Mögulega heppilegra ef aðrir hefðu rannsakað neyðarlánið

Nefndar­maður í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd segir að líklega verði fjallað um skýrslu Seðla­banka Íslands um veitingu neyðar­lánsins á vettvangi nefndarinnar. Það kunni að vera að heppilegra hefði verið að aðrir en Seðla­bankinn hefðu rannsakað málið.

„Hefði verið heppilegra ef einhver utan­aðkomandi gerði þetta? Það kann vel að vera og þá þarf að búa um slík mál gaum­gæfilega þannig að þeir sem það hefðu gert hefðu haft fullar rannsóknar­heimildir til að komast að þessu.“

Þetta sagði Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar, í viðtali við Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans, í sjónvarps­þættinum 21 á Hringbraut í vikunni. Jón Steindór lagði í fyrra fram fyrir­spurn til forsætis­ráðherra þar sem hann fór fram á að fá upplýsingar um ráðstöfun neyðar­lánsins sem Seðla­banki Íslands veitti Kaupþingi í október 2008, upplýsingar um hvernig ákvörðun um lánið var veitt og hvernig innheimtur af láninu voru.

Í svari sínu við fyrir­spurninni beindi forsætis­ráðherra því til Seðla­banka Íslands að hann myndi óska eftir upplýsingum um þá ráðstöfun frá Kaupþingi ehf., slitabúi hins fallna banka.

Skýrsla Seðla­bankans um veitingu lánsins var síðan birt í fyrradag.

Hægt er að sjá stiklu úr þættinum hér að neðan:

Í skýrslunni, sem birt var á mánudag, kemur fram að ekki hafi verið unnið í samræmi við banka­stjórnar­samþykkt um veitingu þrautar­varalána, sem hafði verið sett í apríl 2008, þegar neyðar­lánið var veitt. Þar er einnig staðfest að engin formleg lána­beiðni hafi legið fyrir í seðla­bankanum, að lánið hafi verið greitt út áður en gengið var frá lána­pappírum og formlegum veðtöku­gögnum. Auk þess er einungis varpað ljósi á ráðstöfun á fé út úr Kaupþingi af einum banka­reikningi eftir veitingu neyðar­lánsins, þess reiknings sem lánið var greitt inn á.

Jón Steindór segir að það hafi ekki verið tekin ákvörðun um hvort og þá hvernig verði unnið með niður­stöðu skýrslunnar á vettvangi Alþingis. „Ég held að maður muni nú í fyrsta lagi lesa þessa skýrslu gaum­gæfilega og reyna að átta sig á því hvað vanti upp á og hvað sé ósagt þarna. Mér þykir ekkert óeðlilegt að ég muni óska eftir því í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd að það verði fjallað um skýrsluna og hvort að hún gefi nefndinni nefndinni einhvert tilefni til skoðunar á málinu eða frekari upplýsinga­öflunar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár