Hlutabréf lækka í verði - Spenna fyrir fund Seðlabanka Bandaríkjanna

Hlutabréf og olía hafa lækkað í verði í dag og er áhyggjum vegna slaka í heims­búskapnum kennt um. Í Banda­ríkjunum eru allra augu á fundi Seðla­banka Banda­ríkjanna á miðvikudag, þar sem vaxta­ákvörðun bankans verður kunngjörð. Ekki er gert ráð fyrir að bankinn hækki vexti á þessu ári, að því er segir í um fjöllun Wall Street Journal í dag, en fyrr á árinu lét Janet Yellen, seðla­bankastjóri Banda­ríkjanna, hafa eftir sér að líklega hæfist vaxta­hækkunar­ferli síðar á árinu. Vöxtum hefur verið haldið við núllið í um átta ár núna, eða frá því þrengja tók verulega að á fjármála­mörkuðum heimsins, árið 2007.

Allt er þó forsendum háð, og þær breytingar sem orðið hafa á heims­búskapnum síðan, og ekki síst á hinu alþjóða­pólitíska sviði, hafa leitt til þess að meiri þrýstingur er nú á bankann að halda vöxtum niðri. 

Verð á hluta­bréfum í Banda­ríkjunum hefur fallið um ríflega eitt prósent í dag, og verð á olíu sömuleiðis. Verð á tunnu af hráolíu er nú um 44 Bandaríkja­dalir en fyrir um ári síðan var tunnan á tæplega 110 Bandaríkja­dali. Þessi skarpa verð­lækkun hefur haft mikil áhrif á olíuðinaðinn í heiminum, og einnig á verð á ýmsum öðrum hrávörum, og þá til lækkunar. Flestar spár geri ekki ráð fyrir dramatískum breytingum á olíuverði næsta árið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár