Meðlimir „Big Money Bosses“ og „2Fly YGz“ handteknir í umsvifamiklum aðgerðum

Lögreglan í New York borg greip til umfangsmestu aðgerða í sögu borgarinnar gegn götu­gengjum í norður­hluta Bronx. Samtals voru 120 hand­teknir.

Lögreglan í New York borg í Banda­ríkjunum handtók í dag 120 manns sem taldir eru tengjast tveimur glæpa­gengjum sem barist hafa yfirráð í norður­hluta Bronx hverfisins.

Ríkis­saksóknari á svæðinu segir í tilkynningu að aðgerðinar séu þær stærstu sem ráðist hafi verið í gegn glæpa­gengjum í sögu New York borgar.

Þeir handteknu eru grunaðir um að vera hluti af tveimur gengjum, „Big Money Bosses“ og „Fly YGz“. Fólkið er meðal annars sakað um morð, marg­vísleg óvenju hrottaleg ofbeldis­brot, vopna­lagabrot og fíkniefna­viðskipti. Meðal mála sem þegar hefur verið ákært fyrir er morð á 92 ára gamalli konu árið 2009.

Vísað er til þess, að borgin hafi tekið fast á málinu, þar sem mikið óöryggi hafi fylgt gengjunum í stórum íbúa­hverfum, og að óbreyttir borgarar hafi upplifað mikla hræðslu og í mörgum tilvikum verið beittir ofbeldi. Borgin hafi skipulagt aðgerðirnar með lögreglu.

Nokkrum tókst að flýja lögreglu, þegar hún reyndi að handtaka þá, og er þeirra nú leitað, samkvæmt fréttum New York Daily News.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár