Þóttist lesa upp úr Kóraninum – hörð viðbrögð vegfarenda við ummælum úr Biblíunni

„Gæti verið að við séum aðeins of fljót að dæma annarra manna trúar­brögð þegar við ættum kannski að líta okkur nær?“ spyr Bjartmar Alex­and­ersson.

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, framkvæmda­stjóri og stofnandi Grænnar Framtíðar  og fram­bjóðandi í próf­kjörum Pírata, tók upp myndband þar sem hann les fyrir vegfarendur í miðbænum upp úr Gamla testamenti biblíunnar en þykist vera að lesa upp úr Kóraninum, trúarriti múslima.

Viðbrögð fólks voru af ýmsum toga. Nokkrir töldu einsýnt að fólk, sem styddist við trúarrit á borð við þetta, hlyti að vera stór­hættulegt. 

„Gæti verið að við séum aðeins of fljót að dæma annarra manna trúar­brögð, þegar við ættum kannski að líta okkur nær? Það er auðvelt að alhæfa og dæma heilan þjóð­félagshóp eftir því hvað stendur í trúarriti þeirra,“ skrifar Bjartmar á Facebook og bætir við: „Við snérum dæminu við með því að segja við fólk að við værum að lesa úr kóraninum þegar í raun og veru við vorum að lesa úr biblíunni og svörin voru hreint ótrúleg.“

Hér má sjá mynd­bandið í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár