Rússnesk herflugvél olli næstum árekstri við farþegaþotu yfir Svíþjóð

Litlu munaði að rússnesk herflugvél, sem hafði slökkt á sendum til að forðast að sjást á ratsjá, ylli árekstri við farþega­þotu yfir Svíþjóð á föstu­daginn. Sambærilegt atvik átti sér stað yfir Svíþjóð í mars­mánuði síðastliðinum, og því hefur rússneski herinn tvisvar verið nálægt því að valda hörmulegu stórslysi. Frétta­miðillinn Guardian greinir frá málinu. Í fyrra tilvikinu voru innan við hundrað metrar á milli farþega­þotu SAS flug­félagsins og rússneskrar herflugvélar, sem sömuleiðis hafði slökkt á sendum sínum.

Atvikið á föstu­daginn átti sér stað yfir suður­hluta Svíþjóðar, en farþega­þotan hafði tekið á loft frá Kaupmanna­höfn. Fjöl­miðlar í Svíþjóð og Danmörku segja að farþega­þotan hafi verið á leið til Póllands, en hvorki hefur fengið staðfest frá hvaða flug­félagi hún var né hversu margir farþegar voru um borð.

Sænsk hermála­yfirvöld segja að Rússarnir hafi slökkt á sendum flug­vélarinnar til að sjást ekki á ratsjá, og sænskar herþotur sem sendar voru á vettvang hafi staðfest að um rússneska njósna­flugvél hafi verið að ræða.

„Þetta er alvarlegt og óviðeigandi. Það er stór­hættulegt þegar menn slökkva svona á sendum,“ sagði Peter Hultquist, varnarmála­ráðherra Svíþjóðar í útvarps­viðtali þar í landi, að því er fram kemur í umfjöllun Guardian um málið.

Embættis­menn við varna­mála­ráðuneyti Rússlands vildu ekki tjá sig við Guardian í gær, þegar eftir því var leitað.

Á síðustu mánuðum hafa Rússar aukið hernaðarleg umsvif sín í Eystrarsalti, og hafa sumir sænskir embættis­menn líkt aðgerðunum við þær sem tíðkuðust í kalda stríðinu. Í október varð uppi fótur og fit í Svíþjóð þegar sást til kafbáts fyrir utan skerja­garðinn við Stokkhólm. Margir óttuðust að þar hefði verið á ferð rússneskur kafbátur, en þrátt fyrir umfangs­mikla leit fannst kafbáturinn aldrei, og aldrei hefur verið gefið út opinber­lega hverrar þjóðar hann var.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár