Er „Hank“ frekasti maðurinn á Wall Street? - Vill bætur frá ríkinu

Mála­ferlum fyrr­verandi framkvæmda­stjóra tryggingarisans AIG, Maurice Greenberg sem oftast er nefndur Hank, gegn Seðla­banka Banda­ríkjanna lýkur brátt, en ný gögn voru lögð fram í málinu skömmu fyrir miðnætti síðastliðinn fimmtudag, að sögn New York Times. Hank heldur því fram að bandaríska ríkið hafi gengið of langt í því að lækka hlutaféð niður, þegar seðla­bankinn lagði fyrir­tækinu til 182 milljarða Bandaríkja­dala til þess að koma í veg fyrir gjaldþrot þess, en óttast var að allt fjármála­kerfi Banda­ríkjanna gæti farið með fyrir­tækinu niður.

Samkvæmt frásögn New York Times kemur fram í hinum nýju gögnum að lögmenn og ráðgjafar hafi lagt til við Seðla­banka Banda­ríkjanna að hann legði fyrir­tækinu til fé, en að ítrustu hagsmunir bandaríska ríkisins yrðu varðir, meðal annars með því að taka yfir hlutafé félagsins að mestu. Ben Bernanke, fyrr­verandi seðla­bankastjóri Banda­ríkjanna sem stýrði aðgerðum þegar fjármála­kreppan var dýpst haustið 2008, varð æfur þegar hann komst að því hversu stórtæk og áhættu­mikil veðmál AIG hafði tekið á skuldabréfa­markaði. Hann hefur sagt kröfur Greenberg og ákveðinna fyrr­verandi hluthafa AIG hreina „frekju“ og „með ólíkindum“ sé að þeir skuli dirfast að fara í mál gegn ríkinu sem bjargaði fyrir­tækinu.

Samkvæmt frásögn New York Times hafa það verið röksemdir lögmanna Seðla­banka Banda­ríkjanna, það er að ef ekki hefði komið til peninga­framlags skatt­greiðenda til AIG þá hefði fyrir­tækið orðið gjaldþrot, og líklega fleiri fyrirtæki líka, í ljósi umfangs vandamála hjá fyrir­tækinu. Þá hafa lögmenn Seðla­banka Banda­ríkjanna einnig bent á að AIG hafi hagnast um 23 milljarða Bandaríkja­dala á fjár­innspýtingunni, meðal annars vegna hagstæðra vaxta.

Lögmenn Greenberg halda því fram, meðal annars með tilvitnunum í tölvu­pósta milli forvars­manna AIG og seðla­bankans, að ekki hafi verið þörf á svo mikilli lækkun á hlutafé AIG. Samskiptin sem vitnað er til sýni það. Þessu neita lögmenn Seðla­banka Banda­ríkjanna, og segja þetta örvæntingar­fulla tilraun til þessa forðast að takast málefna­lega á við þá staðreynd að ef ekki hefði komið til peninga­framlags frá skatt­greiðendum, upp á 182 milljarða Bandaríkja­dala, þá hefði AIG orðið gjalþrota.

Dómur verður kveðinn upp í málinu í dómstóli í New York, innan tíðar, að því er segir í New York Times.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár