Hæsta og lengsta glerbrú í heimi í opnar

Óhætt er að segja að brúin í Kína sé ekki fyrir loft­hrædda.

Hæsta og lengsta glerbrú í heimi hefur opnað fyrir ferðamenn, en hún er staðsett í Kína. Brúin liggur milli tveggja fjalla í Zhangjiajie, nánar tiltekið í Hunan sýslu. Svæðið er einna þekktast sem Avatar fjalla­svæðið en samnefnd kvikmynd var að stórum hluta tekin upp á svæðinu. 

Brúin er 430 metra löng og liggur milli fjall­garða um 300 metra fyrir ofan jörðu. Heildar­kostnaður við brúna nam um 3,4 milljónum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 420 milljónum króna, að því er fram kom á vef breska ríkis­útvarpsins BBC í gær.

Rekstrar­aðilar brúarinnar hafa lagt mikið á sig til að sýna fram á að brúin sé trygg, meðal annars með því að aka bíl út á brúna. Vonir standa til þess að þúsundir manna muni heimsækja svæði á hverju degi, frá og með opnum hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár