Yahoo í samningaviðræðum um kaup á Snapchat

Vefrisinn Yahoo á í samninga­viðræðum um kaup á hlut í Snapchat, að því er fram kom á vefsíðu New York Times.

Yahoo hagnaðist verulega á skráningu Alibaba á markað en fyrir­tækið var meðal hluthafa þess þegar kom að skráningunni. Að því er fram kemur í frétt New York Times nemur verðmæta­aukningin um 6 milljörðum Bandaríkja­dala, eða um 800 milljörðum króna.

Snapchat hefur notið mikilla vinsælda um allan heim síðan það kom á markað en með Appinu geta notendur skipst á mynd­skeiðum og myndum sem síðan er eytt sjálf­krafa.

Um 100 milljónir manna um allan heim nota Snapchat en Facebook bauð 3 milljarða dala í félagið í fyrra, en því var neitað. Um 70 prósent af virkum notendum Snapchat eru konur.

Samkvæmt upplýsingum sem fram koma í umfjöllun Bloomberg er talið að Yahoo ætlar sér að kaupa hlut í Snapchat miðað þær forsendur að félagið sé metið á 10 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 1.200 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár