Hitametin í júlí: Ekki er vitað um „slíkt og þvíumlíkt“ hér á landi

Um mestallt norðan- og austan­vert landið var júlí sá hlýjasti frá upphafi mælinga. Meðalhiti var meiri en 14 stig á fáeinum veður­stöðvum, „en ekki er vitað um slíkt og þvílíkt hér á landi áður í nokkrum mánuði,“ segir Trausti Jónsson veður­fræðingur

Trausti segir ekki ólíklegt að sólskinsstundamet verði slegið á Akureyri og að sama megi segja um Mývatn.
Trausti segir ekki ólík­legt að sól­skins­stunda­met verði slegið á Akureyri og að sama megi segja um Mývatn. Mynd: Pexels

Júlí­mánuður var um mestallt norðan- og austan­vert landið sá hlýjasti sem vitað er um frá upphafi mælinga. Um þetta fjalla tveir veður­fræðingar, Einar Sveinbjörsson og Trausti Jónsson í færslum á ýmist Facebook- eða blogg­síðum sínum.

Einar skrifar að í júlí hafi meðal­hitinn á Akureyri verið 14,3°C og að hærri mánaðar­hiti hafi aldrei mælst. Trausti segir ekki ólíklegt að sólskins­stundamet verði einnig slegið á Akureyri og að sama megi segja um Mývatn.

„Meðalhiti eins mánaðar hefur aldrei farið yfir 14 stig í mælinga­sögunni,“ skrifar Einar og að „klárlega“ sé um Íslandsmet að ræða, Trausti skrifar að meðal­hitinn hafi verið meiri en 14 stig á fáeinum veður­stöðvum, „en ekki er vitað um slíkt og þvílíkt hér á landi áður í nokkrum mánuði“.

Trausti skrifar á bloggsíðu sína í gærkvöldi að nýliðinn júlí­mánuður hafi verið sérlega hlýr. Þótt um met sé að ræða á norðan- og austan­verðu landinu sé þó vitað um hlýrri júlí­mánuði á stöku stöðvum – en nokkuð á misvíxl líkt og Trausti orðar það. Á Egils­stöðum var júlí 1955 t.d. lítillega hlýrri heldur en nú.

Traustir skrifar að meðalhiti í byggðum landsins í heild reiknist 11,7 stig. „Það er það næstmesta sem við vitum um í júlí, í þeim mánuði 1933 reiknast meðal­hitinn 12,0 stig.“ Hann bendir hins vegar á að í raun er varla marktækur munur á þessum tveimur tölum vegna mikilla breytinga á stöðva­kerfinu. „Við vitum af einum marktækt hlýrri ágúst­mánuði, árið 2003, en þá var meðalhiti á landinu 12,2 stig og í ágúst 2004 var jafnhlýtt og nú (11,7 stig).“

Meðal­hámarkshiti í nýliðnum júlí var einnig hærri en áður, 20,5 stig á Hall­ormsstað. Hæsta eldri tala „sem við hiklaust viðurkennum“, skrifar Trausti, er 18,7 stig í Hjarðar­land í júlí 2008.

„Það er líka óvenjulegt að hiti komst upp fyrir 20 stig einhvers staðar á landinu alla daga mánaðarins nema einn (30 dagar). Er það mjög óvenjulegt, mest er vitað um 24 slíka daga í einum mánuði (júlí 1997) síðustu 70 árin rúm.“

Uppgjör Veður­stofunnar með endanlegum hita-, úrkomu- og sólskins­stundatölum mun að sögn Trausta birtast síðar í vikunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár