Fimm borgir vilja halda Ólympíuleikana 2024

Alþjóð­lega Ólympíu­nefndin hefur greint frá hvaða borgir koma til greina sem gestgjafi Ólympíu­leikana árið 2024 en umsóknar­frestur rann út á miðnætti í gær. Fimm borgir sóttu um að halda leikana og koma þær allar til greina að mati nefndarinnar. Þær eru Búdapest (Ungverja­land), Hamborg (Þýskaland), París (Frakkland), Róm (Ítalía) og Los Angeles (Banda­ríkin). Endanleg kosning um Ólympíu­borgina 2024 verður í september 2017.

Samkvæmt frétt New York Times um málið þykja Los Angeles og París líklegustu borgirnar til þess að halda leikana. Ólympíu­leikarnir hafa tvívegis verið haldnir í hvorri borg, árin 1932 og 1984 í Los Angeles og árin 1900 og 1924 í París. Frakkar vildu einnig halda leikana árið 2012 en töpuðu þá fyrir Bretum, þegar leikarnir voru haldnir í London.

Fram kemur í frétt bandaríska dagblaðsins að íbúar Hamborgar muni kjósa um framboð borgarinnar í sérstökum kosningum þann 29. nóvember næst­komandi. Því er enn alls óvíst hvort borgin taki þátt í kosninga­baráttunni sem nú er framundan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár