Íbúalausar eignir í Indlandi og glæsihýsi á Manhattan

Kabul Chawla, fjár­festir frá Indlandi, lifir í vellystingum í glæsihýsi á Manhattan á meðan mörg hundruð eignir sem hann á í Nýju Delí heima fyrir standa tómar. Indverskir hermenn sem eru komnir á eftirlaun hafa mótmælt fyrir utan íbúðirnar frá því í haust vegna þess að Chawla og bygginga­félag hans, hafa ekki staðið við sitt, og sitja hermennirnir uppi húsnæðis­lausir, búnir að borga háar fjárhæðir fyrir búsetu­rétt í íbúðunum.

Í ítarlegri umfjöllun New York Times segir að Chawla sé umsvifa­mikill í fasteigna­viðskiptum á Manhattan í gegnum skúffu­félög, sem haldi á stórum hluta skrifstofu­húsnæðis­plássa í Time Warner Center háhýsinu. Umsvifin í New York vekja upp spurningar um hvaðan Chawla fái peningana og hvort hann sé búinn að eyða peningunum sem hann tók við frá hermönnunum í fasteigna­verkefni á Manhattan.

Umfjöllunin er liður í ítarlegri umfjöllun New York Times um fasteigna­viðskipti á Manhattan í New York þar sem peningarnir virðast streyma frá ýmsum jaðar­mörkuðum inn í borgina í gegnum skúffu­félög, þar sem endanlegir eigendur eru háttsett fólk víða um heim.

Í gær var fjallað um fjár­festingar stjúpsonar forsætis­ráðherra Malasíu, í gegnum skúffu­félög og 33 ára gamlan fjárfesti, Jho Low, sem hefur keypt eignir og selt síðan áfram til stjúpsonar forsætis­ráðherrans.

Á morgun er boðuð umfjöllun um fjár­festingar frá Mexíkó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár