„Fjárfestingar eru í tísku“

Samkvæmt Ágústi Óla Sigurðs­syni sölu-og mark­aðstjóra er „sexí“ að eiga hlutabréf og óspennandi að eiga pening inni á bankabók. Fjár­festingar segir hann vera í tísku, sérstak­lega hjá ungu fólki, en sjálfur er Ágúst að verða 25 ára.

Að morgni dags þann 22. júní síðastliðinn hringdi Birna Einars­dóttir, forstjóri Íslands­banka, kauphallar­bjöllunni í tilefni af skráningu fyrir­tækisins á hlutabréfa­markað. Hlutafjár­útboð Íslands­banka er samkvæmt upplýsingum Kaup­hallarinnar stærsta frumútboð hluta­bréfa sem farið hefur fram hér á landi. Hluthafar í bankanum eru um 24 þúsund, sem er mesti fjöldi hluthafa allra skráðra fyrir­tækja á Íslandi.

Bankasala býr til gróða

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahags­ráðherra sagðist ánægður með niður­stöðurnar úr „vel heppnuðu útboði Íslands­banka“. Mikil eftir­spurn og þátttaka almennings þótti honum „sérstak­lega ánægjuleg“.

Almenningi stóð til boða að skrá sig fyrir allt niður í 50 þúsund krónum upp í eina milljón króna án skerðingar. Á meðan útboðs­gengið var 79 krónur á hvern hlut endaði gengi bréfanna í 94,6 á fyrsta degi í viðskiptum í Kaup­höllinni. Sá sem setti eina milljón króna í hlutafé í Íslands­banka gat þannig grætt 200 þúsund krónur á fyrsta degi. Síðar hafa bréfin haldið áfram að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár