Áhöfnin á Tý bjargar 184 flóttamönnum við strendur Líbíu

Áhöfnin á varð­skipinu Tý bjargaði í gær 184 flótta­mönnum um borð í varð­skipið norður af ströndum Líbíu. Fólkið var á tveimur litlum gúmmí­bátum. Samkvæmt frétt á heimasíðu Landhelgis­gæslunnar var um frækilegt björgunarafrek að ræða.Til viðbótar tók Týr við 100 flótta­mönnum sem ítalskt varðskip hafði bjargað. Þeim var veitt aðhlynning um borð í Tý. Alls eru því 284 flótta­menn um borð í skipinu sem mun leggja að höfn í Augusta á Sikiley á Ítalíu um miðjan dag í dag.

Mynd af vettvangi þegar fólkinu er bjargað úr tveimur gúmmí­bátum. Myndin er fengin af vef Landhelgis­gæslunnar.

Mynd af vettvangi þegar fólkinu er bjargað úr tveimur gúmmíbátum. Myndin er fengin af vef Landhelgisgæslunnar.
Mynd af vett­vangi þegar fólk­inu er bjargað úr tveimur gúmmí­bátum. Myndin er fengin af vef Land­helg­is­gæsl­unnar.

Í frétt Lands­helgis­gæslunnar segir: "Áhöfnin á Tý bjargaði flótta­fólkinu af fyrri gúmmí­bátnum rétt um kvöldmatar­leytið í gær en um borð í bátnum voru 71 karl, tvær konur og eitt barn. Meðan á björgunar­aðgerðum stóð barst neyðar­kall frá öðrum litlum gúmmíbát. Týr kom á vettvang skömmu seinna og bjargaði þar af litlum gúmmíbát alls 92 körlum og 18 konum, þar af einni barns­hafandi.

Konu bjargað um borð í Tý. Myndin er fengin af vef Landhelgis­gæslunnar.

Konu bjargað um borð í Tý. Myndin er fengin af vef Landhelgisgæslunnar.
Konu bjargað um borð í Tý. Myndin er fengin af vef Land­helg­is­gæsl­unnar.

Sem fyrr segir eru nú alls 284 flótta­menn um borð í Tý og þar af eru nokkrar barns­hafandi konur. Allir eru í góðu skjóli innandyra og njóta aðhlynningar varðskips­áhafnarinnar en fólkið var þrekað og skelkað eftir að hafa siglt á þessu erfiða hafsvæði á litlum opnum bátum.

tyr 2
tyr 2

Síðustu daga hefur fjölda fólks verið bjargað á þessu svæði og svo virðist sem mikið flæði flótta­fólks sé nú frá Líbíu áleiðis til Ítalíu. Verður varð­skipið Týr áfram við björgunar­störf á þessu svæði á næstunni enda er þörfin fyrir jafn öflugt skip og vel þjálfaða áhöfn mikil".

Vekja heimsathygli


Störf Land­helg­is­gæsl­unnar við landamæra­eft­ir­lit á Mið­jarð­ar­hafi, með varð­skipi og flug­vél, hafa vakið heims­at­hygli að und­an­förnu. Í frétt á vef gæsl­unnar segir að margir erlendir fjöl­miðlar hafi óskað eftir að fá að fylgj­ast með störfum starfs­manna hennar við afar erf­iðar aðstæður við björgun flótta­manna. "Í síð­ustu viku bauðst erlendum fjöl­miðlum að koma um borð í varð­skipið Tý, hitta áhöfn­ina og fylgj­ast með þeim við störf.

Var þetta meðal annars fjölmiðla­fólk frá BBC, Le Figaro, Radio France, Voice of America, El Sevier, AFP, ARD og El Pais svo eitthvað sé nefnt. Áður höfðu fulltrúar fjölmargra annarra fjölmiðla komið um borð svo sem frá Sueddeutsche og Dailymail."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár