Össur: Kröfuhafar fá fimm sinnum hærri „leiðréttingu“ en húsnæðisskuldarar

„Ef rík­is­stjórnin segir að skattur upp á 862 millj­arða haldi fyrir dóm­stólum, en er svo reiðu­búin að gefa ríf­lega 400 millj­arða afslátt frá honum þá þarf hún að skýra fyrir þing­inu, þjóð­inni, for­seta Íslands ef því er að skipta – örugg­lega Indefence – hver ávinn­ing­ur­inn er af þeirri eft­ir­gjöf.“ Þetta segir Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann fjallar um frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar um stöð­ug­leika­skatt og mögu­leg sam­komu­lög kröfu­hafa föllnu bank­anna um að greiða stöð­ug­leika­fram­lög í stað hans. Um sé að ræða fimm sinnum hærri „leið­rétt­ingu“ en íslenskir hús­næð­is­skuld­arar fengu sam­kvæmt Leið­rétt­ing­unni, áætlun rík­is­stjórn­ar­innar um lækkun verð­tryggðra hús­næð­is­skulda.

Samkvæmt frum­vörpum um stöð­ug­leika­skatt myndi hann færa rík­is­sjóði 862 millj­arða króna en Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur sagt að „hjá­leiðin“ sem felst í að mæta stöð­ug­leika­skil­yrð­unum muni færa honum 450 millj­arða króna.





Kröfu­hafar fá 400 millj­arða afslátt…!Ég tætti mig nokkuð ræki­lega gegnum frum­vörp Sig­mundar Davíðs og co. um „stöð...

Posted by Össur Skarp­héð­ins­son on Sunday, June 28, 2015

Össur segir tvær mögu­legar skýr­ingar á þess­ari eft­ir­gjöf. Önnur sé sú að rík­is­stjórnin hafi samið af sér. Hin sé sú að það sé 400 millj­arða króna virði „að halda frið við kröfu­hafa, sleppa við mögu­leg dóms­mál, eiga kost á meiri erlendum fjár­fest­ingum og taka ekki áhættu með orð­spor Íslands. En varla ætlar Alþingi að afgreiða 400 millj­arða eft­ir­gjöf frá fullum stöð­ug­leika­skatti án þess að á vegum rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs sé lagt fram blákalt mat á því hver ávinn­ingur Íslands er af 400 millj­arða afslætti? Það mat vantar ennþá.“

Össur segir að lokum: „Það er svo tragík­ó­mísk íronía af kald­hæðn­ustu sort að það skuli vera undir for­ystu Sig­mundar Davíðs sem rík­is­stjórn leggur til að Alþingi gefi kröfu­höfum kost á stærsta skatta­af­slætti í Íslands­sög­unni. Önnur íronía, engu minni, er að afslátt­ur­inn til kröfu­hafa er fimm­föld sú upp­hæð sem notuð var til að leið­rétta hús­næð­is­skuld­irnar. Undir for­ystu for­manns Fram­sóknar koma kröfu­hafar sem­sagt út með fimm sinnum hærri „leið­rétt­ingu“ en íslenskir hús­næð­is­skuld­arar.

Hver hefði trúað því í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár