Unnið í skýjunum

Frum­kvöð­ullinn Eiríkur S. Hrafnsson lifir og hrærist í síbreyti­legum heimi tækninnar í skýja­þjónustu (Cloud Service). Kjarninn hitti hann á starfsstöð tækni­risans NetApp í Bellevue, í útjaðri Seattle, á dögunum.

Bandaríski hugbúnaðar­risinn NetApp keypti nýverið íslenska hugbúnaðar­fyrirtækið Greenqloud en Qstack hugbúnaðurinn er helsta vara fyrir­tækisins. Sagan að baki þessum viðskiptum er saga mikillar vinnu, hæfileika og þolinmæði.

NetApp er skráð á markað í Banda­ríkjunum, en umfang kaupanna, sem var nýlega gefið upp, voru rúmir 5 milljarðar íslenskra króna og er önnur stærsta sala í íslenskum hugbúnaðar­geira frá upphafi á eftir sölunni á NextCode til Wuxi.

Allir hluthafar Greenqloud og íslenska ríkið ekki síður högnuðust myndar­lega á kaupunum.

Inn í sögu Greenqloud blandast dramatískar breytingar á tækni og síðan rússíbani sem fylgir oft hinu erfiða ferli, þegar fyrirtæki eru að slíta barns­kónum og feta leiðina inn á hið stóra svið alþjóða­viðskipta.

Grænt ský

Greenqloud var stofnað árið 2010 af Eiríki S. Hrafns­syni og Tryggva Lárus­syni og var fyrsta fyr­ir­tæki í heimi til þess að bjóða upp á skýja­þjón­ustu sem ein­göngu var rekin á end­ur­nýj­an­legri orku.

Nú, rúmum sjö árum síðar, er þessi grund­völlur upphaf­legu hugmyndarinnar orðinn að leiðar­stefi stærstu tækni­fyrirtækja heimsins. „Það er merkilegt að í dag las ég að Google ætli sér loksins að reka öll sín gagnaver alfarið með endurnýjanlegri og umhverfis­vænni orku og gera mikið úr þeirri nýju stefnu í fjöl­miðlum. Fyrir sjö árum vorum við örfá fyrir­tækin í bransanum að benda á vaxandi mengun af völdum gagnavera og mikilvægi þess að þau noti endurnýjanlega orkugjafa. Google þakkaði Green Peace meðal annars fyrir aðhald að markaðnum með skýrslum um umhverfis­áhrif gagnavera. Við tókum þátt í að móta þær skýrslur og var okkur margoft lýst sem fyrir­myndinni á markaðnum. Það sem við höfðum ekki var sama fjármagn, sambönd og mannskap sem þurfti til að breyta hegðun í iðnaðinum. Að því leyti þá mistókst okkur. Á hinn bóginn þá byggðum við upp flotta þjónustu en svo breyttist markaðurinn á meðan við vorum að rúlla út og reka þjónustuna okkar. Meiri áhersla varð á hybrid skýja­þjónustu og okkar viðskipta­vinir fóru að biðja meira og meira um beinan aðgang að hugbúnaðinum sem við bjuggum til, til að reka okkar eigið tölvuský og keyra hann á eigin búnaði. Það var byrjunin á því að við fórum að þróa pakka­vöruna Qstack sem gerir hverjum sem er kleift að setja upp eigið tölvuský sem getur tengst ytri tölvu­skýjum sem áður voru samkeppnis­aðilar okkar eins og Amazon Web Services (AWS), Microsoft Azure og Google Cloud Platform (GCP). Það er þó ákveðið “kick” að sjá stóru aðilana átta sig loksins,“ segir Eiríkur.

Tækni­risar heimsins, eins og Apple og Facebook, eru með viðlíka stefnu.

Mikill vöxtur

Hann er búsettur ásamt fjöl­skyldu sinni í Woodinville, skammt frá Bellevue og Seattle, og hefur unnið að framgangi Greenqloud síðustu ár þaðan.

Eiríkur segir að hjartað í skýja­þjónustum (Cloud Services) sé á þessu svæði, en meðal fyrir­tækja sem hér hafa höfuð­stöðvar eru Amazon og Microsoft, auk þess sem Alphabet (Google) er með stóra starfsstöð í nágrenninu. Á svæðinu vinna um 44 þúsund starfs­menn hjá Microsoft og 35 þúsund hjá Amazon, svo eitthvað sé nefnt.

Vöxtur þessara fyrir­tækja á síðustu árum hefur haft mikil áhrif á svæðið og laðað til sín mörg nýsköpunar­fyrirtæki og frumkvöðla. Ekki sér fyrir endann á þeirri þróun.

Mikið vatn runnið til sjávar

Við settumst niður í glæsilegri starfs­aðstöðu NetApp í Bellevue, í útjaðri Seattle, þar sem grósku­mikið atvinnulíf hefur byggst upp á undan­förnum árum og áratugum.

Þar eru ekki síst nýsköpunar- og tækni­fyrirtæki með starfs­aðstöðu, en einnig fjármála­fyrirtæki og mikið um skrifstofu­húsnæði. Microsoft er áberandi á svæðinu, enda fyrir­tækið með höfuð­stöðvar í Redmond, sem er í nágrenni við Bellevue.

Eins og áður var nefnt keypti NetApp, sem telst til risa í hugbúnaðar­geiranum, Greenqloud. NetApp er nú metið á 15,3 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 1.700 milljörðum króna. Það er upphæð sem nemur tæplega tvöföldu virði íslenska hlutabréfa­markaðarins.

Starfs­menn voru tæplega 11 þúsund í lok árs í fyrra, en hefur fjölgað umtals­vert síðan. Starfs­menn á Íslandi eru rúmlega 40 og hefur fyrir­tækið verið að auglýsa eftir starfs­fólki að undan­förnu. Aðal­­eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins voru fyrir kaupin meðal ann­ars Kjölur fjár­fest­ingar­fé­lag, Nýsköp­un­­ar­­sjóður Atvinnulífssins og Omega ásamt smærri fjár­­­fest­u­m, ­stofn­endum og starfs­­fólki.

Traustið og innkoma Jónsa

Eiríkur segir að þegar hugsað sé til baka, þá sé það traustið frá hlut­höfunum sem hafi skipt einna mestu máli. „Þegar upp er staðið er það traust frá fjár­festum sem hefur skipt okkur öllu máli. Á svona vegferð eru ótal hindranir sem þarf að yfirstíga, og það var svo sannarlega þannig í okkar tilviki. En tiltrú fjár­festana er það sem ýtir okkur í þann farveg að fara í útrás, sem að lokum leiddi til samstarfs við NetApp.“ segir Eiríkur.

Í aðdrag­anda þess að Greenqloud komst á radarinn hjá stóru tækni­fyrir­tækjunum - og NetApp þar á meðal - þurfti að eyða miklu púðri í markaðs- og sölustarf. Margra ára vinna við að bæta tækni fyrir­tækisins, hugbúnað og þjónustu, fólst ekki síst í því að starfa náið með fyrir­tækjum sem voru viðskipta­vinir fyrir­tækisins. Eiríkur nefnir meðal annars að samstarf við Decode, NextCODE, Advania, CCP, svo einhver séu nefnd, hafi gert Greenqloud mögulegt að framþróa starfsemina á heima­markaði við ólíkar aðstæður og lausnir. „Þetta samstarf skipti miklu máli fyrir okkur. Það skiptir augljós­lega miklu máli að vera með trausta viðskipta­vini og samstarfs­aðila þegar hugbúnaðar­fyrirtæki eru að framþróa vörur og þjónustu auk þess sem hver sala, sérstak­lega þær sem má tala um, hefur domino áhrif - startup bransinn er óttalegt ‘catch-22’ þangað til þú ert búinn að afla þér trausts,“ segir Eiríkur. Eftir því sem tíminn leið, ráðstefnu­ferðum fjölgaði og meiri reynsla komst á sölu- og markaðs­starf, þá opnuðust fleiri dyr.

Að sögn Eiríks urðu svo vatnaskil í sögu Greenqloud þegar Jón Þorgrímur Stef­ánsson, oftast kallaður Jónsi, tók við sem forstjóri í mars 2014 en hann hafði mikla reynslu af því að stjórna teymi hjá Opera Software í Noregi í gegnum gríðar­legan vöxt á heimsvísu sem kom sér vel fyrir Greenqloud. Þá færðist áhersla fyrir­tækisins alfarið yfir á þróun Qstack hugbúnaðarins. „Með þessari áherslu­breytingu færðist okkar „fókus“ á það sem skipti viðskipta­vini okkar mestu máli ásamt því að fá fjár­festana til að takast á við stórar breytingar á fyrir­tækinu sem fylgdu. Við lögðum niður tölvu­skýið “Greenqloud” stuttu síðar, buðum viðskipta­vinum að færa sig á einfaldan hátt í tölvuský Advania (byggt á Qstack og íslenskum gagna­verum) og urðum alfarið að hugbúnarfyrirtæki í stað hugbúnaðar og hýsingar­fyrirtækis. Þjónusta við viðskipta­vini varð betri og vöru­þróunin líka. Þetta myndi kallast “pivot” á startup máli sem er eitthvað sem góð fyrirtæki gera þegar markaðurinn breytist.

Áður en við urðum hluti af NetApp voru aðrir aðilar sem vildu kaupa okkur, og því fylgir mikill rússíbani, eins og gengur. En það sem skipti máli var að okkur tókst að halda fókus og vinna áfram þétt með okkar viðskipta­vinum og halda áfram að finna upp og aðlaga að nýrri tækni sem var það sem þurfti til að ná lengra með okkar vöru.“

Þetta leiddi að lokum til samtala við rétta fólkið, á réttum tíma.

Litlu munaði þó að ekkert yrði af frekara samstarfi við NetApp. Eftir sex mánaða samstarf við NetApp 2015-2016 var næstum öllum sagt upp hjá NetApp sem höfðu verið í samskiptum við Greenqloud, og var vinna með Qstack hugbúnaðinn sett á ís. Þetta setti ferlið á byrjunar­reit aftur, ef svo má segja. „Við vorum öll að vinna í því að efla okkar sölunet og samband við fólk sem skipti máli. Það er eitt af því sem maður hefur lært af þessu ferli; stanslaus vinna við að efla tengingar og viða að sér reynslu sem gæti nýst við að selja í fram­tíðinni er það sem skiptir alveg óskaplega miklu máli. “

En nýtt teymi sann­færðist um að Qstack hugbúnaðurinn væri það sem NetApp þyrfti. „Við vorum búin að sýna fram á að það að hugbúnaðurinn hentaði einka­kúnnum jafnt og hýsingar­aðilum auk þess hversu hratt og vel við gátum aðlagast nýjustu tækni,“ segir Eiríkur, og leggur áherslu á að í þessum samtölum hafi skipt miklu máli að þekkja tæknina afar vel - helst betur en allir aðrir - og geta þannig fundið lausnirnar á vanda­málunum sem viðskipta­vinir eru að glíma við.

Þróunin sé sú í þessum anga hugbúnaðar- og tækni­geirans, að hinir stóru séu sífellt að verða stærri, og því skipti afar miklu máli að vera með hugbúnað sem þoli að þjónusta marga vel, og búi yfir þeim sveigjanleika sem þarfir viðskipta­vina kalla fram. „Við fengum séns á að sanna okkur á fáránlega stuttum tíma og gerðum það - enda með sterkt teymi og vöru sem slípaðist til með alvöru kúnnum.“

Þannig hafi það einnig verið raunin með einn stærsta viðskipta­vininn, UBS bankann, sem hafi einfald­lega fundið þá lausn í Qstack hugbúnaðinum og teyminu sem skipti máli fyrir fyrir­tækið.

Þörf á miklu átaki í sölu- og markaðsstarfi

Eftir sjö ára uppbyggingu og þrotlausa vinnu hefur Greenqloud fundið nýtt hlutverk með Qstack hugbúnaðinum innan NetApp, og segist Eiríkur bjartsýnn á fram­haldið. Nýlega - á ráðstefnu í Las Vegas sem fjallað er um hér í myndtexta - hafi verið sýnt á spilin í samstarfi NetApp og Microsoft. „Þetta er afar stór áfangi fyrir okkur og sýnir hvað NetApp var mikil alvara með kaupunum,“ segir Eiríkur.

En hvað er það sem helst vantar þegar kemur að íslenska nýsköpunar­umhverfinu?

Eiríkur segir að stuðningur og fjár­festing í sprotum megi í raun alltaf vera meiri. Það hafi t.d. sýnt sig að fjár­festingar Tækni­þróunar­sjóðs og Nýsköpunar­sjóðs atvinnu­lífsins í hinum ýmsu verkefnum hafi borgað sig margfalt. Saga Greenqloud sé gott dæmi um það en báðir sjóðir lögðu til fjármagn snemma í ferli Greenqloud auk þess sem Greenqloud þáði endur­greiðslur af þróunar­starfi félagsins sem ásamt sölunni og áralangri starfsemi hafa nú skapað ríkinu milljarða í tekjur. „En þegar kemur að sölu- og markaðs­málum þá erum við langt á eftir flestum öðrum,“ segir Eiríkur. „Þá á ég við í stuðningi við þau mál einfald­lega vegna þess að við búum á eyju og höfum ekki margra áratuga reynslu af alþjóð­legum sölumálum eins og fólk í öðrum löndum eða fjár­magnið í litlum sprota­fyrirtækjum til að „yfirstíga hafið“ eins og þarf að gera ,“ segir Eiríkur.

Hann segir nauðsynlegt að stórefla fjár­festinga­sjóði hins opinbera og annarra þeirra sem styðja við sprota og frumkvöðla­starfsemi, í sölu- og markaðs­starfi ekki síður en við tækni­þróun.

Vel megi hugsa sér að setja upp sérstakan sjóð, svipaðan og Tækni­þróunarsjóð, sem einblínir meira á þennan hluta starfseminnar. „Þetta skiptir það miklu máli að ég tel að það þurfi að fjárfesta miklu meira í þessu, og þá samhliða fjár­festingum í sprota­starfseminni sjálfri. Impra á vegum Nýsköpunar­miðstöðvar Íslands er með innviðina að ég tel til að sinna úthlutun á slíkum sjóði nú þegar. En styrkir Impru til markaðs­mála sprota­fyrirtækja eru ekki einusinni dropi í hafið. Það er grátlegt því hugsunin þar er rétt. Þetta er í raun hluti af henni og til að byggja upp þekkingu þá þarf að vera lang­tímahugsun að baki stuðningnum í upphafi,“ segir Eiríkur.

Þá nefnir hann einnig að Ísland geti ekki verið eyland þegar komi að alþjóð­legum hluta viðskipta­lífsins. „Ég lít svo á að það sé nauðsynlegt að íslensk hugbúnaðar- og sprota­fyrirtæki búi við regluverk sem sé fyrir hendi á alþjóð­legum mörkuðum, eins og í Banda­ríkjunum og Evrópu. Ég get nefnt kaup­réttarkerfi sem tíðkast í hugbúnaðar­geiranum í því samhengi, og hvernig hvatar til að gera betur og ná lengra eru útfærðir. Við erum ekki að huga nægilega vel að þessu á Íslandi. Kaupréttar­samningar eru ekki bara fyrir útrásar­víkinga - venjulegt fólk leggur allt sitt að veði til að hjálpa sprota­fyrirtækinu sínu að ná árangri og sættir sig við lægri kjör með von um ágóða að lokum. Þetta gerir sprota­fyrirtækjum kleift að keppa um besta fólkið við stóru fyrir­tækin. Í dag er fólki refsað fyrir kaup­réttinn sinn í formi tekju­skatts í stað fjármagns­tekjuskatts. Þessu væri einfalt að breyta og það er mikilvægt að löggjafinn átti sig á því að við erum að keppast um starfs­fólk á alþjóð­legum grund­velli.

Margt gott hefur þó verið gert fyrir sprota á Íslandi eins og endur­greiðslur vegna þróunar­kostnaðar. Það kerfi er líklega stór ástæða fyrir því að ekki fleiri sprotar hafa flutt starfsemi sína til annarra landa sem bjóða upp á svipaðar en hærri endur­greiðslur. Við viljum auðvitað öll geta sinnt okkar drauma­verkefnum á Íslandi.“

Viðtalið birtist einnig í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár