Leyniþjónustan vill milljarð til að byggja eftirlíkingu af Hvíta húsinu

Bandaríska leyni­þjónustan hefur óskað eftir fjáveitingu frá þarlendum stjórn­völdum til að byggja nákvæma eftir­líkingu af þekktasta heimili heims, sjálfu Hvíta húsinu. Áætlaður kostnaður við að byggja eftirmynd af heimili forseta Banda­ríkjanna hleypur á átta milljónum Bandaríkja­dala, eða rúmum 1,1 milljarði íslenska króna. Vefsíða The New York Times greinir frá málinu.

Fyrir­ætlanir leyni­þjónustunnar má rekja til harðrar gagnrýni sem hún hefur mátt sæta að undan­förnu, vegna pínlegra uppátækja þar sem komið hafa í ljós alvarlegir ágallar á öryggis­gæslu Hvíta hússins. Leyni­þjónustan hefur meira að segja verið sökuð um að geta ekki tryggt öryggi forseta Banda­ríkjanna svo gott sé.

Hér að neðan má sjá skemmtilega samantekt The New York Times um vandræðin hjá bandarísku leyni­þjónustunni að undan­förnu.

Efni sem var innfellt hér (graphics8.nytimes.com) er ekki lengur aðgengilegt.

Samkvæmt umfjöllun The New York Times er búist við að Joseph P. Clancy, forstjóri bandarísku leyni­þjónustunnar, fari fram á fjár­veitingu til verk­efnisins á fundi þarlendrar þing­nefndar í dag. Bandaríska leyni­þjónustan heldur því fram að með byggingu nákvæmrar eftir­líkingar af Hvíta húsinu verði hægt að þjálfa starfs­menn hennar enn betur til að vernda Bandaríkja­forseta.

Um 40 kílómetra frá 1600 Pennsylvania Avenue, sem er heimilsfang Hvíta hússins í Washington, er að finna svæði þar sem leyni­þjónustu­menn sem vakta heimili forseta Banda­ríkjanna stunda æfingar. Þar hefur verið reynt að líkja eftir aðstæðum við og í Hvíta húsinu, sem ekki þykir fullnægjandi að sögn forsvars­manna bandarísku leyni­þjónustunnar.

Fyrir­hugað líkan af heimili Bandaríkja­forseta muni veita fulltrúum leyni­þjónustunnar tækifæri til að æfa sig, og viðbúnað, við raun­verulegri aðstæður en nú þekkist og gera þá þar með betur í stakk búna til að gæta öryggis forseta Banda­ríkjanna.

Beiðni leyni­þjónustunnar kemur sex mánuðum eftir að karlmaður hoppaði yfir girðinguna við Hvíta húsið, hljóp óáreittur yfir gras­flötina fyrir framan húsið og fór inn í húsið um ólæsta hurð. Atvikið vakti mikla athygli og hneykslan og hörð gagnrýni á bandarísku leyniþjónustunna fylgdi í kjölfarið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár