„Á sjónarmið hans að vega hærra eða stjórnvalda?“

Ákvarð­anir um að synja hópi Palest­ínu­manna um alþjóð­lega vernd voru teknar „áður en yfir­stand­andi átök brut­ust út á Gaza,“ segir sviðs­stjóri vernd­ar­sviðs Útlend­inga­stofn­unar og að stríðið þar hafi „ekki endi­lega“ áhrif á flutn­ing þeirra úr landi.

Ástandið á Gaza akkúrat núna, hefur ekki endi­lega áhrif á flutn­ing þess­ara ein­stak­linga úr landi beint – þegar kemur að fram­kvæmd­inni,“ segir Íris Krist­ins­dóttir, sviðs­stjóri vernd­ar­sviðs Útlend­inga­stofn­unar, um hvort stofn­unin hafi íhugað að fresta brott­vísun Palest­ínu­manna, sem hingað hafa komið síð­ustu mán­uði og óskað eftir alþjóð­legri vernd, í ljósi stríðs­ins sem geisar í þeirra heima­landi og hefur sett þá í ennþá við­kvæm­ari stöðu en áður.

Þór­hildur Hagalín, upp­lýs­inga­full­trúi stofn­un­ar­innar, segir að vissu­lega séu „sér­stakar aðstæður“ í Palest­ínu en að þangað sé ekki verið að vísa þeim heldur aftur til Grikk­lands þar sem þeir hafi þegar fengið dval­ar­leyfi. Hún við­ur­kennir þó að ástandið í því landi sé ekki gott, á því leiki eng­inn vafi. En efna­hags­legar ástæður á borð við hús­næðis- eða atvinnu­leysi, eru að sögn Írisar ekki nægj­an­legar einar og sér svo að mál hæl­is­leit­enda séu tekin til efn­is­legrar með­ferðar hér á landi.

Fá enga þjónustu

Útlend­inga­stofnun hefur lokað fyrir þjón­ustu við að minnsta kosti níu Palest­ínu­menn síð­ustu daga og vísað þeim út úr hús­næði stofn­un­ar­innar. Loka­á­kvörðun er komin í þeirra hæl­is­um­sóknir og nið­ur­staða stjórn­valda sú að þeim eigi að vísa úr landi.

Þeir neit­uðu að fara í sýna­töku fyrir brott­för og hafa sagt í sam­tölum við Kjarnann að það geri þeir vegna þess að þeir treysti sér ekki aftur til Grikk­lands, þar bíði þeirra ekk­ert annað en gatan. Enga vinnu sé að fá og nær ómögu­legt að fá hús­næði.

Blaða­maður Kjarnans fór til fundar við Írisi sviðs­stjóra Útlend­inga­stofn­unar og Þórhildi upp­lýs­inga­full­trúa í fyrra­dag og hitti þá fyrir til­viljun fimm Palest­ínu­menn fyrir utan gisti­hús­næði stofn­un­ar­innar í Bæj­ar­hrauni. Þeir sögð­ust í mik­illi van­líðan vegna stríðs­á­stands­ins í heima­land­inu, að erfitt væri að fá fréttir af ást­vinum þeirra á Gaza og að þeir myndu frekar vilja deyja á íslenskri götu en að fara aftur til Grikk­lands.

Ég hitti unga menn frá Palest­ínu hér fyrir utan sem sögðu mér að þeir hefðu verið beðnir að yfir­gefa hús­næði sem þeir voru í og fram­færslan tekin af þeim. Hvað býr að baki þess­ari ákvörðun?

„Já, ég get sagt þér, í stórum dráttum, af hverju við erum komin hingað,“ segir Íris. „Þetta eru ein­stak­lingar sem eru komnir með loka­synjun á sinni hæl­is­um­sókn á Íslandi. Kæru­nefnd útlend­inga­mála er búin að stað­festa frá­vísun Útlend­inga­stofn­unar, að þeir eigi að yfir­gefa Ísland og fara til Grikk­lands þar sem þeir hafa fengið dval­ar­leyfi, eins og þeir hafa sjálfir greint frá í fjöl­miðlum.“

Íris segir að stoð­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra sé nú komin með málið í sínar hendur. Það sé hennar að fram­kvæma ákvörðun yfir­valda. „Þá fara ákveðnir verk­ferlar í gang,“ útskýrir hún. „Í til­viki þess­ara manna þá hefur stoð­deildin sam­band við þá og til­kynnir þeim að þar sem loka nið­ur­staða sé komin í þeirra mál eigi þeir að yfir­gefa landið.“

Fyrst sé þeim boðið að yfir­gefa landið sjálf­vilj­ugir. Íris segir stoð­deild­ina leggja áherslu á sam­tal og að hafa fram­kvæmd­ina „eins þægi­lega“ og unnt sé, „þó að þetta sé auð­vitað aldrei þægi­leg fram­kvæmd, það er verið að vísa fólki úr landi. En ákvörð­unin er þessi og lög­reglan þarf að fram­fylgja henni.“

Hafi þeir ekki efni á flug­miða sé þeim boð­inn slíkur. „En ef ein­stak­ling­ur­inn vill ekki fara þá leið þá er þving­aður flutn­ingur eina úrræðið sem eftir er.“ Það þýði að lög­reglu­menn fari með við­kom­andi í flugið og afhenti hann, í þessu til­viki grískum yfir­völdum.

Vilja ekki „vinna með stjórnvöldum“

Palest­ínu­menn­irnir, sem flestir komu hingað á síð­ustu mán­uðum árs­ins í fyrra höfðu verið í hús­næði á vegum sveit­ar­fé­laga og notið þjón­ustu þeirra. Fyrir helgi var sveit­ar­fé­lög­unum hins vegar til­kynnt að þeim bæri að láta þá vita að þeir ættu að flytja sig í hús­næði Útlend­inga­stofn­unar í Bæj­ar­hrauni í Hafn­ar­firði og fá þjón­ustu þar.

„Við ræddum við þá með aðstoð túlks og útskýrðum fyrir þeim að til þess að geta farið í flutn­ing þurfi að taka COVID-próf,“ segir Íris. „Það er grund­vall­ar­for­senda fyrir því að fara úr landi í dag. Við gerðum þeim grein fyrir því að ef þeir ætl­uðu sér ekki að vinna með stjórn­völdum í þessum efnum, og víkja sér undan fram­kvæmd með þessum hætti, gæti það haft þær afleið­ingar í för með sér að þeir misstu þjón­ustu.“

Íris segir að Palest­ínu­menn­irnir hafi svo fengið tæki­færi til að hugsa sig um, ræða við lög­menn sína eða aðra.

Voru ein­hverjir þeirra sem ákváðu eftir sam­töl við ykkur að fara úr landi?

„Ekki í þessum hópi en það hefur gerst í nokkur skipti að ein­stak­lingar hafa valið að halda þjón­ust­unni og fara í þetta próf og úr landi. Við gerðum [Palest­ínu­mönn­unum] nátt­úr­lega grein fyrir því að að sjálf­sögðu megi þeir fá áfram þjón­ustu ef þeir vinna með stjórn­völdum og und­ir­gang­ist þetta próf og fari úr landi eins og nið­ur­staðan segir til um. En í þessu til­viki vildu þeir það ekki þannig að þetta er ákvörð­unin sem var tekin.“

Hópur fólks hér á landi mótmælti stríði Ísraela gegn Palestínu fyrir utan Hörpu í vikunni er utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom þangað til fundar við íslensk stjórnvöld.
Hópur fólks hér á landi mót­mælti stríði Ísraela gegn Palest­ínu fyrir utan Hörpu í vik­unni er utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna kom þangað til fundar við íslensk stjórn­völd.

Íris segir að í lögum um útlend­inga sé að finna ákveðnar þving­un­ar­heim­ildir fyrir lög­regl­una til að fram­kvæma ákvarð­anir yfir­valda. „Reglu­gerð um útlend­inga heim­ilar líka að leggja niður þjón­ustu í ákveðnum til­vikum.“

Teljið þið ykkur hafa styrka stoð til þess­ara aðgerða í lögum um útlend­inga og reglu­gerð um útlend­inga?

„Já, við teljum að það sé heim­ild í reglu­gerð­inni til að fella niður þjón­ustu við ákveðnar aðstæður. Og reglu­gerðin á sér stoð í lögum um útlend­inga.“

Þór­hildur segir þjón­ust­una vera fyrir þá sem á henni þurfi að halda á meðan umsókn þeirra hjá stofn­un­inni sé í vinnslu. „Henni lýkur þegar ákvörðun kemur til fram­kvæmdar. Í þessum til­vikum er um að ræða ákvarð­anir sem er búið að vísa til fram­kvæmdar hjá lög­reglu. Þegar ein­stak­ling­arnir gera samt sem áður eitt­hvað til að koma í veg fyrir að fram­kvæmdin geti átt sér stað þá er réttur til þjón­ustu í raun fall­inn niður.“

Þið eruð að taka þessar ákvarð­anir og beita þessu þegar tvenns konar óvissa er til staðar. Í fyrsta lagi er heims­far­aldur og hann er vissu­lega í rénun hér en hann hefur haft mikil áhrif í Grikk­landi og á flótta­fólk þar. Svo er nátt­úr­lega, það er óhætt að kalla það, stríð í þeirra heima­landi.

„Það er eng­inn að tala um að senda þá til Palest­ínu,“ segir Þór­hildur og bætir við að sá mis­skiln­ingur hafi heyrst í umræð­unni. Senda eigi menn­ina til Grikk­lands.

En þeir velja nátt­úr­lega ekki að fara til Grikk­lands, þeir verða að fara þangað, það er eini við­komu­stað­ur­inn sem þeir geta haft á flótta frá Palest­ínu þar sem ástandið er svona. Hafið þið ekki staldrað við þetta tvennt þegar þið ákveðið að fram­kvæma svona aðgerð; ann­ars vegar hvernig staðan er í Grikk­landi í þriðju bylgj­unni þar og síðan að það sé stríð í þeirra heima­landi og þeir því í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu?

„Allt sem þú ert að nefna með COVID er mat sem hefur farið fram í ákvörð­unum, bæði hjá Útlend­inga­stofnun og hjá kæru­nefnd­inni,“ svarar Íris. „Þar er farið í ítar­legt mat á aðstæðum á Grikk­landi með til­liti til heims­far­ald­urs­ins til dæmis. Sú nið­ur­staða fékkst í þessi mál að COVID væri ekki að hafa þau áhrif að það eitt og sér ætti að stöðva end­ur­send­ingu. Þannig að það er vissu­lega hugsað um þessa hluti. Við förum ekki út í þessar aðgerðir að gamni okkar. Þetta er algjör­lega síð­asta úrræðið sem við notum. Það er búið að reyna að vinna með þeim.“

Við með­ferð máls­ins hjá stofn­un­inni er að sögn Þór­hildar metið hvort að aðstæður hvers og eins ein­stak­lings, sem njóti þegar rétt­inda á Grikk­landi, séu með þeim hætti að rétt sé á grund­velli útlend­inga­laga að mál hans sé tekið til efn­is­með­ferðar hér á landi. Búið sé að fram­kvæma þetta ein­stak­lings­bundna mat í til­viki Palest­ínu­mann­anna og búið að end­ur­skoða það af kæru­nefnd útlend­inga­mála sem stað­festi nið­ur­stöðu Útlend­inga­stofn­unar.

Skiptir engu máli hvaðan þeir koma, hvert þeirra heima­land er? Aðeins staða þeirra í Grikk­landi?

„Lögin segja að við þurfum ekki að fjalla efn­is­lega um ástæður flótta frá heima­ríki þegar um er að ræða ein­stak­linga með vernd í öðru landi,“ svarar Íris. „Við þurfum ekki að spyrja af hverju ertu að flýja Palest­ínu því við vitum að búið er að fjalla um það á Grikk­landi og búið að veita við­kom­andi vernd þar. En lögin gera hins vegar kröfu um að við skoðum hvernig þessi flótti hefur haft áhrif á við­kom­andi. Við spyrjum spurn­inga um hvort við­kom­andi hafi lent í aðstæðum sem hafi mótað þá og þeirra heilsu, til dæmis. Þetta er mat sem stjórn­völd þurfa að taka.“

En finnst ykkur ekki óheppi­legt að þið séuð að gera þetta, að setja unga Palest­ínu­menn á göt­una, á meðan þessir atburðir eru að eiga sér stað á Gaza? Í þessum töl­uðu orðum?

„Þetta eru ungir Palest­ínu­menn sem hafa flúið Palest­ínu vegna ástands­ins þar og hafa þegar fengið veitta vernd í Evr­ópu­ríki,“ ítrekar Þór­hildur. Íris bætir við að það sem kom fyrir við­kom­andi í hans heima­landi og á hans flótta sé tekið til mats hjá stofn­un­inni. Ákvarð­anir um synjun hafi hins vegar verið teknar „áður en yfir­stand­andi átök brut­ust út á Gaza“.

En það sem skiptir þá máli núna er hvernig ástandið er í þeirra heima­landi, sem þeir hafa eflaust vænt­ingar til að snúa aftur til ein­hvern tím­ann. Og þetta eru sér­stak­lega erf­iðar aðstæður akkúrat núna þessa dag­ana. Var staldrað við og hugsað um að fresta þessum aðgerðum í því ljósi?

„Þetta er búið að vera langt ferli,“ svarar Íris. „Þetta er ekki að ger­ast á ein­hverjum einum eða tveimur dögum. Það er búið að taka öll þau skref sem hægt er að taka í þessum málum, gagn­vart þessum ein­stak­lingum, þegar kemur að fram­kvæmd­inni. Á ein­hverjum tíma­punkti neyð­ast stjórn­völd til þess að bregð­ast við, eins og í þessu til­viki. Við erum að tala um þving­aðan flutn­ing sem er alltaf erfitt.“

Við erum líka að tala um ástand á Gaza sem hefur ekki verið síðan 2014.

„Ástandið á Gaza akkúrat núna, hefur ekki endi­lega áhrif á flutn­ing þess­ara ein­stak­linga úr landi beint – þegar kemur að fram­kvæmd­inni,“ segir Íris. „Þetta er allt sem er tekið til­lit til í ákvörð­un­inni og nú er komin loka nið­ur­staða og þessir ein­stak­lingar eru í raun búnir að tæma sínar leiðir innan kerf­is­ins. Stofn­unin er bundin af þeim lögum og reglum sem eru í gildi á hverjum tíma. Þetta eru regl­urnar sem við þurfum að vinna eftir.“

En hefði verið hægt að fresta þess­ari aðgerð í nokkrar vikur? Eru heim­ildir til að fresta ákvörð­unum í ljósi mjög sér­stakra aðstæðna sem koma upp?

„Það eru vissu­lega sér­stakar aðstæður í þeirra heima­landi en það er ekki verið að vísa þeim þangað,“ end­ur­tekur Þór­hildur. „Það er hægt að ímynda sér að ef ein­hverjar aðstæður kæmu upp þar sem þyrfti hugs­an­lega að skoða. En það er ekki verið að vísa þeim til lands þar sem eru átök.“

Þeir hafi rétt til að vinna á Grikk­landi „en við vitum að það er erfitt að fá vinnu þar og ástandið er að mjög mörgu leyti ekki jafn gott og hér. Við erum ekki að draga það í efa. En þeir njóta þar verndar og þess vegna er litið til ástands­ins þar en ekki ástands­ins í Palest­ínu.“

Meira en 200 Palestínumenn, þar á meðal tugir barna, hafa fallið í loftárásum Ísraelsmanna á Gaza síðustu daga. Ungu Palestínumennirnir eiga þar ástvini.
Meira en 200 Palest­ínu­menn, þar á meðal tugir barna, hafa fallið í loft­árásum Ísra­els­manna á Gaza síð­ustu daga. Ungu Palest­ínu­menn­irnir eiga þar ást­vini.

Þór­hildur bendir á að til­felli hafi komið upp þar Útlend­inga­stofn­unar meti aðstæður fólks sem njóti þegar verndar í Grikk­landi leiði með þeim hætti að ekki skuli senda það aftur þangað. „Inn í það spilar flótt­inn, upp­runi, áföll, heilsu­far og fleira í sam­hengi við þær aðstæður sem bíða við­kom­andi á Grikk­landi.“ Sé nið­ur­staðan sú að ekki þyki for­svar­an­legt að senda við­kom­andi til Grikk­lands sé mál hans tekið til efn­is­legrar með­ferðar.

Það var hins vegar ekki nið­ur­staðan í ein­stak­lings­bundnu mati Útlend­inga­stofn­unar á málum Palest­ínu­mann­anna sem nú hafa misst þjón­ustu hjá stofn­un­inni.

Þegar þið segið að þið metið aðstæður á Grikk­landi þannig að þær séu öruggar. Hvaðan fáið þið þær upp­lýs­ingar?

„Það fer fram mjög ítar­legt mat hjá lög­fræð­ingum stofn­un­ar­innar,“ segir Íris. Í við­tölum séu umsækj­endum um vernd m.a. gefið tæki­færi til að útskýra sínar aðstæður og upp­lifun sína af því að dvelja á Grikk­landi. Einnig fari fram rann­sókn á heilsu­fari umsækj­enda og þeir fái auk þess tæki­færi til að leggja fram gögn. Í kjöl­farið séu aðstæður á Grikk­landi svo skoð­aðar eftir mörgum leiðum. Til dæmis sé stuðst við fjöl­margar alþjóð­legar skýrslur, m.a. um félags­lega kerfið og heil­brigð­is­kerfið. Að sögn Írisar eru margar skýrsl­urnar frá því í ár og í þeim séu nýjar og upp­færðar upp­lýs­ingar. Einnig eigi lög­fræð­ing­arnir sam­skipti við grísk yfir­völd, svo dæmi séu tekin.

Þið teljið þessi gögn það ný og það góð að það sé óyggj­andi í ykkar huga að það sé öruggt, til dæmis fyrir þessa ungu Palest­ínu­menn, að fara til Grikk­lands?

„Já, það er mat stofn­un­ar­innar í þeim til­vikum þegar kom­ist er að þeirri nið­ur­stöðu að synja eigi ein­stak­lingi um efn­is­lega með­ferð, að það sé öruggt að fara þangað,“ svarar Íris. „Að það sé ekki brot á mann­rétt­inda­sátt­mál­anum til dæmis.“

Þeir segj­ast sumir hafa búið á göt­unni og aðrir jafn­vel á rusla­haugum á Grikk­landi. Er það ásætt­an­legt?

„Eitt af því sem er skoðað er hvar ein­stak­ling­ur­inn hefur dvalið og hvaða tæki­færi ein­stak­ling­ur­inn færi til að aðlag­ast grísku sam­fé­lagi,“ segir Íris. „En lögin, og reglu­gerðin reyndar líka, kveða á um að efna­hags­legar ástæður séu einar og sér ekki nægj­an­legar til þess að málið fái hér efn­is­lega máls­með­ferð.“ Efna­hags­legar ástæður séu t.d. atvinnu- og hús­næð­is­leysi. „Það þarf að koma eitt­hvað meira til.“

En þeir segj­ast einmitt hafa þetta val; að vera hér á göt­unni eða á göt­unni í Grikk­landi. Þeir velji íslenska götu. Hvernig hljómar það í þínum eyrum? Hvað finnst þér það segja um stöðu þeirra?

„Þeir vilja ekki fara til baka og það er sjón­ar­mið út af fyrir sig,“ segir Íris. „Og maður skilur það alveg. Þessir ein­stak­lingar eru komnir hingað og þeir vilja vera hérna. En svo er hitt sjón­ar­miðið, að hér erum við komin með nið­ur­stöðu sem segir að við­kom­andi eigi að fara úr landi og þá er það bara spurn­ingin: Á sjón­ar­mið hans að vega hærra eða stjórn­valda?“

Þór­hildur bætir við að eng­inn dragi það í efa að aðstæður þeirra á Grikk­landi séu bág­bornar „og að þeir séu komnir hingað í leit að betri kjörum og betri tæki­færum. Á því hafa allir skiln­ing. En það sem þeir eru að sækja um hér á landi er hins vegar alþjóð­leg vernd sem er neyð­ar­kerfi fyrir fólk á beinum flótta frá átökum og ofsóknar­á­standi“.

Eru þeir ekki á beinum flótta þó að þeir hafi haft við­komu í ákveðnu landi? Palest­ínu­menn geta ekki flúið beint til Íslands.

„Nei, en það er verið að tala um ein­stak­linga sem njóta nú þegar alþjóð­legrar verndar í Evr­ópu­ríki og þar af leið­andi geta þeir ekki komið til Íslands eða ann­ars lands og fengið sam­bæri­lega stöðu og þeir sem hingað koma með enga vernd í Evrópu.“

Flóttafólk á götunni í Aþenu, höfuðborg Grikklands. Palestínumennirnir segja nær ómögulegt að finna þar húsnæði.
Flótta­fólk á göt­unni í Aþenu, höf­uð­borg Grikk­lands. Palest­ínu­menn­irnir segja nær ómögu­legt að finna þar hús­næði.

Nú eru þeir komnir á göt­una og hafa hvorki hús­næði né fram­færslu. Hafið þið ekki áhyggjur af því? Útlend­inga­stofnun hefur hingað til viljað vita hvar hæl­is­leit­endur eru, dæmin sýna það. Af hverju á það ekki við núna?

„Auðvitað er þetta ekki ákjós­an­leg staða,“ segir Íris. „Það er eng­inn að halda því fram að við viljum hafa þetta svona. En stað­reyndin er sú að við erum komin hingað í þessu til­viki.“ Hún bendir á stoð­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra hafi heim­ildir til að setja á ákveðna til­kynn­inga­skyldu til að vita hvar fólk sé á hverjum tíma. Hins vegar geti hún ekki svarað fyrir hvað lög­reglan geri í málum Palest­ínu­mann­anna. „En það eru vissu­lega leiðir til að tryggja að við týnum ekki ein­stak­ling­unum í sam­fé­lag­inu.“

Þór­hildur segir þá ekki verða þving­aða í COVID-próf en að fall­ist þeir á að fara í það geti þeir aftur fengið þjón­ustu hjá Útlend­inga­stofnun.

Og farið úr landi?

„Já,“ svarar Þór­hildur. „Að vera frekar á göt­unni hér en í Grikk­landi, eins og þeir segja, er samt í raun ekki val sem ein­stak­lingar eiga þegar fyrir liggur fram­kvæmd­ar­hæf ákvörðun.“ Ef ekki væri fyrir COVID-prófin væri búið að flytja þá úr landi. Það hafi verið gert fyrir far­ald­ur­inn þegar fólk neit­aði að yfir­gefa landið í sam­ræmi við nið­ur­stöðu yfir­valda.

Ástandið í Grikklandi er ekki gott

Síðustu tvö ár eða svo hefur umsóknum um alþjóð­lega vernd á Íslandi frá fólki sem þegar nýtur verndar á Grikk­landi fjölgað mjög, að sögn Þór­hildar. „Það er ekk­ert nýtt að ein­stak­lingar vilji ekki fara aftur til Grikk­lands þótt að við höfum auð­vitað mikla samúð með fólki frá Palest­ínu og vitum að það hlýtur að vera hörmu­legt að eiga þar ætt­ingja í þeim aðstæðum sem þar eru núna.“

Lögmenn sumra þess­ara Palest­ínu­manna hafa sagt að það sé ekki til­viljun að svo margir sem þegar hafi fengið stöðu flótta­manna á Grikk­landi séu að sækja um vernd hér. Að þeir sem fengið hafi vernd í öðrum löndum séu ekki að flykkj­ast hingað. Vekur þetta ekki spurn­ingar um aðstæð­urnar á Grikk­landi?

„Við vitum, við sjáum það í fjöl­miðlum, að ástandið á Grikk­landi er ekki gott,“ svarar Þór­hildur. „Það er erfitt á Grikk­landi. Það er eng­inn vafi um það.“ Hins vegar komi einnig hingað ein­stak­lingar sem fengið hafi vernd í öðrum löndum, t.d. í Ung­verja­landi og á Ítalíu, en þó alls ekki í sama mæli. Íris segir að allt séu þetta lönd sem séu við landa­mæri ann­arra heims­álfa og fái því „mesta þungan“ þegar komi að straumi fólks á flótta. „Og eðli máls­ins sam­kvæmt hafa skap­ast þar erf­iðar aðstæður. Það leiðir til þess að ein­stak­ling­arnir leita annað.“

Vissu­lega veki það upp spurn­ingar að hennar sögn hversu margir sem fengið hafi vernd á Grikk­landi leiti nú hingað. „Það er ástæðan fyrir því að við gerum gríð­ar­lega nákvæmt mat á aðstæð­unum þar.“

Grísk stjórn­völd hafi kallað eftir aðstoð ann­arra Evr­ópu­ríkja til að létta á ástand­inu. „Það eru mörg lönd sem hafa svarað því ákalli. Meðal ann­ars Ísland.“

Fimm Palestínumannanna sem nú hafa hvorki húsnæði né matarpeninga frá Útlendingastofnun fyrir utan húsnæði stofnunarinnar í Hafnarfirði. Þeir gista nú flestir hjá Íslendingum sem skotið hafa yfir þá skjólshúsi.
Fimm Palest­ínu­mann­anna sem nú hafa hvorki hús­næði né mat­ar­pen­inga frá Útlend­inga­stofnun fyrir utan hús­næði stofn­un­ar­innar í Hafn­ar­firði. Þeir gista nú flestir hjá Íslend­ingum sem skotið hafa yfir þá skjóls­húsi.

Hvernig sérðu fyrir þér að mál Palest­ínu­mann­anna fari? Ein­stak­linga sem eru ekki lengur í ykkar þjón­ustu og ekki með íslenska kenni­tölu?

„Ég held að það hljóti að enda með því að þeim verði vísað frá land­inu í sam­ræmi við nið­ur­stöðu yfir­valda og þá með þving­uðum flutn­ingi á vegum lög­regl­unnar. Ég sé ekki fyrir mér að annað en það ger­ist.“ Þeir verði þó ekki þving­aðir í sýna­töku.

En þeir kom­ast ekki úr landi án þess að fara í COVID-próf?

„Eins og staðan er núna,“ svarar Íris.

Er verið að skoða að fá und­an­þágur frá því?

„Stoð­deildin er í sam­skiptum við þessi lönd og þeirra að svara því.“

Yfirvöld í nágranna­ríkjum Íslands séu í sömu sporum. „Löndin hafa hins vegar mjög mis­jafnt reglu­verk. Sum eru með þetta svo­kall­aða varð­hald sem er stundum beitt í þessum til­vikum. Aðrir fella niður þjón­ustu.“

Miðað við það sem Palest­ínu­menn­irnir segja núna munu þeir ekki fall­ast á að fara í skimun og til Grikk­lands. Hvað getur það ástand varað lengi?

„Það er erfitt að segja,“ svarar Íris. „Þeir eru að velja að koma sér undan fram­kvæmd. Hvað þeir eru til­búnir að gera það lengi, ég get ekki svarað fyrir þá. Það eru þá vænt­an­lega ákveðnar leiðir sem stoð­deildin þarf að fara. Þeir hafa aðrar heim­ildir en við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið undanfarið ár