41 lögreglumaður flaug með fimmtán manneskjur úr landi

Það er Rík­is­lög­reglu­stjóri sem ákveður hvenær og hvernig brott­vísun hæl­is­leit­enda frá land­inu er fram­kvæmd, segir Íris Krist­ins­dóttir, sviðs­stjóri hjá Útlend­inga­stofnun. Verk­beiðnin kom frá Útlend­inga­stofnun, segir lög­reglan.

Lög­reglu­menn að leita að fólki á heim­ilum og á sam­komu­stöðum. Hand­tökur. Gæslu­varð­hald. Fólk hand­járnað. Símar þess teknir. Rútur með dregið fyrir glugga og skær ljós til að blinda fjöl­miðla­menn. Já, og far­þega­þota tekin á leigu til að fljúga með fimmtán mann­eskjur til Aþenu í fylgd 41 lög­reglu­manns. Þar voru þær skildar eftir á flug­vell­inum, að minnsta kosti í ein­hverjum til­fellum án þess að hafa fengið að taka með sér föt til skipt­anna eða nokkuð annað.

Með miklum, skipu­lögðum og kostn­að­ar­sömum aðgerðum stjórn­valda var fólk sem hingað hefur komið í leit að alþjóð­legri vernd flutt með valdi úr landi aðfara­nótt fimmtu­dags. Fólkið á, eftir því sem Kjarninn kemst næst, það sam­eig­in­legt að hafa dvalið hér í langan tíma, jafn­vel tvö ár, en fengið þá nið­ur­stöðu í kerf­inu að hér fái það ekki að vera á þeirri for­sendu að það hafi áður hlotið hæli í Grikk­landi. Í landi sem er legu sinnar vegna fyrsti við­komu­staður fólks á flótta undan átökum, ofsóknum, áhrifum lofts­lags­ham­fara af manna­völdum og í leit að betra lífi. Sæmi­legri lífs­kjörum. Vinnu. Friði.

Ekkert af þessu er tryggt í Grikk­landi, þar á flótta­fólk undir högg að sækja, enda þrá flestir á flótta að fara þaðan og til ann­arra Evr­ópu­landa. Sumt endar flótt­ann á Íslandi. Eða von­ast að minnsta kosti til þess að hann endi hér. En þar sem þau hafa neyðst til að þiggja hæli í Grikk­landi, sem stjórn­völd hér skil­greina sem öruggt land þrátt fyrir ábend­ingar fjöl­margra mann­úð­ar­sam­taka um allt annað, eru þau oft­ast send til baka.

Þannig eru lögin, þannig eru regl­urnar, sem íslensk stjórn­völd hafa sett og segj­ast verða að fara eftir. Hins vegar hafa í gegnum tíð­ina verið veittar und­an­þágur frá þessum reglum í ákveðnum málum, t.d. ef aðstæður fólks, bak­grunnur eða staða, eru með sér­stökum hætti. Ef afgreiðsla mála þeirra hefur til að mynda taf­ist af ein­hverjum ástæðum.

Fordæmið

Fólkið sem vísað var frá Íslandi á fimmtu­dags­nótt­ina er í sér­stakri stöðu. Það hefur vissu­lega fengið nei­kvæða nið­ur­stöðu í sínar umsóknir um vernd, en er margt hvert í sam­bæri­legri stöðu og ungur Palest­ínu­maður sem fór með mál sitt fyrir dóm­stóla og hafði sigur í því gegn íslenska rík­inu.

Hann hafði fengið nei­kvæða nið­ur­stöðu í sitt vernd­ar­mál en ekki var hægt að vísa honum frá land­inu er hún lá fyrir vegna tak­mark­ana sem settar voru á í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Grísk stjórn­völd tóku ekki við „end­ur­send­ingum“, líkt og það er oft orðað, við þær hættu­legu aðstæður sem voru uppi.

Yfirvöld á Íslandi sögðu hann og aðra hæl­is­leit­endur sem svo var ástatt fyrir hins vegar hafa tafið mál sín vilj­andi, m.a. með því að neita að und­ir­gang­ast COVID-próf, sem var um tíma for­senda þess að mega fara á milli landa.

Þessum ásök­unum vís­aði Palest­ínu­mað­ur­inn ungi á bug, kærði ríkið, og tók dóm­ari undir með honum: Stjórn­völdum var óheim­ilt að synja honum um end­ur­upp­töku máls­ins vegna ásak­ana um tafir.

Hæl­is­leit­endur sem dvalið hafa hér á landi í tólf mán­uði eða lengur, af hvaða ástæðum sem það svo sem er, eiga almennt rétt á slíkri end­ur­upp­töku. Það þýðir ekki að þeir fái hér sjálf­krafa skjól, en það eykur líkur á því.

Eftir svo langa dvöl hefur fólk tengst sam­fé­lag­inu. Hafið skóla­göngu. Fengið fasta vinnu. Slíkt átti við um fólkið í hópnum sem fluttur var með valdi úr land­inu í vik­unni.

Og það er þessi nýlega fallni dómur sem flótta­fólkið sem hér hefur verið lengi taldi for­dæm­is­gef­andi. Þess vegna bað margt þeirra, að minnsta kosti rúm­lega þrjá­tíu manns, um að mál þess yrðu end­ur­upp­tekin á sömu for­sendum og mál unga Palest­ínu­manns­ins.

Báðu um frest

Beiðnir þeirra voru sendar til kæru­nefndar útlend­inga­mála strax í kjöl­far dóms­ins. Að sama skapi voru sendar beiðnir til Útlend­inga­stofn­unar og stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra að fram­kvæmd frá­vís­ana yrði frestað þar til nefndin hefði fjallað um beiðn­irnar. Lögmenn fólks­ins fengu engin svör við þeim beiðnum. Fyrr en á fimmtu­dag. Nokkrum klukku­stundum áður en fólkið var sett upp í flug­vél, margt hvert í fjötrum, og sent úr landi.

Útlend­inga­stofnun ákvað að fram­kvæmd frá­vís­unar yrði aðeins frestað í til­viki tveggja ein­stak­linga. Ekki var vilji til að slíkt hið sama myndi gilda um alla hina sem telja sig í svip­aðri stöðu og unga Palest­ínu­mann­inn. Jafnvel þótt lík­lega sé það aðeins daga­spurs­mál hvenær kæru­nefndin skilar nið­ur­stöðu í end­ur­upp­töku­beiðnum þeirra. „Það tapar eng­inn á því að bíða,“ sagði Magnús Norðdahl, lög­maður margra úr hópnum, við Kjarnann á mið­viku­dag er þrír skjól­stæð­ingar hans, sem flytja átti úr landi, höfðu verið hand­teknir og settir í gæslu­varð­hald í fang­els­inu á Hólms­heiði.

En stjórn­völd vildu ekki bíða.

Fjölmargar spurningar

Allt frá því að greint var frá því í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum að verið væri að flytja fólk með valdi út af heim­ilum sínum og til Kefla­vík­ur­flug­vallar hefur Kjarninn unnið að því að fá svör frá stjórn­völdum við þeim fjöl­mörgu spurn­ingum sem hafa vaknað. Um lög­reglu­að­gerð­irnar og tíma­setn­ingu þeirra. Hvers vegna málið þoldi enga bið, hvers vegna fólki sem hér hefur dvalið lengur en í tólf mán­uði var vísað á brott áður en kæru­nefndin fjall­aði um beiðnir þess um end­ur­upp­töku.

Hvers vegna núna?

Og hver er kostn­að­ur­inn sem fellur á ríkið af þess­ari umfangs­miklu aðgerð? Hver ákvað að ljós yrðu notuð á Kefla­vík­ur­flug­velli til að blinda fjöl­miðla­menn sem voru að vinna vinn­una sína? Var það lög­reglan, eins og ISAVIA heldur fram, eða er það málum blandið, líkt og rík­is­lög­reglu­stjóri virð­ist vera að meina með óskýru orða­lagi í til­kynn­ingu um málið?

Flóttafólk sefur á götum úti í Aþenu, höfuðborg Grikklands.
Flótta­fólk sefur á götum úti í Aþenu, höf­uð­borg Grikk­lands.

Skemmst er frá því að segja að Kjarn­anum hefur ekki tek­ist að fá svör við öllum sínum spurn­ingum. Kæru­nefnd útlend­inga­mála, Útlend­inga­stofnun og Rík­is­lög­reglu­stjóri hafa þó sent skrif­leg svör, þau er mörg hver stofn­ana­leg og eru engan veg­inn tæm­andi. Vekja oft enn fleiri spurn­ingar.

Voru símar teknir af fólk­inu?

„Já, símar voru teknir af fólki til að tryggja öryggi,“ segir í svari emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra.

Var fólk í hópnum hand­járnað?

„Það voru aðilar sem fylgt var til Grikk­lands sem voru í hand­járnum um tíma, mis­langan. Hand­járnum er beitt til þess að tryggja öryggi fólks, sem og ann­arra en ekki lengur en þörf krefur. Vald­beit­ing getur verið nauð­syn­leg þegar flytja á fólk gegn vilja þess en mark­mið lög­reglu er koma fólki með sem öruggustum hætti á áfanga­stað.“

Var fólk­inu boðið að hafa sam­band við lög­mann eða annan stuðn­ings­að­ila?

„Það er í verk­lagi stoð­deildar að ein­stak­lingar fá að láta vita af sér og einnig tala við lög­mann. Ein­stak­ling­ur­inn sem þarf að styðj­ast við hjóla­stól fékk að tala við rétt­inda­gæslu­mann fatl­aðs fólks, sinn tals­mann sím­leiðis, sem og lög­mann. Lögmenn fá ekki að fylgja sínum skjól­stæð­ingum í fylgd úr landi en skýrt var af hálfu stoð­deildar að aðilar áttu rétt á að fá að tala við sína lög­menn.“

Áður en lengra er haldið skal tekið fram að fólkið sem var flutt af landi brott á fimmtu­dags­nótt­ina sætir frá­vísun en ekki brott­vísun en á þessu tvennu er skil­grein­ing­ar­munur. Sá sem sætir frá­vísun fer ekki sam­hliða í end­ur­komu­bann. Sé umsókn mann­eskju um alþjóð­lega vernd ber­sýni­lega til­hæfu­laus að mati stjórn­valda getur við­kom­andi hins vegar verið brott­vísað og þarf þá að sæta end­ur­komu­banni. Það er að segja: Hann getur ekki komið aftur til lands­ins innan tveggja ára eða lengur eftir atvikum. Sú ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar er kær­an­leg.

Beiðnirnar enn í vinnslu

End­ur­komu­bannið breytir því hins vegar ekki því að fái við­kom­andi mál sitt end­ur­upp­tekið og í kjöl­farið þá nið­ur­stöðu að það skuli tekið til efn­is­með­ferðar, honum veitt alþjóð­leg vernd eða dval­ar­leyfi hér á landi, getur hann snúið aftur. „Ef nið­ur­staða end­ur­upp­töku­beiðni er jákvæð þá eru fyrri ákvarð­anir í mál­inu felldar úr gildi þannig að end­ur­komu­bann sem slíkt hefur ekki áhrif á nið­ur­stöð­una,“ segir í skrif­legu svari Þor­steins Gunn­ars­sonar, for­manns kæru­nefndar útlend­inga­mála, við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Það er því ekki þannig að með flutn­ingi fólks­ins úr landi nú, fólki sem var frá­vísað en ekki brott­vísað, falli beiðni þeirra um end­ur­upp­töku niður hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála. Þeim verður svarað með úrskurði frá nefnd­inni, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Þor­steins. Tekið skal fram að hann getur ekki tjáð sig um ein­stök mál heldur aðeins almennt.

„Hafi kær­andi lagt fram beiðni um end­ur­upp­töku eftir að hafa fengið synjun á umsókn sinni og þar af leið­andi frá­vísun eða eftir atvikum brott­vísun og end­ur­komu­bann þá er afstaða tekin til end­ur­upp­töku­beiðn­innar þrátt fyrir að við­kom­andi hafi verið fluttur til við­töku­ríkis eða heima­ríkis,” segir hann.

Það er ekk­ert sem bannar ein­stak­lingum í þeirri stöðu að koma aftur til lands­ins.
Starfsmenn ISAVIA beindu skærum ljósum að fréttamönnum til að koma í veg fyrir að þeir gætu fylgst með aðgerðum lögreglu á Keflavíkurflugvelli. Mynd: Skjáskot: RÚV
Starfs­menn ISAVIA beindu skærum ljósum að frétta­mönnum til að koma í veg fyrir að þeir gætu fylgst með aðgerðum lög­reglu á Kefla­vík­ur­flug­velli. Mynd: Skjáskot: RÚV

Hagnýt atriði varð­andi það að snúa til baka geta að sögn Þor­steins verið leyst með sam­starfi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Þau sem hlotið hafa alþjóð­lega vernd í öðru aðild­ar­ríki Schengen-sam­starfs­ins þá hafa þeir ferða­heim­ild innan Schengen-ríkj­anna, þar með talið til Íslands.

Íris Krist­ins­dóttir, sviðs­stjóri vernd­ar­sviðs Útlend­inga­stofn­unar segir við Kjarnann að þar sem end­ur­komu­bann fylgi ekki frá­vísun sé „ekk­ert sem bannar ein­stak­lingum í þeirri stöðu að koma aftur til lands­ins að því gefnu að reglur um ferða­frelsi innan Schengen ríkj­anna sé virt.“

Útrunnin leyfi og skilríki

En málið er ekki svo ein­falt ef þú ert flótta­maður. Í fyrsta lagi liggur í augum uppi að fæstir hafa efni á að fljúga hingað aftur. Dæmi eru um að fólk sé árum saman að safna sér fyrir flug­miða. Þannig að með end­ur­send­ingu til Grikk­lands, þar sem fólkið er komið með hæli eða vernd, og fær því ekki fjár­stuðn­ing líkt og þeir sem slíks leita, fær mjög ólík­lega atvinnu miðað við reynsl­una almennt hingað til, hafa stjórn­völd búið svo um hnúta að ólík­legt er að fólk geti snúið aftur.

Í öðru lagi þá fá flótta­menn í Grikk­landi útgefin ferða­skil­ríki með tak­mörk­unum. Þau eru ekki eins og fag­ur­bláu vega­bréfin okkar sem opna heim­inn að mestu upp á gátt. Þau gilda í stuttan tíma í einu og eru í til­fellum fólks­ins sem vísað var frá land­inu í vik­unni að öllum lík­indum útrunnin enda fólkið dvalið hér á landi vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins í jafn­vel tvö ár eða lengur. Og að sækja um ný ferða­skil­ríki er tíma­frekt ferli.

Þá er enn fremur lík­legt að dval­ar­leyfi þeirra í Grikk­landi sé útrunnið. Og að sækja um það að nýju er einnig tíma­frekt.

Þannig að sam­an­tekið: Jú, þar sem fólk­inu er frá­vísað en ekki sett í end­ur­komu­bann er því frjálst að koma hingað aftur. En getur það oft ekki.

Um þrjár vikur eru liðnar síðan að í það minnsta stærstur hluti hóps­ins lagði inn beiðni um end­ur­upp­töku til kæru­nefnd­ar­innar.

21 dagur.

Að sögn Þor­steins, for­manns kæru­nefndar, var með­al­máls­með­ferð­ar­tími í málum sem varða end­ur­upp­töku fyrir nefnd­inni fyrstu níu mán­uði þessa árs 44 dagar. Það má því ætla að nið­ur­stöður í málum fólks­ins muni liggja fyrir eftir um það bil þrjár vikur.

Í til­felli íra­skrar fjöl­skyldu sem vísað var frá land­inu í lög­reglu­fylgd í gær, er aðal­með­ferð í máli fatl­aðs manns sem henni til­heyrir gegn íslenska rík­inu á dag­skrá hér­aðs­dóms eftir þrettán daga. Hann getur því ekki verið við­staddur hana og skýrt mál sitt.

Af hverju var ekki hægt að bíða með fram­kvæmd frá­vís­ananna?

Því getur kæru­nefndin ekki svarað og Kjarninn hefur ekki fengið, enn sem komið er, skýr svör við því frá öðrum stofn­unum. Því það er í þessu máli eins og svo mörgum að ýmist vilja stofn­anir ekki tjá sig nema mjög almennt með vísun í lög og reglu­gerðir eða vísa hver á aðra.

Það væri nú það minnsta sem við gátum gert, að leyfa honum að hafa hel­vítis stól­inn með sér.

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra sendi frá sér til­kynn­ingu í gær­morgun um aðgerðir sínar. Í þeirri til­kynn­ingu var aðeins að finna svör við fáum þeirra spurn­inga sem brenna á almenn­ingi. Fyr­ir­sögn hennar var: Vegna fylgdar til Grikk­lands.

Í henni kom fram að aðgerð­irnar hefðu verið í und­ir­bún­ingi í rúm­lega mánuð. Til hafi staðið að „fylgja“ 28 manns til Grikk­lands en þrettán ein­stak­lingar „fund­ust ekki þegar þeirra var leitað“. Einnig sagði að engin börn hefðu verið í flug­inu og að hjóla­stóll hefði fylgt fatl­aða Írakanum til áfanga­staðar.

Þar sem ekki kom fram var hvaða hjóla­stóll fylgdi honum. Og að hleðslu­tæki til að hlaða raf­hlöðu stóls­ins, hefði ekki verið tekið með.

Helvítis stólinn

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra sem hefur talað fyrir hert­ari útlend­inga­lög­gjöf, m.a. viðrað hug­myndir um lok­aðar flótta­manna­búðir, var spurður út í þennan þátt aðgerða lög­reglu í útvarps­þætt­inum Reykja­vík síð­degis í fyrra­dag. „Það fylgdi honum svo raf­magns­hjóla­stóll til Grikk­lands sem svo varð eftir þar,“ sagði ráð­herr­ann.

Takið eftir: Raf­magns­hjóla­stóll. Ekki „stóll­inn“, með ákveðnum greini. Því ungi, fatl­aði Írakinn, Hussein Hassain, hafði fengið að láni hér á landi hjóla­stól sem hent­aði hans þörfum sér­stak­lega. Sá stóll fór hvergi og er enn á íslenskri grundu. „Ég tala nú ekki um ef þú átt að fara að búa á göt­unni í Grikk­landi, þá þarftu að minnsta kosti að eiga góðan hjóla­stól,“ sagði Anna Lára Steindal, verk­efna­stjóri Þroska­hjálpar, við RÚV í morgun „Það væri nú það minnsta sem við gátum gert, að leyfa honum að hafa hel­vítis stól­inn með sér.“

Yasameen Hussien, systir Hussein, sagði í sam­tali við Kjarnann í fyrra­dag að hleðslu­tæki hefði ekki fylgt raf­magns­hjóla­stólnum sem fór með til Grikk­lands. „Þegar hleðslan klár­ast þá vitum við ekki hvað við eigum að gera,“ sagði hún. „Hussein er mjög þreyttur og hefur ekk­ert borðað frá því að honum var vísað frá Íslandi,“ bætti hún við.

Lögreglumenn tóku Hussein Hussien úr hjólastólnum og báru hann inn í bíl.
Lög­reglu­menn tóku Hussein Hussien úr hjóla­stólnum og báru hann inn í bíl.

Lög­reglan og dóms­mála­ráð­herra hafa ítrekað sagt að fólk­inu hafi verið gef­inn kostur á að yfir­gefa landið sjálf­vilj­ugt og án lög­reglu­fylgdar. „Ef umsækj­andi er met­inn ósam­vinnu­þýður eða hættu­legur hefur lög­regla vald­heim­ildir til að tryggja að lög­reglu­fylgd nái fram að ganga og til að tryggja öryggi við­kom­andi og almenn­ings í fram­kvæmd­inni,“ sagði í til­kynn­ingu rík­is­lög­reglu­stjóra í fyrra­dag. „Vald­heim­ildum er ekki beitt nema nauð­syn þyki til.“

Miðað við myndir og mynd­bönd sem birt hafa verið af fólki sem sá til aðferða lög­reglu var valdi beitt. Fólk var hand­tekið, það hafa lög­menn stað­fest, og það fjötrað, að því er Yasameen lýsti m.a. í sam­tali við Kjarnann er hún var komin til Grikk­lands. Það hefur emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra líkt og fyrr greinir stað­fest.

En hver ákvað hvað og hvenær? Hver ákvað hverjum skyldi vísað úr landi og af hverju núna?

Það er á valdi lög­regl­unnar að ákveða hvenær og hvernig frá­vís­unum fólks er háttað, líkt og Íris, sviðs­stjóri hjá Útlend­inga­stofnun, bendir á í sínum svörum við spurn­ingum Kjarnans. „Hvað spurn­ingar þínar varðar er lúta að fram­kvæmd flutn­ings­ins vísar stofn­unin á Rík­is­lög­reglu­stjóra. Stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra ann­ast fram­kvæmd frá­vís­ana og brott­vís­ana úr landi og skipu­leggur allar slíkar aðgerðir. Það er á for­ræði stoð­deildar að ákvarða ferða­leiðir og tíma­setn­ingu slíkra flutn­inga úr landi.“

End­ur­upp­töku­beiðnir vegna að minnsta kosti margra, ef ekki allra, í þessum hópi hafa verið sendar kæru­nefnd útlend­inga­mála fyrir um þremur vikum. Hvers vegna var ákveðið að vísa því fólki úr landi áður en að nefndin hefur kom­ist að nið­ur­stöðu?

„Beiðni um end­ur­upp­töku frestar ekki rétt­ar­á­hrifum frá­vís­unar frá landi,“ segir ein­fald­lega í svari Írisar. „Í málum sem þessum þá liggur fyrir end­an­leg nið­ur­staða stjórn­valda um frá­vísun frá landi og því verður fram­kvæmd­ar­beiðni í slíkum málum ekki aft­ur­kölluð nema það liggi fyrir úrskurður frá kæru­nefnd útlend­inga­mála sem mælir fyrir um breytta stöðu við­kom­andi hér á landi.“

Kjarninn bað um frek­ari svör hvað þetta atriði varðar.

Hvers vegna var ákveðið að fram­kvæma brott­vísun akkúrat núna? Þegar mál fólks­ins eru í vinnslu hjá kæru­nefnd­inni?

„Ég vísa í fyrri svör mín en bæti þó við að það er á for­ræði Rík­is­lög­reglu­stjóra að ákveða hvenær og hvernig frá­vísun frá land­inu er fram­kvæmd,“ svar­aði Íris þá. „Það er ekki í höndum Útlend­inga­stofn­unar að ákvarða um tíma­setn­ingar slíkra flutn­inga.“

Var rætt að bíða með það þar til nið­ur­stöður kæru­nefndar liggja fyrir?

„Í verk­lagi stoð­deildar er það ávallt kannað áður en til flutn­ings kemur hvort eitt­hvað standi því í vegi að flutn­ingur úr landi geti farið fram,“ sagði Íris. „Slík upp­lýs­inga­öflun getur verið með ýmsum hætti, bæði öflun gagna og eins að óska eftir upp­lýs­ingum frá Útlend­inga­stofnun.“

Ljóst er nú að ákveðið var að fresta fram­kvæmd frá­vís­unar tveggja ein­stak­linga úr hópnum sem til stóð að flytja úr landi. Þannig gat stofn­unin aug­ljós­lega haft áhrif á hverjir yrðu fluttir og hvenær.

Kjarninn spurði enn fremur hvort það væri ekki á for­ræði Útlend­inga­stofn­unar að svara spurn­ingum um sam­setn­ingu hóps­ins; þjóð­erni, aldur og fleira.

„Útlend­inga­stofnun er ekki með raun­tíma­upp­lýs­ingar frá stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra þegar flutn­ingar eru fram­kvæmdir,“ svar­aði Íris. „Stofn­unin fékk upp­lýs­ingar um að til stæði að flytja ákveð­inn fjölda ein­stak­linga til Grikk­lands en er því miður ekki komin með nákvæmar upp­lýs­ingar hvaða ein­stak­lingar stigu um borð í flug­vél­ina.“ Gagna um þetta atriði sé beðið.

Hver fyr­ir­skip­aði að fólk­inu skyldi vísað úr landi akkúrat núna?

„Þessi fylgd hefur verið í und­ir­bún­ingi í nokkrar vikur og er ákvörðun um tíma­setn­ing tekin út frá vinnu stoð­deildar við und­ir­bún­ing,“ sagði í svörum Gunnars Harðar Garð­ars­sonar, sam­skipta­stjóra Rík­is­lög­reglu­stjóra við spurn­ingum Kjarnans. „Þegar verk­beiðni um flutn­ing berst frá Útlend­inga­stofnun, á að hefja flutn­ing sem fyrst, en slíkt er t.d. háð reglum um máls­með­ferð­ar­tíma.

Fyr­ir­skipun um tíma­setn­ingu á fylgd kom ekki frá rík­is­lög­reglu­stjóra heldur var tekin af starfs­mönnum stoð­deildar vegna fjölda þeirra aðila sem á að fylgja úr landi og hafa ekki yfir­gefið landið sjálf.“

Hversu margir lög­reglu­menn tóku þátt í þeim aðgerðum sem staðið hafa yfir síð­ustu daga við að hafa uppi á og flytja fólkið úr landi?

„Þessar upp­lýs­ingar liggja ekki fyrir að svo stöddu,“ svar­aði Gunnar. „Það voru 45 aðilar í vél­inni í heild sem höfðu hlut­verki að gegna í vél­inni. Þar af 41 lög­reglu­maður, almennur starfs­maður rík­is­lög­reglu­stjóra, læknir, túlkur. Einnig var með í för óháður eft­ir­lits­að­ili með aðgerðum lög­regl­unnar (mon­itor).“

Hver leigir flug­vél til að flytja fólkið úr landi og af hverjum?

„Stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra leigir vél­ina. Vélin var leigð af tékk­neska flug­fé­lag­inu Smartwings í gegnum evr­ópskt leigu­fé­lag sem ann­ast flug­véla­leigu.“

Í hópnum var m.a. fatl­aður maður sem not­ast við hjóla­stól. Fékk lög­reglan vit­neskju um stöðu þessa manns fyr­ir­fram?

„Vitað var að mað­ur­inn not­að­ist við hjóla­stól,“ svar­aði Gunnar. „Skyndi­legar breyt­ingar á vett­vangi urðu til þess að flytja þurfti fólkið fyrr frá hót­el­inu sem það dvaldi á til að tryggja öryggi allra á vett­vangi. Því miður tókst ekki, þrátt fyrir til­raunir, að útvega við­eig­andi bif­reið til þess að flytja mann­inn í hjóla­stólnum á þeim tíma og var mað­ur­inn því fluttur í óbreyttri bif­reið. Rík­is­lög­reglu­stjóri mun fara yfir verk­lag stoð­deildar í tengslum við þetta.“

Var haft sam­band við ISAVIA og starfs­menn á þeirra vegum beðnir um að beina ljósum að fjöl­miðla­mönnum til að koma í veg fyrir að þeir gætu fylgst með aðgerðum á flug­vell­inum?

„Á Kefla­vík­ur­flug­velli í gær­morgun var not­ast við ljós til þess að byrgja sýn fjöl­miðla og ann­ara sem stóðu utan girð­ingar Kefla­vík­ur­flug­vallar,“ svar­aði Gunnar. „Lögregla leggur ríka áherslu á að fjöl­miðlar hafi gott aðgengi að störfum lög­reglu, ekki síður þeim verk­efnum sem eru sér­stak­lega krefj­andi. Lögregla mun funda með ISAVIA í þeim til­gangi að fara yfir atvik máls­ins til að varpa ljósi á hvar ákvarð­ana­taka liggur. Ekki stóð til að hindra störf fjöl­miðla en fjöl­miðlar höfðu mun greið­ara aðgengi að myndun aðgerða lög­reglu á fyrri stigum sama máls.“

Hver er kostn­aður við aðgerð­irnar?

„Liggur ekki fyrir að svo stöddu en verður tekið saman.“

Gunnar bætir svo við að „vegna frétta­flutn­ings um aðgerðir lög­reglu er vert að taka fram að þó það hafi komið til vald­beit­ingar, fólk fært í hand­járn eftir þörfum til að mynda, þá sló eða lamdi lög­regla engan. Hins vegar var ráð­ist að lög­reglu­mönnum.“

Þarna er Gunnar að vísa í frétta­flutn­ing Kjarnans.

Yasameen Hussien sagði í við­tali að lög­reglan hefði lagt hendur á bróður hennar. Það er upp­lifun hennar af þeim nauð­ung­ar­flutn­ingi sem átti sér stað, sem sam­ræm­ist ekki upp­lifun lög­regl­unnar sem er vön að fást við aðstæður sem þessar, þar sem fólk er tekið gegn vilja sínum úr aðstæðum sem það taldi sig öruggt í, til að flytja í aðstæður sem það telur sig ekki öruggt í. Jafnvel í fjötrum.

Mat „allra aðila“

„Það er nú helst að geta varð­andi Grikk­land að hér hafa bæði Útlend­inga­stofnun, kæru­nefnd útlend­inga­mála og reyndar dóm­stólar stað­fest það að Grikk­land sé ekk­ert und­an­skilið því að það eigi að senda þangað fólk. Það er mat allra aðila sem hafa fjallað um þessi mál og kynnt sér aðstæður.“

Þetta sagði Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra m.a. í við­tali við Reykja­vík síð­degis á fimmtu­dag. Nokkrum klukku­stundum eftir að flug­vélin tók á loft frá Kefla­vík­ur­flug­velli með fimmtán manns á flótta og 41 lög­reglu­mann inn­an­borðs.

Jón er þarna vænt­an­lega að vísa í aðila á vegum stjórn­valda sem kynnt hafa sér aðstæður flótta­fólks í Grikk­landi. Ekki „allra aðila“ sem það hafa gert. Því það er engan veg­inn rétt.

Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son, dóms­mála­ráð­herra.

Óboðlegar aðstæður

Líkt og Rauði kross­inn hefur ítrekað bent á ber fjölda heim­ilda saman um að aðstæður flótta­fólks í Grikk­landi séu heilt yfir mjög slæmar.

Umsækj­endur, sem hlotið hafa alþjóð­lega vernd í Grikk­landi og seinna leitað hingað til lands og óskað eftir alþjóð­legri vernd, hafa jafn­framt und­an­tekn­ing­ar­laust greint frá óvið­un­andi aðstæðum í Grikk­landi. Hefur yfir­gnæf­andi meiri­hluti þeirra búið í yfir­fullum flótta­manna­búðum þar sem öryggi, hrein­læti og aðbún­aði er veru­lega ábóta­vant, benti Rauði kross­inn á Íslandi á í yfir­lýs­ingu vegna flutn­ings fólks­ins frá land­inu fyrr í vik­unni.

Þegar umsækj­endur hafi hlotið vernd „neyð­ast þeir til að yfir­gefa búð­irnar, auk þess sem þeir missa þá lágu fram­færslu sem þeim er tryggð á meðan þeir bíða eftir svari við umsókn sinni um vernd,“ benti Rauði kross­inn enn­fremur á. „Vegna kerf­is­bund­inna hind­r­ana og afar mik­ils atvinnu­leysis meðal flótta­fólks í land­inu ná umsækj­endur ekki að fram­fleyta sér og fjöl­skyldum sínum en fjár­hags­legur og félags­legur stuðn­ingur frá yfir­völdum er eng­inn.“

Flóttamannabúðir á grísku eyjunni Lesbos.
Flótta­manna­búðir á grísku eyj­unni Lesbos.

Þá sé aðgengi flótta­fólks að hús­næði í Grikk­landi alvar­legt vanda­mál og þurfa margir hverjir af þeim sökum að haf­ast við í óvið­un­andi og/eða ólög­legu hús­næði eða á göt­unni. Þar að auki sé aðgengi flótta­fólks að grísku heil­brigð­is­kerfi veru­lega skert.

„Rauði kross­inn ítrekar fyrri til­mæli sín til hér­lendra stjórn­valda og hvetur rík­is­stjórn Íslands ein­dregið til að end­ur­skoða þá stefnu að senda umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, sem fengið hafa stöðu sína við­ur­kennda í Grikk­landi, aftur þangað. Ástandið í Grikk­landi hefur um nokk­urt skeið verið óboð­legt fyrir flótta­fólk en fólk á flótta á að njóta mann­rétt­inda á sama hátt og annað fólk.“

Versti dagur lífs míns

Yasameen, tveir bræður hennar, systir og móðir, eru nú komin aftur inn í þessar óboð­legu aðstæður sem Rauði kross­inn lýsir. Fjöl­skyldan flúði heima­land sitt Írak, fékk hæli í Grikk­landi en hélt flótt­anum áfram til Íslands. Hingað komu þau fyrir tveimur árum. Á þeim tíma fékk Hussein, sem er alvar­lega veikur og not­ast við hjóla­stól, nauð­syn­lega lækn­is­að­stoð. Hann vildi ekki snúa aftur til Grikk­lands enda bíður hann þess að fá nið­ur­stöðu í kæru sína gagn­vart íslenska rík­inu. Kæru sem snýst um það sem hann telur brot á ákvæðum samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks sem og brot gegn jafn­ræð­is­reglu stjórn­sýslu­laga.

Hann var tek­inn með valdi, bor­inn af lög­reglu­mönnum inn í bíl og færður upp í flug­vél, aðeins örfáum dögum áður en dóm­stólar munu fjalla um málið.

Yasameen systir hans átti afmæli í gær, „við verstu aðstæður sem hugs­ast getur,“ sagði hún við Kjarnann. „Þetta er versti dagur lífs míns.“

Á undan var gengin versta nótt lífs hennar. Þegar hún og aðrir í fjöl­skyld­unni voru teknir gegn vilja sínum og fluttir til Grikk­lands.

Leikurinn og reglurnar

„Við skulum bara rifja það upp að Grikk­land er eitt af Evr­ópu­sam­bands­lönd­unum,“ sagði dóms­mála­ráð­herra í við­tal­inu við Reykja­vík síð­degis. „Það eru ekki neinar ómann­úð­legar aðstæður sem er hægt að halda fram [að séu] í Grikk­landi. En hvort að lífs­skil­yrðin séu jafn­góð og á Íslandi, ég er ekk­ert viss um það enda eru þau hvað best hér á landi af öllum þjóðum sem við berum okkur saman við.“

Jón sagð­ist ekki hafa „kynnt sér það sér­stak­lega“ hvort að lög­reglan hefði farið offari í aðgerðum sínum. „Ég er alveg sann­færður um að svo er ekki. Ég treysti lög­regl­unni í þessum málum sem öðrum. Svona mál lit­ast oft af miklum til­finn­ingum og maður getur haft mikla samúð með öllu þessu fólki sem er í þessum erf­iðu aðstæðum. En ein­hvers staðar verða að vera skýrar leik­reglur í þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið undanfarið ár