Enn ein skotárásin á skóla í Bandaríkjunum - Einn látinn og þrír særðir

Einn er látinn og þrír særðir eftir skotárás á Háskólann í Arizona, en í honum eru 25 þúsund nemendur. Deilur milli tveggja hópa innan skólans stig­mögnuðust, á bílstæði á háskóla­svæðinu, þar til átján ára gamall piltur dró upp byssu, skaut einn til bana og særði þrjá. Lögregla handtók hann skömmu síðar, eftir að hann gafst upp þar sem hann var umkringdur lögreglu­mönnum.

Forseti skólans, Rita Cheng, segir að tilvikið sé einangrað og að skólahald verði áfram eins og ekkert hafi í skorist. Sorg sé í hjörtum allra þeirra sem séu í skólanum, segir í frétta breska ríkis­útvarpsins BBC.

Í síðustu viku skaut byssu­maður níu til bana í skólanum Umpqua Community College í Oregon ríki áður en hann tók líf sitt, eftir skot­bardaga við lögreglu. Hann hafði lengi glímt við geðsjúk­dóma en átti safn af byssum, sem hann hafði orðið sér út um með löglegum hætti.

Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, hyggst heimsækja skóla­svæðið í Oregon á næstunni, en hann hefur kallað eftir því, að byssu­löggjöfinni verði breytt í Banda­ríkjunum, til þess að vinna gegnum ótrúlegum fjölda skotárása.

https://www.youtube.com/watch?v=6wHrpspY9xI

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár