Stundin fjölgar útgáfu­­dögum

Frá og með nóvember­mánuði mun prent­útgáfa Stundarinnar koma út tvisvar í mánuði í stað einu sinni.

Frá og með nóvember­mánuði mun prent­útgáfa Stundarinnar koma út tvisvar í mánuði í stað einu sinni. Ákvörðun um aukna útgáfu­tíðni tekur mið af spurninga­könnun meðal áskrifenda sem send var með tölvu­pósti í lok október. Um 1.500 áskrifendur svöruðu könnuninni og töldu 86 prósent svarenda að hæfilegt væri að útgáfu­dögum Stundarinnar yrði fjölgað. 
Stundin heldur enn úti dagleg­um frétta­flutningi á fréttavef Stundar­innar, sem er að hluta lokaður öðrum en áskrifendum. 

Samhliða tvöföldun útgáfu­daga hækkar verð á prentáskrift, sem inni­felur vefáskrift, úr 950 kr. í 1.350 kr. á mánuði. Þá fer vefáskrift úr 750 kr. í 950 kr. á mánuði.

Einnig kom fram í áskrifenda­könnuninni að rúmlega 90 prósent svarenda kváðu líklegt að þeir myndu mæla með Stundinni við ættingja eða vini. Um 80 prósent svarenda töldu að Stundin væri betri en meðaltölu­blað annarra prent­miðla, en 15 prósent að þau væru svipuð.

Þegar nánar var spurt út í ánægju eða óánægju með efni blaðs­ins sögðust 94 prósent svarenda telja að vel tækist til með rann­sóknar­blaða­mennsku í Stundinni. 

Þegar opinna spurninga var spurt um hvaða efni viðkomandi þætti áhuga­verðast voru svörin fjöl­breytileg. „Mér finnast rann­sóknar­grein­arnar alltaf áhuga­verðastar. Og pistlarnir,“ sagði einn svarandi. „Mikilvægt að halda málum sem varða hagsmuni almennings á lofti, að mikilvæg málefni verði ekki svæfð. Haldið vöku ykkar og verið umfram allt málefnaleg og rökvís,“ sagði annar áskrifandi.

„Blaðið er gott í heildina, mætti skipta því í tvö blöð, þá hálfs­mána­ð­ar­lega. Þetta er svo mikið efni, takk,“ sagði enn annar.

Margar gagnlegar ábendingar, gagnrýni sem hvatningar, bárust í opnum spurningum í könnuninni sem verða nýttar af ritstjórn til áfram­­­haldandi þróunar á prent- og vefútgáfu Stundarinnar. „Þið eruð mikið með neikvæðar fréttir og prentaða útgáfan er mjög stór þannig að maður skoðar aldrei allt blaðið,“ kom fram í máli eins. „Haldið áfram á þessari braut það eru ekki margir óháðir frétta­miðlar á Íslandi í dag,“ sagði annar. „Haldið áfram gagn­rýninni umræðu um spillingu og valdhroka,“ sagði sá þriðji. Og enn annar: „Ef þið hættið að verða óháður miðill segi ég áskriftinni upp á stundinni :)“

Ritstjórn Stundarinnar þakkar gagnleg svör í spurninga­könnun til áskrifenda. Könnunin verður endur­tekin á næstu misserum til hliðsjónar við gæða­stjórnun og framþróun miðilsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár