Malala hyggst læra stjórnmálafræði í Oxford eða Stanford

Malala Yousafzai, yngsti friðar­verðlauna­hafi Nóbels, ætlar sér að fara í háskóla og læra stjórnmála­fræði í Stanford eða Oxford. Frá þessu greinir faðir hennar, og segir að fjöl­skyldan hafi nú þegar skoðað háskóla­svæðið hjá Stanford.

Þá hefur Malala einnig heimsótt Oxford með kennara úr skóla hennar í Birmingham í Bretlandi. Skólarnir eru báðir taldir á meðal þeirra allra bestu í heiminum.

Ný heimildar­mynd um Malölu var frumsýnd á kvikmynda­hátíðinni í London í vikunni. Hún heitir He Named Me Malala, eða hann nefndi mig Malölu, Í myndinni er Malölu fylgt eftir í átján mánuði og sýnir hana ferðast um heiminn og lifa lífi sínu í Bretlandi, þangað sem hún flutti eftir að hún var skotin í höfuðið af talibönum árið 2012.

https://www.youtube.com/watch?v=E58qY9-ID4A

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár