Good Morning America beint frá Holuhrauni - milljónir að horfa

Vinsælasti morgun­sjónvarps­þáttur Banda­ríkjanna, Good Morning America, sendir nú beint út frá gosstöðvunum við Holuhraun. Þátturinn, sem er á vegum ABC sjónvarps­stöðvarinnar, sendir oft út beinar útsendingar frá vel völdum stöðum í heiminum, en sennilega hafa aðstæður aldrei verið stórbrotnari en núna. Í myndbandi sem deilt er á Twitter-síðu þáttarins sést mynd úr lofti, þar sem dróni flýgur yfir gosstöðvunum og tekur upp myndskeið í beinni útsendingu fyrir áhorf­endur.

Samkvæmt upplýsingum frá Tv by numbers vefsíðunnar, sem heldur utan um tölur um sjónvarps­áhorf, þá horfa að meðaltali 5,3 milljónir manna á þáttinn, sem gerir hann að vinsælasta morgun­þætti Banda­ríkjanna.




Amazing. The lava is 2100 degrees F. #GMADroneShow pic.twitter.com/j9fuonTF0i

— Good Morning America (@GMA) February 3, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár