Velferðarráðuneytið: Bragi fór ekki út fyrir valdsvið sitt

Bragi Guð­brands­son hefur fengið bréf frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu þar sem það stað­festir að hann hafi ekki farið út fyrir verk­svið sitt í barna­vernd­ar­máli. Ráðu­neytið hefur því fellt fyrri ákvörðun sína um slíkt úr gildi.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur sent Braga Guð­brands­syni bréf þar sem það áréttar að ákvörðun þess um að hann hafi sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu farið út fyrir verk­svið sitt í tengslum við barna­vernd­ar­mál í Hafn­ar­firði sé felld úr gildi. Bréfið, sem ráðu­neyt­is­stjóri og skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyt­inu skrifa undir, var sent 21. sept­em­ber.

Í bréf­inu segir að „með vísan til þeirra gagna sem liggja fyrir í mál­inu er það nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins að mis­brestur hafi verið á máls­með­ferð ráðu­neyt­is­ins sem leiddi til nið­ur­stöðu þess 27. febr­úar 2018, einkum að ekki hafi verið farið að grund­vall­ar­reglum stjórn­sýslu­réttar um rann­sókn mála og and­mæla­rétt[...]Þá verður að mati ráðu­neyt­is­ins eftir athugun á gögnum máls­ins og eðlis þeirra leið­bein­inga sem þú sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu veittir og voru til­efni til aðfinnslu ráðu­neyt­is­ins, ekki séð, að þú sem for­stjóri stofn­un­ar­innar hafi farið „út fyrir verk­svið [þ]itt“ eins og það er orðað í fram­an­greindu bréfi. Ekki verður heldur séð með vísan til gagna máls­ins, að upp­lýs­inga­gjöf þín sem for­stjóra stofn­un­ar­innar til föð­urafans í mál­inu, einkum í ljósi efnis umkvart­ana hans, hafi gefið ráðu­neyt­inu til­efni til athuga­semda.“

Ráðu­neytið áréttar því fyrri nið­ur­stöðu sína frá 29. júní 2018 um að ákvörð­unin sé felld úr gildi.

Hægt er að lesa bréf ráðu­neyt­is­ins til Braga hér í heild sinni.

Óháð úttekt

Í umfjöllun Stund­ar­innar í apríl kom fram að ástæða þess að ráðu­neytið komst upp­runa­lega að þeirri nið­ur­stöðu að Bragi hefði farið út fyrir vald­svið sitt hefði verið sú að hann hefði beitt sér fyrir því að maður fengi að umgang­ast dætur sínar sem hann var ásak­aður um kyn­ferð­is­brot gagn­vart. Í kjöl­far þess frétta­flutn­ings fór Ásmundur Einar Daðason, félags­mála­ráð­herra, fram á það við for­sæt­is­ráð­herra að fram færi óháð úttekt á störfum Braga. 

Nið­ur­staða óháðrar úttektar á máls­með­ferð og efn­is­legri athugun vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í kjöl­far kvart­ana barna­vernd­ar­nefnda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna Barna­vernd­ar­stofu og for­stjóra hennar var birt í byrjun júní síð­ast­lið­inn.

Í nið­ur­stöðum úttekt­ar­inn­ar voru gerðar athuga­semdir við að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hafi full­yrt í bréfi sínu til Barna­vernd­ar­stofu og for­stjóra hennar þann 27. febr­úar síð­ast­lið­inn að for­stjór­inn hefði farið út fyrir verk­svið sitt með því að beina mál­inu ekki til Emb­ætti sýslu­manns á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjartan Bjarni Björg­vins­­son hér­­aðs­­dóm­­ari fram­kvæmdi úttekt­ina með lið­sinni Krist­ínar Bene­dikts­dótt­ur, dós­ent við laga­­deild Háskóla Íslands. Í henni var farið yfir fyr­ir­liggj­andi gögn máls­ins og máls­­með­­­ferð við­kom­andi stjórn­­­valda, það er þeirra barna­vernd­­ar­­nefnda sem tengj­­ast við­kom­andi mál­um, Barna­vernd­­ar­­stofu og vel­­ferð­­ar­ráðu­­neyt­­is.

Þá voru einnig gerðar athuga­semdir við það að í úttekt­inni hafi ráðu­neytið kom­ist að nið­ur­stöðu í máli for­stjór­ans án þess að vera gef­inn kostur á að kynna sér gögnin sem nið­ur­staðan var byggð á og veitt tæki­færi til að tjá sig um þau.

Í úttekt­inni er jafn­framt lýst efa­semdum um að ráðu­neytið hafi haft full­nægj­andi stoð um aðfinnslu um for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu.

Árétting frá ritstjóra Kjarnans:

Í leið­ara um mál­efni Braga Guð­brands­sonar sem birt­ist í Kjarn­anum 1. maí 2018 og skrif­aður var af und­ir­rit­uðum var gengið út frá því að þá fyr­ir­liggj­andi nið­ur­staða vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins um að Bragi hafi farið út fyrir starfs­svið sitt væri rétt. Auk þess í leið­ar­anum stuðst við frétta­flutn­ing Stund­ar­innar af umræddu máli, sem byggði á gögnum sem lágu til grund­vallar nið­ur­stöðu ráðu­neyt­is­ins. Nú liggur fyrir að ráðu­neytið hafi fellt þá ákvörðun úr gildi og því er sú full­yrð­ing sem sett var fram í leið­ar­anum að Bragi hafi farið út fyrir starfs­svið sitt dregin til baka.

- Þsj

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár