Ráðuneyti og dómsmálaráðherra „komu ekki að ákvörðun tímasetningar“ á brottflutningi flóttafólksins

Útlend­inga­stofnun, stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra og dóms­mála­ráðu­neytið segja að hvorki dóms­mála­ráð­herra né starfs­menn hans ráðu­neytis hafa haft afskipti af frá­vísun hóps flótta­fólks sem átti sér stað í byrjun nóv­em­ber.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Skjáskot: RÚV

Dóms­mála­ráð­herra eða full­trúar ráðu­neytis hans áttu enga aðkomu að því að hópi fólks sem hér leit­aði alþjóð­legrar verndar, var vísað úr landi í byrjun nóv­em­ber. Þetta kemur fram í svörum frá Útlend­inga­stofnun, stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra og ráðu­neyt­inu sjálfu.

Þann 3. nóv­em­ber var fimmtán mann­eskjum í leit að vernd vísað frá land­inu og flogið í fylgd 41 lög­reglu­manns, í leiguflug­vél á vegum stjórn­valda, frá Kefla­vík­ur­flug­velli til Aþenu í Grikk­landi. Hópurinn sam­an­stóð af ell­efu körlum og fjórum konum, fólki sem flúði upp­runa­lega Afganistan, Írak, Palest­ínu eða Sýrland.

Ýmislegt hefur verið gagn­rýnt við þessa aðgerð, m.a. tíma­setn­ingin – að margir í hópnum hefðu dvalið hér á landi lengi og biðu nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála við beiðnum um end­ur­upp­töku mála sinna. Þá var ungur, fatl­aður karl­maður frá Írak, sem not­ast við hjóla­stól, sendur úr landi en hann beið þess að kæru­mál hans gegn íslenska rík­inu yrði tekið fyrir í hér­aðs­dómi. Fólkið var að sumt hvert hand­tekið og sett í gæslu­varð­hald, haldið í fjötrum í flug­inu og seg­ist ekki hafa fengið að taka með sér per­sónu­legar eigur sínar. Þá hefur það einnig verið gagn­rýnt að fólk sé vísað aftur til Grikk­lands yfir höfuð, þar sem sýnt sé að aðstæður eru fólki á flótta sér­stak­lega erf­iðar.

Á svip­uðum tíma og frá­vísun fólks­ins var fram­kvæmd lagði Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra fram frum­varp að breyt­ingu á lögum um útlend­inga og lýsti því í við­tali að nauð­syn­legt væri að vera með lok­aðar búðir fyrir hæl­is­leit­endur sem kæmu til lands­ins en væri synjað um hæli. Þá sagð­ist honum hugn­ast vel að koma á fót mót­töku­búðum fyrir flótta­fólk. „Þá fer fólk á dval­ar­stað á ákveðnum stað, þar er tak­markað aðgengi, tak­markað ferða­frelsi, á meðan að fólk er að bíða frá­vís­unar og brott­vís­unar úr landi,“ sagði Jón við RÚV um miðjan októ­ber.

Aðkoma eða tilviljun?

Um tveimur vikum síðar var hópi flótta­manna, sem hefði fallið undir þá skil­grein­ingu Jóns að eiga að vera í lok­uðum búðum, vísað frá land­inu. Og spurn­ingar vökn­uðu um hvort að ráð­herr­ann hefði mögu­lega beitt sér með ein­hverjum hætti fyrir því að fólkið var sent úr landi á einmitt þessum tíma­punkti.

Svo er ekki, miðað við þau svör sem Kjarninn fékk við fyr­ir­spurnum sínum um málið sem bent var til Útlend­inga­stofn­unar, stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Það var lög­reglan sem ákvað tíma­setn­ing­una í sam­ræmi við verk­beiðnir sem Útlend­inga­stofnun hafði komið til hennar.

„Dóms­mála­ráðu­neytið hefur ekki spurst fyrir um þessi mál hjá Útlend­inga­stofnun,“ segir Þór­hildur Ósk Hagalín, upp­lýs­inga­full­trúi stofn­un­ar­innar í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Ráðu­neytið fái reglu­lega fá almennar töl­fræði­legar upp­lýs­ingar frá Útlend­inga­stofnum meðal ann­ars um fjölda mála í vinnslu og fjölda afgreiddra mála en þær varði ekki stöðu ein­stakra mála. „Að frá­vís­unin skyldi hafa verið fram­kvæmd á þessum tíma­punkti var ákvörðun stoð­deildar. Útlend­inga­stofnun hefur engar upp­lýs­ingar um að ráðu­neytið hafi haft aðkomu að þeirri ákvörðun.“

Þetta stað­festir Gunnar Hörður Garð­ars­son, sam­skipta­stjóri emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra. „Ráðu­neyti og dóms­mála­ráð­herra komu ekki að ákvörðun tíma­setn­ingar á fylgd stoð­deildar,“ segir hann. „Slík aðkoma stjórn­valda er ekki hluti af verk­lagi í skipu­lagi stoð­deildar á und­ir­bún­ingi og tíma­setn­ingum á fylgdum.“

Fjalar Sig­urð­ar­son, upp­lýs­inga­full­trúi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, segir í sínu svari að ráðu­neyti dóms­mála „hafi ekki afskipti af stjórn­sýslu ein­stakra mála“, hvorki hjá Útlend­inga­stofnun, kæru­nefnd útlend­inga­mála eða stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra.

„Brott­flutn­ingur á vegum stoð­deildar er verk­efni sem er sífellt í gangi með einum eða öðrum hætti,“ segir hann spurður um hvenær ráðu­neytið hefði fengið upp­lýs­ingar um aðgerð­irnar. „Emb­ætt­is­menn í ráðu­neyt­inu höfðu veður af þessum brott­flutn­ingi þegar hann var í und­ir­bún­ingi ein­hverjum dögum áður.“

Um leið og Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála taka end­an­lega ákvörðun um að hafna umsókn um alþjóð­lega vernd, og þar með gera við­kom­andi skylt að yfir­gefa landið, þá býr Útlend­inga­stofnun til verk­beiðni til stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, segir Gunnar Hörður um ferlið sem lög­reglan vinni eftir. „Þá þegar tekur emb­ættið á sig þá skyldu að fylgja við­kom­andi úr landi,“ segir hann. Verk­beiðnin snúi ekki að fram­kvæmd fylgda og tíma­setn­ingum heldur að ákvörð­un­inni um að við­kom­andi skuli yfir­gefa landið.

„Stoð­deild leit­ast við að ein­stak­lingar á verk­beiðna­lista yfir­gefi landið sjálf án lög­reglu­fylgdar en hefur svo und­ir­bún­ing á lög­reglu­fylgd, með öflun gildra ferða­skil­ríkja við­kom­andi ef við á og sam­þykkis mót­töku­ríkis til að mynda, ef að við­kom­andi vill ekki yfir­gefa landið,“ segir hann. „Lög­reglu­fylgd úr landi er íþyngj­andi aðgerð og síð­asta úrræði sem stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra beitir þegar ljóst er aðrar leiðir virka ekki til þess að fram­kvæma vilja stjórn­valda um að við­kom­andi skuli yfir­gefa landið.“

Und­ir­bún­ingur frá­vís­ananna sem fram­kvæmdar voru í byrjun nóv­em­ber hafi staðið yfir í nokkrar vikur. „Stoð­deild óskaði eftir að verk­beiðna­listi yrði yfir­far­inn af Útlend­inga­stofnun áður en kom að fram­kvæmd fylgd­ar­innar, slík yfir­ferð er hluti af verk­lagi stoð­deildar og Útlend­inga­stofn­unar, og er þar horft til þess hvort staða við­kom­andi á Íslandi og for­sendur til að vera á land­inu hafi breyst áður en við­kom­andi er fylgt úr landi.“

Höfðu sum dvalið hér frá árinu 2020

Öllum þeim sem vísað var frá land­inu 3. nóv­em­ber hafði verið veitt vernd í Grikk­landi áður en þau sóttu um vernd á Íslandi. Sjö þeirra sóttu um vernd hér á landi árið 2020, fjögur árið 2021 og fjögur árið 2022. „Öllum var synjað um efn­is­lega með­ferð á grund­velli þess að njóta þegar virkrar verndar í öðru ríki, að und­an­gengnu mati á ein­stak­lings­bundnum aðstæðum þeirra og aðstæðum í Grikk­landi,“ segir Þór­hildur hjá Útlend­inga­stofnun. Kæru­nefnd útlend­inga­mála hafi svo stað­fest ákvarð­anir Útlend­inga­stofn­unar í öllum til­vikum.

Með­al­máls­með­ferð­ar­tími í þessum 15 málum hjá Útlend­inga­stofnun voru tæpir fjórir mán­uðir. Með­al­máls­með­ferð­ar­tími hjá kæru­nefnd útlend­inga­mál voru tæpir þrír mán­uðir. „Að jafn­aði voru ein­stak­ling­arnir fimmtán því búnir að fá end­an­lega nið­ur­stöðu á stjórn­sýslu­stigi, um að þeir fengju ekki efn­is­lega með­ferð og bæri að yfir­gefa landið, sjö mán­uðum frá umsókn,“ segir Þór­hildur. Sá sem beið skemmst fékk end­an­lega nið­ur­stöðu á báðum stjórn­sýslu­stigum fjórum mán­uðum frá umsókn og sá sem beið lengst fékk end­an­lega nið­ur­stöðu 10 mán­uðum frá umsókn.

Af þessum fimmtán mann­eskjum ósk­uðu ell­efu eftir því við kæru­nefnd útlend­inga­mála að hún frestaði rétt­ar­á­hrifum úrskurða sinna til að þeir gætu verið staddir á land­inu á meðan þeir færu með mál sín fyrir dóm­stóla. Nefndin hafn­aði öllum slíkum beiðnum.

Málunum lokið en ekki hægt að frávísa

Eftir að end­an­legar nið­ur­stöður lágu fyrir í málum fólks­ins sendi Útlend­inga­stofnun verk­beiðnir til stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra um að hún fram­kvæmdi ákvarð­anir stjórn­valda „með því að fylgja fólk­inu til baka til Grikk­lands,“ segir Þór­hildur. Þegar til aðgerð­anna kom voru yngstu verk­beiðn­irnar innan við eins mán­aðar gamlar en sú elsta var send stoð­deild fyrir 20 mán­uðum.

Sú töf á frá­vísun skýrist fyrst og fremst af því að mán­uðum saman gátu stjórn­völd ekki sent fólk til Grikk­lands vegna heims­far­ald­urs­ins.

Átta manns úr hópnum höfðu lagt fram beiðnir um end­ur­upp­töku máls síns til kæru­nefndar útlend­inga­mála. Nefndin hefur að sögn Þór­hildar þegar hafnað hluta beiðn­anna en nokkrar þeirra eru enn í vinnslu. „Beiðni um end­ur­upp­töku frestar ekki rétt­ar­á­hrifum gild­andi nið­ur­stöðu og því hafa slíkar beiðnir ekki áhrif á skyldu ein­stak­linga, sem ekki hafa heim­ild til dvalar á land­inu, til að yfir­gefa landið.“

Hún ítrekar að það sé stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra sem beri ábyrgð á fram­kvæmd frá­vís­ana. „Á meðan verk­beiðnir eru til staðar er það hlut­verk stoð­deildar að hafa uppi á þeim ein­stak­lingum sem þar eiga undir og tryggja að þeir yfir­gefi landið, með eða án fylgdar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár