Vilja skýra hlutverk landshlutasamtaka sveitarfélaga

Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hefur skipað starfs­hóp sem hefur það hlut­verk að meta stöðu lands­hluta­sam­taka sveit­ar­fé­laga með það að mark­miði að skýra hlut­verk þeirra og stöðu gagn­vart sveit­ar­fé­lögum ann­ars vegar og rík­inu hins vegar.

Sigurður Ingi Jóhannsson.
Sigurður Ingi Jóhanns­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hefur skipað starfs­hóp sem hefur það hlut­verk að meta stöðu lands­hluta­sam­taka sveit­ar­fé­laga með það að mark­miði að skýra hlut­verk þeirra og stöðu gagn­vart sveit­ar­fé­lögum ann­ars vegar og rík­inu hins vegar.

Þetta kemur fram í frétt ráðu­neyt­is­ins.

Verkefni starfs­hóps­ins er að leggja fram til­lögur um hvernig lands­hluta­sam­tök sveit­ar­fé­laga geti betur unnið með sveit­ar­fé­lögum og styrkt svæða­sam­vinnu þeirra þannig að sveit­ar­fé­lög og sveit­ar­stjórn­ar­stigið verði betur í stakk búið til að taka við fleiri verk­efnum og tryggja íbúum á land­inu öllu nauð­syn­lega og lög­bundna þjón­ustu. Við vinnu sína skal starfs­hóp­ur­inn eiga víð­tækt sam­ráð við full­trúa sveit­ar­stjórna og sam­tök þeirra og horfa til stöðu og þró­unar sveit­ar­stjórn­ar­stigs­ins í nágranna­ríkjum.

Á vef­síðu Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að lands­hluta­sam­tök séu frjáls sam­tök sveit­ar­fé­lag­anna og hafi þau öll sér­stakan fram­kvæmda­stjóra og skrif­stofu. Lands­hluta­sam­tökin fari með byggða­mál og sér­stök hags­muna­mál hvers lands­hluta.

„Nú eru starf­rækt átta lands­hluta­sam­tök sveit­ar­fé­laga sem flest sveit­ar­fé­lög eiga aðild að. Í flestum til­vikum fara starfs­svæði lands­hluta­sam­tak­anna eftir kjör­dæma­skip­an­inni sem gilti til árs­ins 2003. Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, SSH, ná þó yfir Reykja­vík­ur­borg og nágranna­sveit­ar­fé­lög hennar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Lands­hluta­sam­tök sveit­ar­fé­laga voru mörg hver stofnuð fyrir til­stuðlan Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga,“ segir á vef­síð­unni.

Í frétt ráðu­neyt­is­ins kemur fram að starfs­hóp­ur­inn sé þannig skip­aður: Ásgerður Gylfa­dóttir, for­maður bæj­ar­ráðs Sveit­ar­fé­lags­ins Horna­fjarðar, for­maður starfs­hóps­ins, skipuð af ráð­herra, Óli Hall­dórs­son, for­maður bæj­ar­ráðs Norð­ur­þings, skip­aður af ráð­herra, Ásta Stef­áns­dóttir, sveit­ar­stjóri Blá­skóga­byggðar, til­nefnd af Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga, Jón Björn Hákon­ar­son, for­seti bæj­ar­stjórnar Fjarða­byggðar, til­nefndur af Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga og Rakel Ósk­ars­dóttir, bæj­ar­full­trúi á Akranesi og for­maður SSV, til­nefnd af lands­hluta­sam­tökum sveit­ar­fé­laga.

Með hópnum starfar Stefanía Trausta­dóttir, sér­fræð­ingur í sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu. Sér­stakur ráð­gjafi starfs­hóps­ins er Eva Marín Hlyns­dóttir, lektor við stjórn­mála­fræði­deild Félags­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár