Heimskviður hverfa af dagskrá Rásar 1

Gera þarf breytingar á dagskrá Rásar 1 vegna hagræðingar­aðgerða hjá Ríkis­útvarpinu. Ein þeirra er sú að Heims­kviður, frétta­skýringar­þáttur um erlend málefni, verður ekki lengur á dagskrá á nýju ári. Einnig mun þurfa að endur­flytja meira efni.

Fréttaþættirnir Heimskviður verða ekki á dagskrá RÚV á nýju ári.
Frétta­þætt­irnir Heimskviður verða ekki á dag­skrá RÚV á nýju ári. Mynd: RÚV

Frétta­skýringa­þátturinn Heims­kviður, sem hefur verið á dagskrá Rásar 1 undan­farið rúmt ár, hættir göngu sinni í desember vegna hagræðingar­aðgerða hjá Ríkis­útvarpinu sem kalla á uppstokkun í dagskránni. Þetta stað­festir Þröstur Helgason, dagskrár­stjóri Rásar 1, við Kjarnann. Um er ræða þátt sem hefur miðlað ítarlegum umfjöllunum um erlend málefni.

Þröstur segir ljóst að einhverjar frekari breytingar verði á dagskrá Rásar 1 vegna þeirra hagræðingar­aðgerða sem Ríkis­útvarpið þurfi að ráðast í nú. „Við erum að vinna í þeim málum þessa dagana,“ segir Þröstur í skriflegu svari við fyrir­spurn blaða­manns.

Nýlega var þremur fastráðnum frétta­mönnum Ríkis­útvarpsins sagt upp störfum vegna hagræðingar­aðgerða og stöðu­gildum á frétta­stofu RÚV mun fækka um alls níu frá því sem var í upphafi þessa árs. Erlenda deild frétta­stofunnar hefur komið að vinnslu Heims­kviða ásamt dagskrár­gerðar­fólki Rásar 1, en þátturinn er í umsjón þeirra Birtu Björns­dóttur og Guðmundar Björns Þorbjörns­sonar.

Nýir fréttaþættir í hádeginu á virkum dögum

Þröstur segir að þrátt fyrir Heims­kviður sem slíkar séu að hverfa á braut verði erlendum frétta­skýringum áfram fundinn staður í dagskrá Rásar 1.

„Við erum að setja á dagskrá nýjan þátt í hádeginu sem heitir einfald­lega Hádegið. Þar er um að ræða frétta­þátt sem inni­heldur frétta­skýringar, þar á meðal erlendar í anda þeirra sem voru í Heims­kviðum, viðtöl og umræður,,“ segir Þröstur.

Áður­nefndur Guðmundur Björn og Katrín Ásmunds­dóttir munu hafa umsjón með nýja hádegis­þættinum í sameiningu. „Bæði eru þau Guðmundur Björn og Katrín ákaflega metnaðar­fullt útvarps­fólk sem við höfum mikla trú á. Við erum sannfærð um að þessi þáttur eigi eftir að styrkja verulega dagskrána og frétta­tengda umfjöllun á Rás 1,“ segir Þröstur í svari sínu til Kjarnans.

Í svari dagskrár­stjórans segir einnig að Rás 1 muni í upphafi næsta árs setja í loftið nýjan vikulegan þátt sem innihalda muni erlendar frétta­skýringar.

Munu þurfa að endurflytja meira efni en hingað til

Spurður út í aðrar breytingar sem verið sé að grípa til að grípa til Rás 1 til að minnka kostnað nefnir Þröstur að veður­fréttir í hádeginu verði framvegis lesnar af umsjónar­mönnum Hádegisins, en ekki sérfræðingum Veður­stofu Íslands.

Þá segir hann að ljóst sé að það muni þurfa að endur­flytja meira efni á Rás 1 en gert hefur verið hingað til.

„Það er mjög miður en sömuleiðis er það algerlega ljóst að ekkert er við því að gera þegar undan hallar í rekstrinum," segir Þröstur.

Stefán Eiríksson útvarps­stjóri sagði í umsögn sinni um fjár­laga­frumvarp ríkis­stjórnarinnar fyrr í mánuðinum að útlit væri fyrir að rekstrar­niðurstaða RÚV yrði 470 milljónum verri í ár en stefnt var.

Árið 2021 væri svo ráðgert að það vantaði yfir 600 milljónir króna í fjár­mögnun RÚV. Fyrir­sjáanlegt væri að þessu þyrfti að mæta með breytingum og samdrætti í dagskrár­gerð og frétta­þjónustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár