Lífeyrissjóðir bjóða Grindvíkingum greiðsluhlé líkt og bankarnir

Nokkrir af þeim líf­eyr­is­sjóðum sem eru umsvifa­mestir í útlánum á fast­eigna­mark­aði segja Heim­ild­inni að Grind­vík­ingar geti fryst hús­næð­is­lán sín hjá sjóð­unum, í ljósi stöð­unnar í bænum.

Grindavík
Grinda­vík Nokkrir af helstu lán­veit­endum meðal líf­eyr­is­sjóða hyggj­ast allir bjóða Grind­vík­ingum upp á greiðslu­hlé.

Líf­eyr­is­sjóðir hafa á und­an­förnum árum orðið umsvifa­miklir lán­veit­endur á fast­eigna­mark­aði. Heim­ildin hafði sam­band við fjóra líf­eyr­is­sjóði og spurði hvaða úrræði sjóð­irnir væru með áform um að bjóða Grind­vík­ingum upp á, í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er.

Í stuttu máli eru við­brögð sjóð­anna við þeim bráða­vanda og óvissu sem fast­eigna­eig­endur í Grinda­vík standa frammi fyrir þau sömu og við­skipta­bank­anna, sem hafa ákveðið að bjóða Grind­vík­ingum upp á fryst­ingu lána, sem felur í sér að ekki er greitt af lánum, en vextir og verð­bætur bæt­ast við höf­uð­stól láns­ins.

Í svari frá Gildi-líf­eyr­is­sjóði segir að úrræði sjóðs­ins fyrir lán­tak­endur sem lendi í greiðslu­vanda standi „lán­tak­endum frá Grinda­vík að sjálf­sögðu til boða“. 

„Þannig geta lán­tak­endur fryst afborg­anir tíma­bundið, en lán­taki greiðir þá ekki af láni á meðan fryst­ing varir. Vextir og verð­bætur þess tíma­bils sem fryst­ing stendur bæt­ast þá við höf­uð­stól láns­ins. Lán­tak­endum stendur einnig mögu­lega til boða að …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GEE
    Greining endurskoðun ehf. skrifaði
    Ef lánin eru fryst, þá eru þau óbreytt meðan frysting varir, það er það falla hvorki á þau vextir né verðbætur og afborganir falla líka niður meðan frysting varir.
    Lánveitendur eru ekki að bjóða slíka frystingu, heldur aðeins greiðsluhlé, sem skapar þeim auknar tekjur gegn einhverri frestun innheimtu.
    G
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "en vextir og verðbætur bætast við höfuðstól lánsins"
    Frestur er á íllu bestur. Greiðslubyrði mun þyngjast í framtíðinni.
    0
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Sem fyrstu viðbrögð er þetta algjört lágmark og nauðsynlegt neyðarúrræði.

      Til lengra tíma hlýtur svo að þurfa að huga að varanlegri lausnum fyrir blessað fólkið sem stendur frammi fyrir þessum hildarleik. Það ætti að byrja strax að nýta tímann á meðan lánin eru í frystingu til að undirbúa útfærslur á slíkum úrræðum.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár