„Þetta var versta nótt lífs míns – eins og martröð“

„Það var komið fram við okkur eins og glæpa­menn. Þeir lömdu fatl­aðan bróður minn sem var í hjóla­stólnum og hinn bróður minn þegar hann reyndi að verja hann. Þeir börðu hann og tóku hann.“

Við sitjum hérna á göt­unni í Grikk­landi. Ástandið er slæmt,“ segir Yismen Hussien, ung kona úr fimm manna fjöl­skyldu frá Írak sem flutt var með leiguflugi í lög­reglu­fylgd frá Íslandi eldsnemma í morgun ásamt fleiri umsækj­endum um alþjóð­lega vernd. Bróðir hennar er alvar­lega veikur og not­ast við hjóla­stól. Fjöl­skyldan er pen­inga­laus, að sögn Yismen, sem Kjarninn ræddi við síð­degis í dag. „Þeir leyfðu okkur ekki að taka neitt með okkur. Ég er komin til Grikk­lands með skóla­tösk­una mína og nokkrar skóla­bækur. Ekkert meira.“

Eftir kom­una til Grikk­lands var hóp­ur­inn, sem telur fimmtán manns, hrein­lega skil­inn eftir við flug­stöð­ina. „Þeir skildu okkur eftir og fóru,“ segir Yismen. „Gerið það, hjálpið okkur, gerið það. Dauði er betri fyrir mig en að dvelja hér. Litla systir mín reyndi að svipta sig lífi því hún er svo örvingluð.“

Vinir þeirra á Íslandi, fólk sem starfar við skól­ann sem hún hefur stundað íslensku­nám í, hefur veitt þeim aðstoð svo að þau geta verið á hót­eli í nótt. „En ég veit ekki hvað bíður mín á morgun.“

Vísað á brott eftir tveggja ára dvöl

Yismen hafði verið á Íslandi í um tvö ár. Hingað kom hún, sem og móðir hennar, systir og tveir bræður, í leit að vernd. Þar sem þau höfðu áður fengið vernd í Grikk­landi, ákváðu íslensk stjórn­völd að synja þeim um vernd hér og vísa af landi brott. Mál þeirra var þó ekki útkljáð fyrir dóm­stólum því þann 18. nóv­em­ber, eftir aðeins örfáa daga, á að taka fyrir í hér­aðs­dómi mál bróður hennar, Hassein Hussien, gegn íslenska rík­inu. Með frá­vís­un­inni kemur íslenska ríkið hins vegar í veg fyrir að Hussein geti sótt þing­stað og sagt frá sinni upp­lifun.

Kærð eru brot Útlend­inga­stofn­unar á ákvæðum samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks og brot gegn jafn­ræð­is­reglu 11. gr. stjórn­sýslu­laga. Með því að frá­vísa honum til Grikk­lands er, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá stuðn­ings­fólki hans og rétt­ar­gæslu­manni á Íslandi, brotið gegn einni af meg­in­reglu samn­ings­ins sem felur í sér frelsi fatl­aðs fólks til þess að velja sér búsetu­stað og hvar og með hverjum það býr. Þeir telja ljóst að hann hafi ekk­ert slíkt frelsi í Grikk­landi vegna skorts á stuðn­ingi þar. Þá virðir Ísland, sam­kvæmt kærunni, ekki þau mark­mið sem fel­ast í 1. gr. samn­ings­ins sem fela m.a. í sér að efla, verja og tryggja að allt fatlað fólk njóti til fulls og til jafns við aðra allra mann­rétt­inda og grund­vall­ar­frelsis og að efla virð­ingu fyrir eðl­is­lægri reisn þess.

Yismen hafði líkt og bróðir hennar bundið vonir við að dóms­málið myndi breyta öllu. Að hann og fjöl­skyldan fengi vernd á Íslandi, eftir að hafa reynt að fá slíka í tvö ár.

„Þegar ég og systir mín komum heim úr skól­anum í gær þá beið lög­reglan eftir okkur,“ segir Yismen við Kjarnann. Hún segir lög­regl­una hafa tekið á bróður hennar sem hafi setið í hjóla­stólnum. Eldri bróðir hennar hafi þá reynt að verja hann en þá hafi lög­reglan slegið hann. „Þeim var ýtt og hent niður,“ lýsir hún upp­á­kom­unni sem tók veru­lega á hana. Þeir hafi síðan báðir verið hand­teknir og fluttir á lög­reglu­stöð. „Og þeir tóku sím­ana af okkur öllum.“

Mæðgurnar voru fluttar á hótel í Reykja­nesbæ, þar sem lög­reglu­menn vökt­uðu þær, og þaðan út á Kefla­vík­ur­flug­völl í nótt. Þær gátu ekk­ert tekið með sér úr íbúð­inni, að sögn Yismen. Engin föt. Ekki neitt.

Þau hafi verið leidd inn í flug­vél­ina í hópum. Hún hafi verið „full af lög­reglu­mönnum, eins og við værum glæpa­menn“.

Sett í fjötra

„Ég sá ekki bróður minn fyrr en um borð í flug­vél­inni,“ útskýrir hún. Þegar hún hafi sagt lög­regl­unni að hún vildi hitta bróður sinn áður en hún færi um borð í flug­vél­ina þá hafi hún verið fjötruð á hönd­unum. Sömu sögu hafi verið að segja um aðra hæl­is­leit­endur sem voru um borð. „Okkur líður öllum hræði­lega illa. Þetta var versta nótt lífs míns, eins og martröð.“

Lögreglan bað starfsmenn á Keflavíkurflugvelli að beina sterkum ljósum að fjölmiðlamönnum svo þeir gætu ekki fylgst með aðgerðum við að flytja fólkið upp í flugvélina.
Lög­reglan bað starfs­menn á Kefla­vík­ur­flug­velli að beina sterkum ljósum að fjöl­miðla­mönnum svo þeir gætu ekki fylgst með aðgerðum við að flytja fólkið upp í flug­vél­ina.

Yismen seg­ist ekki sjá hvernig hún ætti að kom­ast aftur til Íslands, verði nið­ur­staða máls bróður hennar á þann veg að hann fái vernd og fjöl­skyldan þá jafn­vel líka. Það er þó það sem hún þráir. Að kom­ast hingað aftur, halda áfram að læra íslensku og byggja upp líf sitt til fram­tíðar. „En í stað­inn mun ég búa á göt­unni.“

„Mér þykir þetta leitt. Mér þykir þetta svo leitt.“

„Gerðu það, ekki senda mig og fjöl­skyldu mína í burtu,“ heyr­ist önnur systirin úr Hussien-fjöl­skyld­unni segja á upp­töku frá því að lög­reglan hand­tók fjöl­skyld­una í gær­kvöldi. Yismen leyfði blaða­manni Kjarnans að heyra upp­tök­una sem er átak­an­leg. Hana er að finna hér að neðan.

Unga konan: „Ég vil ekki fara til Grikk­lands!“

Lög­reglu­kona talar róandi við hana og segir: „Já, ég veit, ég veit. En ég get engu breytt.“

Unga konan: „Nei, þú veist það ekki.“ (Hún segir eitt­hvað sem ekki heyr­ist vegna örvænt­ing­ar­fulls grát­urs.) „Ég bið þig, ég bið þig!“

Lög­reglu­konan: „Ég heyri hvað þú segir en ég get ekk­ert gert.“

Konan: „Af hverju ekki?“

Lög­reglu­konan: „Því það er ekki mín ákvörðun að taka. Mér þykir það mjög leitt. Mér þykir það svo leitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið undanfarið ár