu­ferli“ að ræða. Að mati dóms­ins fær sú full­yrð­ing vart stað­ist í ljósi þess að fyrir liggur að ryk kemur til með að ber­ast frá verk­smiðj­unni út í and­rúms­loftið auk salt­vatns í frá­rennsli. Hins vegar ber ákvörð­unin ekki með sér að lagt hafi verið sjálf­stætt mat á eðli fram­kvæmd­ar­innar með til­liti til stærðar og umfangs hennar, nýt­ingar nátt­úru­auð­linda, þar á meðal orku­auð­linda, eða slysa­hættu sem hún skapar,“ segir í dómnum.

Samkvæmt áformum sem kynnt hafa verið, er gert ráð fyrir að verk­smiðjan skapi um 450 störf full­búin og stuðli að efna­hags­legri upp­bygg­ingu á svæð­inu við Grund­ar­tanga.

Ekki liggur fyrir í hvaða far­veg und­ir­bún­ingur þessa verk­efnis fer nú, en gera má ráð fyrir að í ljósi þess að áfrýj­un­ar­frest­ur­inn rann út í gær, án þess dóm­ur­inn hafi farið inn á borð Hæsta­réttar, að Silicor Mater­i­als þurfi að fara með verk­efnið í gegnum umhverf­is­mat. Það ferli getur verið tíma­frekt, en þó mis­jafn­lega eftir því hversu vinnan við það er ítar­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár